Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 108
The WorldPaper
LÍFTÆKNI
Framhald af forsíðu
Nýjar vörur fyrir landbúnað, um-
hverfishreinsun, orkuframleiðslu og
námavinnslu og á fjölmörgum öðrum
sviðum eru á ýmsum stigum rannsókna
og þróunar. Gerum okkur í hugarlund
möguleikana á að fjarlægja olíumengun
eða til að dæla meiri olíu upp úr olíu-
lindum. Bætum við þetta möguleikun-
um á nýjum lyfjum við sjúkdómum eins
og lifrarbólgu, alnæmi, krabbameini eða
gigt og þá verða framtíðaráhrif líftækn-
innar Ijósari.
Næsta stóra bylgjan í áhrifum líftækn-
innar á líf okkar verður mjög hklega á
sviði landbúnaðarins. Líftæknin opnar
möguleika á að framleiða jurtir með
ýmsum mismunandi eiginleikum allt frá
viðnámsþrótti gegn þurrkum til þess að
aðlaga vöxtinn að hentugri ræktunar-
tíma. Verið er að þætta saman erfðavísa
til að fá fram tómata með hraðari
þroskamöguleikum og meira geymslu-
þoli. Örverur framleiddar með erfða-
tækni eru í þróun til að fá fram aukið
frostþol plantna og til að veija tré sjúk-
dómum. Líffræðilegir skordýra- og ill-
gresiseyðar hjálpa til að verja umhverfið
hættunni sem stafar af þeim efnafræði-
legu eyðum sem nú eru tíðkaðir.
Framrás
líftækninnar
Nýjar og framtíðarafurðir
úr tæknirannsóknastofunni
Atvinnugrein Not
Landbúnaður Afurðameiri dýr við-
nám gegn sjúkdómum
Efnaiðnaður Vítamín, amínó-sýrur,
hvatar
Sjúkdóms- Gegn alnæmi, lifrar-
greiningar bólgu, þungun,
hjartasjúkdómum
Nú WR Grace, American
Cyanamid, Eastman
Kodak, Embrex
Nú Monsanto, Genex,
Proctor and Gamble,
Bayer, Takeda, BASF
Nú Abbot, Baxter, Centocor,
Johnson & Johnson,
Immunotech, Diagnostics
Pasteur, ICI
Lyf tPA, vaxtarhormón,
interferon, insúlín
Nú Genentech, Lilly,
Amgen, Merck,
Hoffman-La Roche
Rafeindir Lífnemar, lífraftækni, lífkísilflísar 5 ár Gentronix Laboratories, Westinghouse, NEC
Orkutækni Líforkugjafar, alkó- hól, olíuupptaka 5-10 ár Pennwalt, Amoco, Petroferm, Ingene, Triton Biosciences
Umhverfi Skólphreinsun, eitur- efna- og olíuhreinsun 5 ár Biospherics, ESE Biosciences, Monsanto, Dow Chemical, EnSys
Jurtarækt Aukin uppskera, sjúk- dóms og þurrka- viðnám, áburður 5-10 ár Monsanto, Ciba-Geigy Plant Genetic sciences, Pioneer HiBred,Japan Tobacco, Weyerhouser
Mótefni Gegn lifrarbólgu, Nú Merck, Chiron, alnæmi, hundaæði Micro-geneSys, Immunomed, Connaught HEIMILO: M. DIBNER OG R.S. WHITE
Líftæknin er að byrja að hafa afger-
andi áhrif á húsdýraræktina. Hormón,
sem þegar finnast í náttúrunni, geta
með aðstoð líftækninnar aukið mjólkur-
framleiðslu kúa um 25 prósent, dregið
úr fóðurþörf grísa um 25 prósent og
aukið á heilbrigði og hraðari vöxt ým-
issa fisktegunda. Fyrir dýralækningamar
er líka verið að þróa mótefni til bólu-
setninga gegn ýmsum sjúkdómum eins
og skitu og hrossasótt.
í framtíðinni getum við líka búist við
að sjá dýr, sem tekið hafa stakkaskipt-
um til hins betra. Ef hægt er tæknilega
að fá kú eða gyltu til að framleiða meiri
hormón eða auka þol sitt við sjúkdóm-
um, mundu framleiðslumöguleikar
bænda aukast og kostnaður þeirra á
sama tíma dragast saman.
Líftæknin á möguleika á stóru hlut-
verki í orkuiðnaðinum. Örverur, sem
hafa áhrif á samloðun olíunnar, geta
brugðið sér í allra kvikinda líki, auð-
veldað til dæmis að að ná auknu magni
af olíu upp úr olíubrunnum eða aukið
rennslishraða olíunnar í pípum. Aðrar
örverur geta hreinsað upp óhreinindi,
eins og brennistein úr kolum, eða kom-
ið að notum við að hreinsa upp lestir
olíutankskipa.
Miklar og víðtækar umræður hafa
orðið um efnahagsleg áhrif nýrra afurða
líftækninnar. BST nefnist vaxtarhormón
í kúm, sem eykur á mjólkurframleiðslu
þeirra og hefur þegar verið viðurkennt
til sölu í Bandaríkjunum. Pótt þessari
vöru sé endanlega ætlað að draga úr
kostnaði við mjólkurframleiðsluna, hafa
ýmsar spurningar vaknað um hvernig
hún muni endanlega verka á afkomu
einstakra bænda. Skýrslur hafa verið
gefnar út, sem gefið hafa sterklega til
kynna að BST kunni að vera skaðvænt
heilsu manna, en af ýmsum taldar
hlaðnari tilfinningum en staðreyndum.
Ríkisstjórar tveggja mjólkurfram-
leiðsluríkja innan Bandaríkjanna,
Wisconsin og Minnesota, hafa gefið út
bann til eins árs við sölu BST. Ahyggjur
af heilbrigði og efnahag hafa líka leitt til
banns á BST innan Evrópubandalagsins
þar til í nóvember 1991. Markaðssetn-
ingarvandi BST er líftækniiðnaðinum
holl lexía - að tilfinningalegur þrýsting-
ur og tortryggni frá almenningi getur
haft mikil áhrif á atvinnu- og fram-
færslumöguleika þeirra sem við hann
vinna.
Margvíslegar spumingar vakna upp
við genasplæsingu í dýrum og þótt feit-
ari grís eða hraustur hestur veki ekki
miklar deilur þessa stundina má búast
við að fjandinn verði laus þegar að því
kemur að við getum splæst saman
mannleg gen á sama eða svipaðan hátt.
Mark D. Dibner Ph. D. er forstöðumaður Upplýs-
ingadeildar um líftækni við Líftæknimiðstöð Norð-
ur-Karólínu.
108 HEIMSMYND