Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 24

Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 24
málinu og upplýsti að um þessar mundir hefði búið hjá sér bróðir sinn, Tryggvi B. Kristjánsson, og gæti hann hafa kom- ist yfir umræddan stimpil. Sá kannaðist ekkert við aðild að málinu. Leitað var álits rithandarsérfræðings, Maríu Bergmann, og taldi hún rithönd Jóns á öllum undirskriftum varðandi ávísun þessa. Hann hélt þó fast við fyrri framburð sinn. Þann 9. febrúar 1976 játaði hann hins vegar við yfirheyrslu hjá rann- sóknarlögreglunni í Keflavík. Fyrir rétti síðar um sumarið neitaði hann hins vegar algerlega að tjá sig um málið. Hann var svo dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar. Rúmu ári síðar, 22. september 1978, ritaði hins vegar hálf- bróðir ákærða, fyrrnefndur Tryggvi Kristjánsson, undir yfir- lýsingu þess efnis að hann hefði ásamt tveimur stúlkum, sem hann vissi engin deili á, gerst sekur um verknaðinn. Stúlkurn- ar fundust ekki. I framhaldi af þessari játningu Tryggva gaf Jón nýja skýrslu hjá rannsóknarlögreglunni og fyrir sakadómi Keflavíkur og neitaði algerlega öllum sakargiftum. Skýrslan frá 9. febrúar 1976 hefði ekki verið gefin af fúsum og frjálsum vilja. Hann hefði verið handtekinn að morgni þess dags í Hafnarfirði að beiðni lögreglumanns í Keflavík og fluttur suð- ur á Keflavíkurflugvöll og verið settur í fangaklefa, þar sem hann var í haldi fram eftir kvöldi og því ekki mætt til skýrslu- gjafarinnar ótilkvaddur. Er hann svo kom fyrir sakadóm Keflavíkur, 13. ágúst 1976, hafi hann ekki þorað að greina frá hinu rétta. Niðurstaða Hæstaréttar: „Þegar virt er hvernig málið liggur fyrir Hæstarétti, verður ákærði ekki sakfelldur fyrir verknað þann sem hann er ákærður fyrir. Verður honum því dæmd sýkna en sakarkostnaður lagður á ríkissjóð.“ Starfsmaður, sem verið hafði hjá saksóknara á þessum tíma, sagðist vel muna eftir þessu máli. Það væri nær einstætt að því leyti að á grundvelli þessarar framhaldsrannsóknar, hefði saksóknari fyrir Hæstarétti krafist þess að ákærði væri sýknaður af öllum fyrri kröfum ákæruvaldsins. Menn hefðu þá talið það nánast formsatriði að ljúka málinu með undirskrift- um aðila fyrir Hæstarétti, en þá hefði verið látinn fara fram munnlegur málflutningur og ekki færri en fimm hæstaréttar- dómarar dæmt í því. Þeir sem kváðu upp sýknudóminn voru Björn Sveinbjörnsson, Benedikt Sigurjónsson, Logi Einars- son, Magnús Þ. Torfason og Sigurgeir Jónsson (Hæstaréttar- dómar 1980 bls. 33). Þrátt fyrir þá framsýni Jóns Ólafssonar, sem bæði vinir og óvildarmenn vilja eigna honum, og þrauthugsaða leiki langt fram í tímann, þá skjátlaðist honum þegar hann hélt að hann næði ekki lengra í leiknum með fjölmiðlana eftir hrap Stjörnunnar. Nú var sú stund að renna upp að Stöð 2 væri „ein rjúkandi rúst“. Á nýársdag hitti hann Harald Haraldsson í Andra fyrir tilviljun. Haraldur fann frá honum þessa „hlýju strauma", eins og frægt er orðið, og þeir fóru að skipuleggja félagsskap um kaup á Stöð 2. Hann greip tækifærið. Óg innan skamms var Jón Ólafsson orðinn varaformaður á Stöð 2 og umdeildari en nokkru sinni fyrr. Einkum hefur spurningin um innherjaviðskipti orðið mörgum áleitin, það er sú staðreynd að Jón hefur umboð fyrir efni og tæki sem bæði útvarps- og sjónvarpsstöðvar nota. Hann gæti því notað aðstöðu sína til að sjá um að sínar umboðsvörur séu teknar fram yfir aðrar, sæti þar með báðum megin við borðið og byði heim ásökunum um stórfellda hagsmunaárekstra. Eg spurði Jóhann J. Ólafsson stjórnarformann hvernig með þessi mál væri farið á Stöð 2. Hann sagði að nýlega hefðu ver- ið settar um það reglur að stjórnarmenn komi ekki nálægt við- skiptum Stöðvarinnar við eigin fyrirtæki. Þeim sem innkaup hafa með höndum er falið að sjá um að viðskipti stjórnar- manna standist verðsamanburð og sé sá samanburður síðan lagður fyrir stjórn hverju sinni. Hann tók fram að þessar regl- ur hefðu ekki verið settar að neinu gefnu tilefni heldur hefði þótt ástæða