Heimsmynd - 01.03.1990, Síða 44
M ARS
TÍMAMÓT
1990
Valgarður Egilsson,
læknir og skúld.
vœri ekki fœddur á
Grenivík þann íuttugasta
mars 1940 hvar og hvenœr
hefði hann þá viljað fœðast?
„A íslandi 1890, því þá var
fólk svo bjartsýnt."
Inn í hvernig aðstœður?
„Inn í bjartsýnan heim.“
Hvaða persóna í sögunni
hefðir þú helst viljað vera?
„Jesús Kristur."
Hvaða tímabil í sögunni
heillar þig mest?
„Upphaf sögu manna við Olduvaigljúfrin í Tanzaníu."
Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti?
„Jóhanni Bessasyni langafa mínum. Hann hafði svo mikið
skegg að hann batt það upp í tryppi ef hann vantaði snæri og
var allra manna sterkastur.“
Hvernig húsgögn viltu hafa í kringum þigl
„Bókahillur, allt annað er aukaatriði."
Hvernig matur finnst þér besturl
„Hafragrautur með nýrri lifrapylsu. Annars er ég ókresinn
á mat.“
Hverju leggurðu mest upp úr við val á fatnaðil
„Ég hef engan áhuga á fatnaði nema skófatnaði, en vil hafa
alla skó í laginu eins og íþróttaskó.“
Hvaða kvenmaður í sögunni heillar þig mestl
„Hún er úr samtímasögunni og ég veit ekki hvað hún heitir.
Það er kona af indverskum ættum sem ég sá einu sinni á járn-
brautarstöð í Metz í Frakklandi og talaði ekki einu sinni við.“
Hvernig slapparðu afl
„í einveru. Þá fæ ég næði til að vinna.“
Hver er besta kvikmynd sem þú hefur séðl
„Björgunarafrekið við Látrabjarg eftir Oskar Gíslason.“
Hverju sérðu mest eftirl
„Að hafa ekki verið móður minni betri sonur."
Svokölluð Mars-lög
(einnig nefnd Apríl-
lög) voru sett af ung-
verska þinginu í Pozony, þar
sem Bratislava er nú, í bylt-
ingunni 1848. Þar var lagður
grundvöllur að nútímaríki í
Ungverjalandi. Eftir bylting-
una í París í febrúar 1848 og í
Vín skömmu síðar ákváðu
frjálslyndir þingmenn í neðri
deild ungverska þingsins að
bægja frá uppþotum með
lagasetningu sem ýtti undir
endurbætur og breytingar í
átt til aukins þjóðfrelsis.
Leiðtogi frjálslyndra, La-
, os Kossuth, kynnti frum-
varpið fyrir
þinginu en
markmið þess
var að vernda
völd aðalsins
um leið og
lagður yrði
grundvöllur
að sjálfstæði
ungverska rík-
isins sem að-
eins yrði sam-
einað austur-
ríska keisaradæminu að
nafninu til og var frumvarpið
samþykkt að lögum af báð-
um deildum þingsins. Sam-
kvæmt lögunum skyldi undir-
konungur sitja í Búdapest og
taka ákvarðanir án þess að
bera þær undir þingið í Vín,
Ungverjar skyldu ráða þjóð-
varðliðinu, ríkisfjármálum.
Leiðtoginn
Kossuth
Fiskurinn er merki marsmánaðar (19. febrúar - 19.
mars). Árstími fisksins er í lok vetrar þegar veður
er umhleypingasamt. Þetta endurspeglast í eðli
fisksins, £ margbrotinni og
misjafnri skapgerð. Tími fisks-
ins er biðtími. Vorið er að
nálgast og með því fyrirheit
sumarsins en enn ríkir þó vet-
ur. Á þessum tíma er litið yfir
öxl yfir liðinn vetur, um leið
og horft er fram á við. Þetta
birtist í því að fiskurinn leitast
við að hafa yfirsýn yfir mál og
hugleiða þau í stærra sam-
hengi.
Fiskurinn er í eðli sínu til-
finningavera og getur verið
margslunginn í tjáningu, að
því er Gunnlaugur Guð-
mundsson stjörnuspekingur
segir. Fiskurinn er oft fjölhæfur og hann hefur sterkt
ímyndunarafl. Sagt er að fiskurinn geti bæði synt á móti
straumnum þegar sá gállinn er á honum en jafnframt berist
hann með straumnum þegar það hentar honum betur.
Venjulegur fiskur er ljúfur og vingjarnlegur í viðmóti. Sem
stjórnandi getur fiskurinn verið óútreiknanlegur og mis-
lyndur. Hann er næmur, oft hjálpsamur og fórnfús. Auk
listaáhuga er áhugi á andlegum málum áberandi hjá mörg-
um fiskum.
Veikleikar fisksins eru
gleymni, undansláttur og hon-
um hættir til að flýja ábyrgð.
Honum hættir til að leita á
náðir vímugjafa og hann er
stundum rótlaus. Draumlyndi
hans leiðir til þess að oft verð-
ur minna úr framkvæmdum en
áætlunum. Hann er áhrifa-
gjarn og honum hættir líka til
að gleyma sjálfum sér alger-
lega. Tilfinningaólga getur lit-
að skoðanir hans og viðhorf. Fiskurinn þarf að venja sig á
það að koma beint fram, segja það sem segja þarf, jafnvel
þótt það særi aðra.
Meðal líkamlegra veikleika fisksins eru aumir fætur, lé-
legt sogæðakerfi, erfiðleikar í sambandi við hreinsun
blóðsins og ójafnvægi í starfsemi kirtla. ímyndunarafl
fisksins leiðir til þess að þegar hann er innan um sjúkt fólk
finnst honum hann veikur sjálfur.
Þekkt fólk í fiskamerki eru: Harry Belafonte, Enrico
Caruso, Albert Einstein, Frederic Chopin, Victor Hugo,
Ted Kennedy, Rudolf Nureyev, Elizabeth Taylor, George
Washington og John Steinbeck.
FISKURINN
44 HEIMSMYND