Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 32
NÓVEMBER
1990
Steingrímur Ólafsson hefði ekki fæðst þann 9. nóvember árið 1965 hvar og hvenær
hefði hann viljað fæðast?
| í London upp úr 1950.
Hvers vegna?
Þá hefði ég náð bítla- og blómaskeiðinu sem unglingur, ekki sem kornabarn.
Inn í hvernig aðstæður hefðir þú viljað fæðast?
Ég hefði alveg verið til í að vera forríkur spilltur aðalsmaður á mektartímum Rómarveldisins.
Svona er ég nú innrættur.
Hvaða persóna í sögunni hefðir þú helst kosið að vera?
Michelangelo, því þá hefði ég vit á list.
Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti?
Konunni minni finnst Mel Gibson bæði sætur og sexý, en ég segi bara Jón afi.
En innræti?
Mömmu og pabba, heiðarlegasta og besta fólk í heimi.
Hvaða kvenmaður í sögunni heillar þig mest?
Ég ætti að segja hún amma mín miðað við allar sögurnar hennar en ég segi Sigyn Jónsdóttir,
guðdóttir mín.
Hvaða húsgögn viltu helst hafa í kringum þig?
Dýr, fín og stór. Þau þyrftu líka að vera þvottekta og með kattahársfráhrindandi yfirborði.
Hvernig slappar þú af?
Ég slekk ljósin, kveiki á kertum og reykelsi, opna rauðvínsflösku, set góða bítlaplötu á fóninn
og hugsa.
Hver er besta bókin sem þú hefur lesið?
Góði dátinn Svejk, eftir Jaroslav Hasek og bankabókin mín eftir að konan tók við fjármálunum.
Hver er uppáhalds hjómplatan þín?
Þarna setur þú mig í bobba. Ætli ég segi ekki Abbey Road með Bítlunum.
Hvert er besta leikritið sem þú hefur séð?.
Dýrin í Hálsaskógi, ekki minnsti vafi. Ég kann piparkökusönginn utanað og syng hann reglulega.
Þá voru persónurnar, Lilli klifurmús, Mikki refur og bakaradrengurinn mér ógleymanlegar.
Hver er eftirminnilegasta kvikmynd sem þú hefur séð?
Clockwork Orange sem Stanley Kubrick leikstýrði. Af íslenskum kvikmyndum er það hins
vegar myndin Síðasti bærinn í dalnum eftir Óskar Gíslason.
Hvaða matur finnst þér bestur?
Rjúpan hennar mömmu, hrísgrjónagrauturinn hennar
ömmu á Akureyri, kjötbollurnar hennar ömmu
Döddu, súkkulaðikakan hennar ömmu Döddu,
kalkúnninn hennar tengdamömmu og pottrétt-
irnir hennar konunnar minnar. Annars heitir
hún Linda Sif og vill alls ekki ganga undir nafn-
inu konan hans Steingríms.
Hverju sérðu mest eftir?
Græna horinu III, græna fólksvagninum sem
dó síðast. Þetta var þriðji fólksvagninn sem ég
hef átt.
Hvaða hlut vildir þú helst eignast?
Tölvu.
Hverjir eru helstu kostir þínir?
Viljastyrkur, þolinmæði, tryggð og
ást.
En veikleikar?
>• Hversu mikill béfaður fýl-
upoki ég get verið og
kann ekki að fara
með peninga.
Hver er ánægju-
legasta stundin
í lífi þínu?
Til þessa er
það þeg-
þungunarprufan
sýndi fjólublátt. ^
Við hvað ertu hrædd
ur:
Tannlækna og málvillur.
Hverjar eru þær rómantískustu
aðstæður sem þú getur hugsað þér?
Kósí kvöldverður með kertum og
kossum og það að versla í Hagkaup
á föstudögum.
Ef þú ættir eina ósk hvers myndir þú
óska þér?
Að væntanlegt barn mitt verði heil-
brigt og hamingjusamt.
j
32 HEIMSMYND