Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 104
GARÐAR ÓLAFSSON
Úrsmiður - Lækjartorgi
CARTIER
18 karata gullhringur
Sá eini sanni
CARTIER
Panthére quartz
-ICELAND-
FUlili
-SHOPPING-1
Þar sem rásir tímans fara um
Draumalandið, eru með jöfnu millibili
eins konar skiptistöðvar þar sem hœgt er í
draumi að skoða lífshlaup sálar, allt frá
upphafi til loka. Hér er einn lítill en
skemmtilegur draumur úr svona
skiptistöð, pví hann spannar í látleysi
sínu, fortíð (hugsanlega miðaldir), nútíð,
sem er líkt og í biðstöðu (status quo) og
framtíð sem er 1992 og þar á eftir.
Draumurinn er frá konu í Keflavík og
hana dreymdi petta litla œvintýri
síðastliðið vor.
DRAUMALANDIÐ
DRAUMUR. Mér fannst ég vera stödd í ókunnugri borg. Þetta
var að nóttu til og umhverfið var dimmt og ömurlegt. Þarna var
mikið af dökkklæddu fólki sem eigraði fram og til baka í ein-
hverju tilgangsleysi, að mér fannst. Það var eins og það væri undir
annarlegum áhrifum. Mér leist ekki sem best á að vera innan um
þetta fólk. Eg var hálfhrædd og þar að auki vissi ég ekki hvar ég
var, en vissi þó að ég var að leita að einhverju húsi og þetta hús
ætlaði ég að finna, en hafði ekki nokkra hugmynd um hvert ég
ætti að fara. Þá vill það mér til happs að ég hitti mann sem ég
kannast við og segi honum af vandræðum mínum, hann segir mér
í hvaða átt ég eigi að fara. Ég geng nú góðan spöl, og kem svo að húsi, sem mér
finnst vera húsið sem ég leita að. Þetta var skuggalegt hús og féll alveg inn í þetta
ömurlega umhverfi. Þar sem ég stend fyrir framan húsið, finnst mér jörðin opnast
fyrir fótum mér og er ég lít niður um gatið, sé ég lítið og afskaplega fallegt þorp.
Húsin voru öll hvít með rauðmáluðum þökum og það var glampandi sól. Ég segi þá
við sjálfa mig: „Þetta er bara eins og í ævintýri." Þá finn ég að eitthvert ósýnilegt afl
togar í mig og ég sogast að gatinu. Satt best að segja langaði mig niður en var samt
hrædd og streittist á móti. Það fór þó svo að þetta afl hafði yfirhöndina og ég féll nið-
ur um gatið, þegar ég fell loka ég augunum og hugsa um leið „Þetta verður mín
hinsta stund.“ Þegar ég svo opna augun aftur, verð ég mjög hissa því fallið var mjög
lítið og ég var ekki stödd í þorpinu, heldur gryfju sem var sneisafull af gullsandi og í
sandinum stóð skófla.
RÁÐNING. Þessi draumur er ögn skrýtinn, fyrir þær sakir að hann felur í sér þrjár
hliðar tilverunnar, fortíð, nútíð og framtíð. Þú virðist í fyrstu fara í draumi sálförum
til kaldrar fortíðar, þar sem frumstæð öfl eru á ferð og dauðinn ræður ríkjum, en að
leita til þess sem var er ekki alltaf til frama, síst af öllu í ríki dauðans. Því kemur An-
imus, svefngengill þinn og leiðir þig út úr tómarúminu og inn í húsið sem geymir
leyndardómana, og húsið í þessu tilfelli ert þú sjálf, þessi fyrsti partur vísar einnig til
veikrar sjálfsímyndar um það leyti sem þig dreymir drauminn og jafnframt hræðslu
við óörugga framtíð. En í núinu, nú í dag, ertu ósátt við þann veikleika þinn, að þú
ráðir ekki eigin framtíð, eða hafir ekki dug til að taka af skarið. Animus, vinur þinn,
er á sama máli og fyrst þú gerir ekkert, tekur hann til sinna ráða, hann leiðir þig inn í
ókomna framtíð þína, þar sem hann opnar þér fjárhirslur þíns innri auðs, þangað get-
ur þú sótt þrek og visku fyrir núið sem verður framtíð, og eins og draumurinn bendir
þér ótvírætt á, er af nógu að taka og best að byrja strax til að vera vel undirbúin, því
eftir 1992 þarftu á öllum spöðum að halda.D
eftir KRISTJÁN FRÍMANN
104 HEIMSMYND