Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 103

Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 103
L :« b. Kristinn Gylfi Jónsson (f. 1963) við- skiptafræðinemi, í sambúð með Helgu Guðrúnu Johnson, fréttamanni á Stöð 2 (sjá Johnsonættina, HEIMSMYND, 5. tbl. 1989). c. Björn Jónsson (f. 1965), búfræðing- ur og svínabóndi í Brautarholti. d. Jón Bjarni Jónsson (f. 1967) bú- fræðingur. e. Emilía Björg Jónsdóttir (f. 1970) enskunemi við Háskóla íslands.D Jón Ólafsson. . . framhald af bls. 24 ekki í skuldbindingar nema hafa allt gulltryggt á bak við sig. En Jón hefur ekki látið sér nægja að vasast í öllum rafeindamiðlunum. Hann haslaði sér líka völl í kvikmyndagerð þegar hann gerðist framleiðandi kvik- myndar Hilmars Oddssonar, Eins og skepnan deyr. Hilmar segir að samskipti þeirra hafi verið slétt og felld, „hundrað prósent kórrétt“. Hann segir: „Jón reyndist hafa traust í bankakerfinu og hann átti heiðurinn af því að selja al- heimsmyndbandarétt að myndinni til Columbia Pictures. Við fengum eitthvað um átján þúsund áhorfendur á myndina hér heima og fjárhagsdæmið gekk ekki upp. En með þessu náðum við myndinni á slétt, gerðum upp laun til allra, greidd- um allt upp og enginn fór með skulda- hala á bakinu út úr þessu, en það er nokkuð óalgengt með íslenskar myndir. Ég fór með myndina á sýningar á kvik- myndahátíð í Los Angeles og kom þá við í Columbia í sambandi við myndbanda- samningana og var tekið eins og kon- ungi. Jón virtist hafa staðið sig vel gagn- vart þeim og njóta trausts. Ég vann líka með honum að gerð plötu með lögum úr myndinni. En hann er harður bisness- maður. Mér fannst erfitt að standa við hliðina á honum við gerð samninga og vildi ekki þurfa að sitja á móti honum við samningaborð. Hann er það slunginn og framsýnn. Hann notaði þetta sam- starf okkar til að kynna sér alla hluti vel og ég yrði ekki hissa, þótt hann ætti eftir að halda áfram á þessu sviði. Eins og ég sé hann er hann að mörgu leyti ameríski draumurinn eins og hann rætist á Islandi, draumurinn um drenginn sem upphefur sig af götunni til æðstu metorða.“ Vissulega hefur Jón Olafsson hafist upp af götunni. Hún er harður skóli þar sem handalögmálið ríkir og olnbogarnir duga vel til að ryðja sér braut. Harkan og tillitsleysið hefur dugað honum vel í heimi plötusnúðsins og myndræmunnar. En hann hefur færst upp um deild. Hann er nú áhrifamaður á fjölmiðli sem hefur ómæld áhrif á þjóðmálaumræðuna. Þar eru gerðar aðrar kröfur. Þar er krafist næmrar siðgæðisvitundar, góðs uppeldis, menntunar og víðsýnis, umburðarlyndis gagnvart skoðunum annarra, virðingar fyrir öðrum og varanlegri gildum en pen- ingum. Er hann á alveg réttri hillu?CI HEIMSMYND 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.