Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 109
The WorldPaper
LÍFTÆKNI
Siðfræði leikja
með gen
Verða krakkarnir stœrri?
Eftir Carol Ezzell
Toronto, Kanada
Aðeins lítill hópur fólks mótmælti
fyrstu tilraun í genameðferð í september
síðastliðnum þar sem fjögurra ára stúlka
með lífshættulegan sjúkdóm var með-
höndluð þótt litlar vonir væru bundnar
við árangur. Tilraunameðferðin var
gerð á bandarísku heilbrigðisstofnuninni
og var það í fyrsta skipti sem genetískri
meðferð var beitt á manneskju með
erfðasjúkdóm.
Vísindamennirnir plöntuðu nýju geni
í barnið sem þjáðist af sjaldgæfum
erfðagalla sem varð þess valdandi að
hún gat ekki varist eðlilegu smiti. Þessi
meðferð vakti upp spurningar hjá lög-
fræðingum, siðfræðingum og guðfræð-
ingum víða um heim sem óttast að vís-
indamenn geti í framtíðinni misnotað
erfðavísindin og reynt að hafa áhrif á
vöxt, greind og hæfileika.
Nokkrir vísindamenn við bandaríska
háskóla eru þegar farnir að gæla við
hugmyndina að laga gölluð gen í fólki.
Þessar siðfræðilegu spurningar snerta
ekki eingöngu erfðavísindin. Læknar í
Svíþjóð, Mexíkó og Bandaríkjunum eru
byrjaðir að græða efni úr heilum fóstra,
sem hefur verið eytt, í heila fólks sem
þjáist af Parkinsonsveiki til að reyna að
stemma stigu við frekari hrömunaráhrif-
um. Þessar tilraunir hafa ekki borið
mikinn árangur en hafa vakið mikla
reiði fólks sem er andvígt fóstureyðing-
um.
Carol Ezzell er yfirmaður Washingtondeildar
BioWorld sem er fréttaþjónusta um líftækni.
Á síðasta ári hófst alþjóðlegt rann-
sóknarverkefni sem miðar að því að
finna lykilinn að genasamröðuninni.
Þessi rannsókn á erfðamengi mannsins
(sem kostar Bandaríkin ein 3 milljarða
dala næstu 15 árin) mun leiða til þess að
vísindamenn verða fljótari að staðsetja
ný gen.
Mikilvægasta spurningin í þessu sam-
bandi, að mati Nancy Wexler sem fer
fyrir siðanefnd sem er ráðgjafi þessa
rannsóknarverkefnis, er hvernig upplýs-
ingarnar verða notaðar. Wexler er
taugasálfræðingur og hefur varið megn-
inu af sínum starfsferli í rannsóknir á
Huntingtons-veikinni, ólæknanlegum
arfgengum heilasjúkdómi sem veldur
hrörnun og vitstoli og leiðir til hægfara
dauða. Þessi sjúkdómur liggur í ætt
Wexlers en hún vill ekki láta rannsaka
sig þrátt fyrir þá staðreynd að til eru
áreiðanleg próf á þessum erfðagalla.
Wexler segir það brjóta í bága við alla
siðfræði að þróa genapróf út frá þeirri
þekkingu sem fæst úr rannsóknarverk-
efninu þar til lækning er fundin. „Fólk
verður að hafa von um bata,“ segir hún.
Möguleikinn á því að skipta út gölluð-
um genum eða bæta inn þar sem á vant-
ar getur breytt þessu öllu en vekur einn-
ig upp siðfræðilegar spurningar með
auknum líkum á „sérhönnuðum börn-
um“. En til að koma í veg fyrir slíkt rík-
ir stöðvun á alþjóðavettvangi í með-
höndlun gena í sæði og eggjum.
En Jeremy Rifkin, yfirmaður hag-
fræðistofnunar í Washington, hefur
enga trú á því að vísindamenn þurfi að
meðhöndla sæðis- eða eggfrumur í gena-
meðferð á sjúkdómum sem vitað er nú
að ganga í erfðir. Hann hefur hins vegar
áhyggjur af því að foreldrar framtíðar-
innar leitist við að hafa áhrif á hæð
barna sinna með því að láta planta
aukageni með vaxtahormón svo þau
verði stærri.
„Hvað ef foreldrar hafa ekki efni á
slíkri aðgerð? Eiga lágvaxin böm fram-
tíðarinnar að gjalda þess?“ spyr Rifkin.
„Kannski fá þau síður vinnu?“
The WorldPaper features fresh þerspectives from around the world on matters of global concern, apþearing monthly in English, Sþanish, Chinese or Russian editions in thefollowingþublications: ýrí ^r'f'H . f /jJ.llJÁ'Ý ; WOKÍUTIMIS 51 TTkibl m Mommai 1 .
ASIA China & the World Beijing LATIN AMERICA The News Mexico City MIDDLE EAST Jhe Star Amman
Economic Information Beijing Actualidad Económica Sanjosé USSR / Tii mboMlndiaí ~
Mainichi Daily News Tokyo Gerencia Guatemala City New Times Moscout
The Business Star Manila Estrategia Bogotá NORTH ATLANTIC Heimsmynd Reykjavik 'ov,vl '
Executive HongKong Korea BusinessWorld Seoul E1 Diario de Caracas Caracas DailyJoumal Caracas President & Editor in Chief Crocker Snow, Jr.
Business Review Bangkok E1 Cronista Comercial BuenosAires
The Nation Lahore EI Diario Noticias Asunción The WorldPaper / Vferld Times Inc.
Daily Observer Colombo La Epoca Santiago 210 Wbrld Trade Center, Boston MA 02210, USA Tel: 617-439-5400 Telex: 6817273
Business India Bombay Debate Lima Fax: 617-439-5415
Hoy Quito Volume XII, Number 10 ® Copyright World Times
HEIMSMYND 109