Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 85
Ólöf Pálsdóttir og'Sigurður Bjarna-
son
Dr. Jens Pálsson
sendiherra ásamt börnum sínum
Hildi Helgu, nú fréttaritara Ríkis-
útvarps, og Ólafi Páli.
Ólöf Pálsdóttir
mannfræðingur sem gerði
meðal annars fjöldarann-
sóknir á Þingeyingum.
myndhöggvari.
Frakklandi og hlaut verðlaun fyrir. Stefán var mikill bóka-
safnari og svo fjölfróður að í vinahópi var hann gjarnan kall-
aður Stóra lexíkonið. Ekkja hans er Guðný Kristrún Níels-
dóttir af ætt Sveins Níelssonar (sjá HEIMSMYND, 9. tbl.
1989). Börn þeirra eru þrjú:
a. Páll Ólafur Stefánsson (f. 1942) flugstjóri í Reykjavík,
kvæntur Halldóru Viktorsdóttur, framkvæmdastjóra Fróða hf.
Dóttir hans fyrir hjónaband er Guðný Pálsdóttir (f. 1966)
enskunemi við Háskólann en dóttir þeirra Unnur Guðrún
Pálsdóttir (f. 1970) nemi.
b. Soffía Stefánsdsóttir (f. 1945) kennari við Melaskólann í
Reykjavík, gift Georg Ólafssyni verðlagsstjóra. Eldra barn
þeirra er Ólafur Georgsson (f. 1967) flugnemi í Bandaríkjun-
um.
c. Hildur Stefánsdóttir (f. 1946) hjúkrunarfræðingur í
Reykjavík, gift Guðjóni Ólafssyni, fræðslufulltrúa í Reykja-
nesumdæmi. Elsta barn þeirra er Gre'ta Guðjónsdóttir (f.
1968) nemi.
2. Ingibjörg Pálsdóttir (f. 1916) listmálari í Reykjavík. Ekki
hefur mikið borið á Ingibjörgu, miðað við yngri systur henn-
ar, en hún þykir þó hæfileikaríkur listamaður. Sýning á verk-
um hennar var haldin fyrir fáeinum árum á Gallerí Borg. Hún
giftist Pétri Eggerz sendiherra, síðast í Bonn í Vestur-Þýska-
landi (sjá Gautlandaætt, HEIMSMYND, 10. tbl. 1989). Börn
þeirra eru:
a. Solveig Eggerz (f. 1943) doktor í bókmenntum, háskóla-
kennari í Washington, gift Allan C. Brownfield, lögfræðingi
og blaðamanni.
b. Páll Ólafur Eggerz (f. 1951), doktor í raunvísindum, bú-
settur í Munchen, kvæntur þýskri konu.
3. Þorbjörg Pálsdóttir (f. 1919) myndhöggvari í Reykjavík.
Hún hefur tekið þátt £ fjölmörgum samsýningum og hélt með-
al annars einkasýningu á Kjarvalsstöðum fyrir fáeinum árum.
Maður hennar er Andrés Asmundsson læknir, sérfræðingur í
skurðlækningum, kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Börn
þeirra sem upp komust eru:
a. Stefán Andrésson (f. 1953, kjörsonur) kennari í Reykja-
vík, kvæntur Þórunni Andrésdóttur.
b. Katrín Andrésdóttir (f. 1953, kjördóttir) íþróttakennari,
gift Gunnari Kristjánssyni bankamanni.
c. Þóra Andrésdóttir (f. 1957) hjúkrunarfræðingur, gift
Gunnari Roach.
d. Andrés Narfi Andrésson (f. 1958) arkitekt í Reykjavík.
e. Þorbjörg Andrésdóttir (1960-1981).
4. Ólöf Pálsdóttir (f. 1920) myndhöggvari í Reykjavík. Hún
lærði myndlist í Kúnstakademíunni í Kaupmannahöfn og
hlaut þar gullmedalíu 1957. Ólöf er einn af þekktustu mynd-
listarmönnum Islendinga og hefur hlotið fjölmargar viður-
kenningar og tekið þátt í sýningum víða um lönd. Hún er
heiðursfélagi í Konunglega breska myndhöggvarafélaginu.
Maður Ólafar er Sigurður Bjarnason frá Vigur lögfræðingur.
Hann var lengi þingmaður og ritstjóri Morgunblaðsins en síð-
ar sendiherra í Kaupmannahöfn og London (sjá Heiðarætt,
HEIMSMYND, 2. tbl. 1990). Börn þeirra eru:
a. Hildur Helga Sigurðardóttir (f. 1956) fréttaritari Ríkisút-
varpsins í London, áður blaðamaður á Morgunblaðinu á árun-
um 1980 til 1985. Hildur Helga las sagnfræði í Cambridgehá-
skóla 1985 til 1988 en stundar nú framhaldsnám í menningar-
sögu í London ásamt fréttamennskunni.
b. Ólafur Páll Sigurðsson (f. 1960) skáld. Eftir hann hafa
komið út Múlbandamálið (Gögn) árið 1983 og ljóðabókin
Steiktir svanir 1989. Hann stundar nú háskólanám í London í
bókmenntum og hugmyndasögu.
5. Jens Ó. P. Pálsson (f. 1926) mannfræðingur í Reykjavík.
Hann nam mannfræði og fleiri greinar við Uppsalaháskóla í
Svíþjóð, Harvard og Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum og
Oxford á Englandi en lauk doktorsprófi í mannfræði frá Gut-
enbergháskóla í Vestur-Þýskalandi árið 1967. Dr. Jens var
styrkþegi Alexander von Humboldt-stofnunarinnar í nokkur
ár. Hann hefur framkvæmt mannfræðirannsóknir víða um
heim og meðal annars á íslendingum í samvinnu við erlendar
stofnanir. Frægar urðu fjöldarannsóknir hans á Þingeyingum
um árið. Jens er félagi í ýmsum erlendum vísindafélögum og
var á sínum tíma kjörinn í heiðursfélag stúdenta í Kaliforníu
og Phi Beta Kappa (eins þekktasta heiðursfélags bandarískra
vísindamanna). Hann hefur verið forstöðumaður Mannfræði-
stofnunar Háskóla íslands frá 1975. Kona hans er Anna Kand-
ler mannfræðingur frá Mainz.
LÆKNIR í AMERÍKU
Jón Ólafsson Foss (1888-1922) læknir, meðal annars á Sval-
barða og síðast í Ameríku, var annað barn séra Ólafs og Ingi-
bjargar í Hjarðarholti sem upp komst. Kona hans var Elísabet
Lára Kristjánsdóttir kaupmaður í Reykjavík, eigandi Líf-
stykkjabúðarinnar (sjá Gautlandaætt, HEIMSMYND, 10. tbl.
1989). Dóttir þeirra:
HEIMSMYND 85