Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 12
UPPLJÓSTRANIR
FLOTTI HLJOPILIÐIÐ ... GRUPPUPIUR ... AFRAM STJORNARFORMAÐUR?
HÆTTUR VIÐ AÐ SELJA
Spurst hefur að Sigurður Helgason eldri hafi hætt við að
selja 100 milljón króna hlut sinn í Flugleiðum. Hefur því
verið haldið fram að ástæða þessara snöggu sinnaskipta Sig-
urðar sé sú að honum hafi verið veitt vilyrði fyrir áfram-
haldandi setu í stóli stjórnarformanns Flugleiða. Víst er að
margir harma þessa ákvörðun Sigurðar því hlutabréf í Flug-
leiðum hafa til skamms tíma þótt hin besta fjárfesting og
færri fengið en vildu.
SKURKAR AÐ
VINUM
Afrakstur samstarfs Silju
Aðalsteinsdóttur rithöfundar
og Bubba Morthens tónlistar-
manns lítur senn dagsins ljós,
en þau hafa í sameiningu
unnið að því að skrifa nokk-
urs konar ævisögu poppgoðs-
ins. Margir kynnu að spyrja
hvort brunnurinn væri svo
þurrausinn að þrautalending-
in væri að skrifa ævisögu þrí-
tugs manns. Silja lætur slíkar
aðfinnslur ekkert á sig fá en
bendir þess í stað á það sann-
leikskorn sem í því felst að
tvítugur maður geti hafa lifað
ríkara lífi en sá áttræði sem
ekki hefur hreyft sig frá
sömu hundaþúfunni allt sitt
líf. „Það sem kom mér hvað
mest á óvart þegar við vorum
að vinna bókina var einmitt
það hversu ríku lífi ekki eldri
maður en Bubbi hefur lifað.“
Ýmislegt er látið fjúka í
bókinni, sem margir eiga ef-
laust eftir að fetta fingur út í.
Silja bendir á að það hafi
ætíð verið siður Bubba að
skafa ekki utan af hlutunum,
jafnvel þótt það kunni að
koma við kaunin á ýmsum. I
bókinni lýsir Bubbi til dæmis
kynnum sínum af undirheim-
um Reykjavíkurborgar og
segir þá meðal annars að
margir skúrkar bæjarins hafi
verið kunningjar sínir um
árabil. „Það er ómögulegt að
segja til um hvernig líf Bubba
hefði þróast ef tónlistin hefði
ekki frelsað hann frá því lífs-
mynstri sem hann virtist orð-
inn flæktur í,“ segir Silja.
Hún bendir þó á að hann
hefði eflaust einnig orðið
góður á því sviði, eins og í
öðru sem hann tekur sér fyrir
hendur, hefði hann ílengst í
þessum hópi.
GLEYMT 0G
GRAFIÐ
Ekkert hefur heyrst né
spurst til tímaritsins 2000 síð-
an fyrsta tölublað þess kom
út með miklum látum í byrj-
un sumars. Blaðinu, sem er í
stóru broti, þykir svipa mjög
til bandaríska tímaritsins Int-
erview sem var hugarfóstur
listamannsins mikla Andy
Warhol. Gripið var til mjög
nýstárlegra aðferða við að
kynna tímaritið þegar það
kom út en því var meðal ann-
ars dreift til unglinga sem
voru á gangi um miðbæ
Reykjavíkur að kvöldlagi.
Útgáfustjórn 2000 verst allra
fregna um framtíðaráform
tímaritsins og hverjar viðtök-
ur það hlaut hjá lesendum.
Einhver flótti virðist þó hafa
hlaupið í liðið því tveir af
þeim fimm sem skipa útgáfu-
stjórn þess hafa haldið utan
en ekkert fæst uppgefið um
það hvort þeir sem heima
sitja hyggist halda útgáfu
tímaritsins áfram.
Sigurður Helgason, hættur við að
selja sinn hlut.
Silja Aðalsteinsdóttir.
KVENHYLLI
Hljómsveitin Rikshaw, sem nú hefur starfað í rúm fimm
ár, gerir mikinn usla meðal kvenþjóðarinnar hvar sem hún
kemur. Spurst hefur að hópar stúlkna hafi elt hljómsveitar-
meðlimina frá Reykjavík til Vestmannaeyja þegar þeir
tróðu þar upp undir nafninu Loðin rotta fyrir skemmstu.
Þetta mun vera þekkt fyrirbæri erlendis en þar hafa stúlk-
ur, sem elta popphljómsveitir stað úr stað, fengið viður-
nefnið groupies sem gæti útlagst grúppupíur á slæmri ís-
lensku. Að sögn kunnugra láta hljómsveitarmeðlimirnir,
Richard Schobie, Sigurður Gröndal, Ingólfur Guðjónsson
og Sigfús Ottósson, sér vel líka aðdáun kvenþjóðarinnar.
Lítið er þó vitað hvort kvenhylli hljómsveitarmeðlima skil-
ar sér í aukinni hljómplötusölu en ný plata frá þeim, Angels
and Devils, er væntanleg þann 15. nóvember. Öll lögin á
nýju plötunni eru frumsamin með enskum textum. Ástæða
þessa er að sögn söngvara hljómsveitarinnar, Richards, sú
að enn blundar í þeim félögum draumurinn um að koma
tónlist sinni á framfæri erlendis.