til að um þetta væru skýr fyrirmæli. Eruð þið að blóðmjólka Stöðina? Nei. Formaður og varaformaður sitja í framkvæmdanefnd með sjónvarpsstjóra í sérstökum tímabundnum verkefnum og hafa 200 þúsund krónur í laun á mánuði. Stjórnarformaður hefur auk þess 100 þúsund krónur og varaformaður 75 þúsund fyrir stjórnarstörf. Þessi störf hafa verið það krefjandi að varla er tími til að sinna eigin fyrirtækjum meðan að þeim er unnið. Umtöluð áhættuþóknun er eitt prósent af andvirði skuldbind- inga, sem gengist er í ábyrgð fyrir. Á móti nýtur Stöð 2 betri kjara hjá bönkunum, þannig að fyrirtækið tapar ekki. Nýtur Jón Ólafsson fyllsta trausts stjórnarformanns? „Já, vissulega. Hann er greindur, skýr, fljótur að hugsa, vel að sér í viðskiptamálum, fjármálum og bókhaldi, lögum og regl- um um hlutafélög, skjótráður og úrræðagóður, vill hafa hlut- ina á hreinu og uppi á borðinu. Hann er kröfuharður, vili að menn standi við það sem þeir segja, notar mikið endurskoð- endur og lögfræðinga til að tryggja rétta meðferð mála.“ Aðalfundur Stöðvar 2 (eða Islenska útvarpsfélagsins hf. eins og það heitir núna eftir sameiningu SÝNar, Bylgjunnar/ Stjörnunnar og Stöðvar 2 undir einn hatt) fer fram núna um mánaðamótin. Fullyrt er að þar muni koma fram að Jón Ól- afsson njóti ekki lengur trausts þeirra sem söfnuðust undir hans merki í upphafi ársins. Það verður að koma í ljós. Ýmsum hefur fundist hin snöggu umskipti á efnahag Jóns Ólafssonar um miðjan þennan áratug meira en lítið dularfull og leitað skýringa á þeim utan fyrirtækja hans. Eg spurði Jón hvort hann gæti gefið mér lykil að þessari gátu. Hann sagði að það væri raunar engin gáta. Hann gæti gefið mér nákvæma dagsetningu: 17. október 1984, þegar hann náði samningum við Columbia. Þetta var á gósentíma myndbandanna og hann fékk hverja úrvalsmyndina af annarri, sem náðu feiknavin- sældum og veltu upp á hálfa til heila milljón. Eftir nokkra mánuði var hann kominn á Range Rover, „og ég hef haft það fyrir reglu alla tíð að kaupa ekki bíl fyrr en ég á fyrir honum.“ Ári síðar hóf hann byggingu 400 fermetra einbýlishúss við Stigahlíð og flutti inn árið 1986. „Ég staðgreiddi alla hluti og fékk við það 10 til 20 prósent afslátt. Mig minnir að húsið hafi kostað okkur 15 milljónir þá.“ Næsti búhnykkur var verslun Skífunnar í Kringlunni. „Ég fékk tvo mismunandi aðila til að gera fjárhagsáætlun fyrir þetta dæmi og báðir komust að neikvæðri niðurstöðu, leigan væri of há til að þetta gengi. Ég er ekki á móti nákvæmum arðsútreikningum, en ég ligg ekki lengi yfir þeim. Oftast treysti ég á eðlisávísun til ákvarðanatöku. Og ég ákvað að kýla á þetta. Sú ákvörðun reyndist rétt.“ Margir hafa staðfest að þessir fáu fermetrar í Kringlunni hafi reynst gullnáma, svo stóra hlutdeild hafi búðin í plötusölu á landinu. framhaldi af þessu er ekki úr vegi að líta nánar á veldi Jóns Ólafssonar. Hann rekur núna fimm fyrirtæki: Skíf- una hf., Sonic hf., Tölvukaup hf., sem á Örtölvutækni og Jón á í félagi við fleiri aðila, Bíó hf., sem leigði kvik- myndahúsið Regnbogann í fyrra af Framkvæmdasjóði og Jón keypti síðan, og Bíómyndir hf., myndbandaumboð. I kynn- ingarbæklingi frá því í júní síðastliðnum er velta þriggja fyr- stnefndu fyrirtækjanna áætluð 600 milljónir í ár á móti 480 milljónum í fyrra. Þar við bætist velta Regnbogans þannig að í ár má reikna með að samanlagt velti þessi fimm fyrirtæki ekki undir 700 milljónum króna. Þetta mundi raunar slaga nokkuð hátt upp í veltutölur Stöðvar 2, svo að eitthvað sé nefnt til samanburðar. Þessar tölur voru bornar undir Þorvald Þorsteinsson, endur- skoðanda hjá N. Manshcer hf., sem annast bókhald og upp- gjör allra þessara fyrirtækja. Hann taldi þær ekki fjarri lagi með fyrirvara um sveiflur frá ári til árs. Hann sagði góða reglu vera á fyrirtækjunum. Jón Ólafsson segir að hvergi á sínum ferli finnist fallinn víx- ill og háttsettur aðili hjá íslandsbanka fullyrðir að Jón ráðist Framhald á bls. 103 24 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.