Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 10
HEIMSMYND
UPPLJÓSTRANIR
MEDECIN ATTI MARGA VINI.. . OLI Þ. SENDIHERRA?
Albert Guömundsson undirritar heiðursskjal sem 21.
heiðursborgari Nice. Athöfnin fór fram í hátíðarsal borg-
arinnar að viðstöddum borgarfulltrúum og fleiri gestum.
Brynhildur, eiginkona hans, stendur vinstra megin við
hann en Jacques Médecin er lengst til hægri.
VAFASAMUR HEIÐUR
Ibúum borgarinnar Nice í Suður-Frakklandi
fannst þeir illa sviknir þegar það fréttist að
borgarstjórinn þeirra, Jacques Médecin, hefði
sagt af sér símleiðis á ferðalagi í Japan fyrir
nokkrum vikum. Médecin, sem hafði gegnt
borgarstjóraembættinu í 25 ár, var búinn að
skipuleggja flótta sinn og fluttur til Argentínu
þegar fréttirnar fengust staðfestar.
Flótti Médecins undan skattayfirvöldum og
yfirvofandi ákærum um valdamisferli batt enda
á sextíu ára veldi Médecinættarinnar í Nice.
Faðir hans, Jean Médecin, komst til valda á
þriðja áratugnum og ríkti í 25 ár, sem fyrir-
greiðslupólitíkus. Sonurinn Jacques lét fáa vita
af fyrirhuguðum flótta sínum. Vinir hans voru
ekki látnir au parfum, finna lyktina af fyrirætl-
ununum. Einn kunningja hans er sendiherra Is-
lands í París, Albert Guðmundsson. En
Médecin gerði hann að 21. heiðursborgara Nice
fyrir nokkrum árum. Albert bjó þar um margra
ára skeið, eins og kunnugt er, þegar hann var í
atvinnumennsku í fótbolta.
Médecin átti marga vini, segir breska blaðið
Guardian, og mörgum finnst þeir illa sviknir
núna. „Eg græt vegna borgarstjórans míns í Ar-
gentínu," segir einn þeirra. Peir sem eru reynd-
ari r pólitík þykjast hins vegar vart þekkja
hann.
Fyrir utan opinberar ákærur er Médecin
ásakaður um náin tengsl við undirheimana en
slík öfl eru sterk á frönsku Rívíerunni og hafa
verið í aðstöðu undanfarna áratugi til að koma
ár sinni vel fyrir borð.
Nice er fimmta stærsta borg Frakklands.
Uppbygging og framkvæmdir hafa verið miklar
í tíð Médecins og er borgin rekin með miklum
halla. Ekki hafa fengist skýringar á miklum
Médecin á Rívíerunni með seinni eiginkonu sinni, llene,
sem hann sagði að væri svo rík að þau hefðu getað
keypt villu í Beverly Hills þótt launin hans væru undir
skattamörkum.
fjárútgjöldum og þegar fjármálayfirvöld gerðu
rannsókn á fjárreiðum borgarstjórans fyrir ári
komu á daginn miklar fjárfestingar hans í Am-
eríku, sem hann hafði enga grein gert fyrir.
Launin sem hann gaf upp voru svo lág að hann
hafði ekki greitt skatta frá 1980. Síðari eigin-
konu sinni, Ilene Graham, kvæntist hann fyrir
tólf árum og kynnti hana fyrir betri borgurum
Nice sem ameríska auðkýfingsdóttur og átti
það að vera skýringin á mikilli villu sem hjónin
áttu í Beverly Hills í Kaliforníu. Vitað er að
frúin átti sjálf hvorki eignir né auðuga fjöl-
skyldu. En hún lýsti því hins vegar yfir að hún
væri hægri sinnaðri en Attilla Húnakóngur.
Skattayfirvöld hafa nú lagt fram bakreikning á
hendur Médecin sem hljóðar upp á fimmtán og
hálfa milljón franskra franka.
Médecin borgarstjóri hafði lengi verið undir
smásjánni hjá skattayfirvöldum sem höfðu í
huga aðferðirnar sem A1 Capone var beittur á
sínum tíma. En það tókst loks að koma honum
bak við lás og slá á skattsvikaákærum. Médecin
hefur hins vegar sloppið hingað til. Rithöfund-
urinn Graham Greene, sem býr í Antibes fyrir
utan Nice, olli miklum hávaða 1982 þegar hann
sakaði Médecin um að vera ábyrgan fyrir starf-
semi helstu glæpasamtaka Frakklands þar sem
hann veitti þeim vernd til að starfa.
Médecin skipti oft um stjórnmálaskoðanir á
ferli sínum en hann sat á þingi í 21 ár. Undir
lokin var hann orðinn öfgasinnaður hægri mað-
ur og stuðningsmaður þjóðernisflokks Jean-
Marie Le Pen.
Flótti borgarstjórans til Suður-Ameríku var
undirbúinn með löngum fyrirvara. Hann studdi
kosningabaráttu perónista í Argentínu með
dyggum fjárútgjöldum og var orðinn góðvinur
núverandi forseta, Carlos Menem, áður en
hann fluttist þangað.
MARGIR UM
HITUNA
Tveir íslenskir sendi-
herrar, þeir Haraldur
Kröyer og Hörður Helga-
son, láta af störfum innan
skamms. Haraldur hóf
störf hjá utanríkisþjónust-
unni árið 1945. Hann var
skipaður sendiherra ís-
lands í Stokkhólmi þann
1. janúar 1970 en gegnir
nú embætti í Noregi. Har-
aldur lætur af störfum 1.
febrúar næstkomandi.
Hörður Helgason sendi-
herra, sem nú er staðsett-
ur í Kaupmannahöfn,
mun hætta störfum af
heilsufarsástæðum innan
tíðar. Hörður gekk til liðs
við utanríkisþjónustuna
árið 1948 og hefur síðan
gegnt fjölda embætta á
vegum hennar.
Margir eru um hituna
eins og jafnan þegar eftir-
sóttar virðingarstöður
losna. Einn þeirra sem
hvað fastast ku hafa sótt
að hljóta sendiherranafn-
bót er sjálfur dómsmála-
ráðherrann, Oli P.
Guðbjartsson. Talsverður
urgur er þó meðal starfs-
liðs utanríkisráðuneytisins
vegna ásælni stjórnmála-
manna í sendiherrastöð-
ur. Gjarnan er þá bent á
að það sé bæði óeðlilegt
og ósanngjarnt ef litið sé á
sendiherraembætti sem
einhvers konar elliheimili
fyrir stjórnmálamenn eða
aðra. Þeir sem starfað
hafi að þessum málum í
áraraðir, eins og starfs-
menn utanríkisráðuneyt-
isins, hljóti að öllu jöfnu
að teljast öðrum hæfari til
að gegn þessum ábyrgðar-
stöðum.
10 HEIMSMYND