Heimsmynd - 01.11.1990, Side 28

Heimsmynd - 01.11.1990, Side 28
austsólin skín á leirgula göngubraut. Geislar hennar M leika um leifar af háum steinsteyptum múr með lit- M ríkum teikningum. Fólk klifrar upp á veggrústirnar, M/ ; i lemur úr þeim flísar, tekur myndir hvert af öðru M gegnum göt á þeim. Kaupahéðnar sitja við borða- M •p' skrifli og selja rauða fána með myndum af Lenin og austur-þýsk herforingjakaskeiti, skreytt hamri og kvarða, við vægu verði. Þessi valdatákn sem fyrir skömmu vöktu ugg og ótta eru nú ekki annað en aðhlátursefni og barnagaman. Sic transit gloria mundi! Fyrir ári var hér óhugnanlegra um að litast. Múrinn hlykkj- aðist utan um Vestur-Berlín nærri fimmtíu kílómetra langur, líkt og ókleifur virkisveggur. Handan hans voru háar gadda- vírsgirðingar, en milli þeirra og múrsins allbreitt óbyggt svæði. Einskis manns land, baðað í kastljósum svo varðmenn með hunda og byssur gætu hindrað að nokkur kæmist þar lifandi yfir. Það tókst þó sumum, með neðanjarðargöngum og loft- belgjum, í vélarrúmum og farangursgeymslum bfla eða á heimasmíðuðum flugdrekum. Minjar um alla þá hugkvæmni eru varðveittar á safninu Checkpoint Charlie, við Friedrichstrasse, þar sem áður var þröngt hlið milli bandarísku og rússnesku hernáms- svæðanna. Þar er einnig líkan af múrnum með hátt í tvö hundruð litlum krossum, til minningar um þá sem voru skotnir til bana á flótta. Ennfremur fjöldi listaverka sem hylla frelsi og mannúð um alla veröldina. Berlín var varla annað en sveitaþorp þang- að til Friðrik mikli hóf hana til vegs á seinni hluta 18. aldar. Hún er ung í samanburði við aðrar stórborgir álfunnar, Róm, London, París, jafnvel Kaupmannahöfn. Samt, eða kannske einmitt þess vegna, er hún margar borgir í einni, endurspeglar mörg tímaskeið og örlagasveiflur. Risaleikhús þar sem slitur af tjöldum Evrópusögunnar gægjast alls stað- ar fram. Hér glumdu göturnar af sigurópum nasista uns sprengjuregn Bandamanna lagði heimsveldisdrauma þeirra í rústir. Lögreglur- íki kommúnista hefur rétt runnið sitt skeið á enda og nýr þáttur er þegar kominn á fleygi- ferð á sviðinu, tímabil neysluþjóðfélags, markaðshyggju, sölumennsku, tjáningar- og ferðafrelsis. Þessa stundina er Berlín iðandi af mönnum með svartar sýnishornatöskur sem halda austur yfir borgar- mörkin í markaðaleit, og af fólki sem streymir vestur yfir til að kaupa alls konar varning. Austur-Þjóðverjar eru auðþekkt- ir á léreftspokunum sínum, því hingað til hafa þeir farið var- hluta af plastpokagnægð okkar hinna. Þeir veifa krítarkortum sínum ótt og títt, en æðsti draumurinn er vestrænn bíll. Aður máttu þeir bíða í tíu ár eftir Trabant, enn lengur eftir Lödu. Margir koma til að setjast að vestan megin, ekki aðeins Þjóðverjar heldur einnig Pólverjar, Tékkar, Rúmenar og sí- gaunar, en ofsóknir á hendur þeim síðasttöldu hafa blossað upp eftir hrun kommúnistastjórnanna, einkum í Rúmeníu. Oft má sjá fólk bera aleiguna með sér í skjóðum og töskum. Skortur er orðinn á húsnæði. Dæmi eru um að heilar fjöl- skyldur hírist í einu herbergi, og hótel verður að panta með fyrirvara. íslensk fjölskylda sem hingað skrapp í sumar fékk hvergi næturgreiða og varð á endanum frá að hverfa og aka alla leið til Hamborgar til að fá gistingu. Leiga hefur líka rok- ið upp, ekki síst á verslunarhúsnæði. Vestræn fyrirtæki aug- lýsa grimmt eftir vörugeymslum í Austur-Berlín, svo þær eru að verða jafndýrar og í Frankfurt og öðrum helstu viðskipta- borgum vestan megin. Þá er einnig talsvert um að Vestur- Berlínarbúar sækist eftir að fá að leigja og endurbyggja gömul ættaróðöl eða villur í Austur- Berlín, sem staðið hafa auðar um árabil, vanhirtar og niðurníddar. Víða þar sem múrinn gnæfði áður má nú sjá verkamenn önnum kafna við að tengja götur og neðanjarðarbrautir milli borgarhlutanna. Næst verður símakerfið endurbætt. Línur eru Löngu áður en múrinn féll var vesturhlið hans þakin myndskreytingum þekktra sem óþekktra listamanna. Væri hægt að opna múrinn með rennilás? (mynd: Heidi Barthelmai) Gamall maður viðrar hundinn sinn á borgarmörkum. Vinstra megin sést greinilega gul göngubrautin, þar sem múrinn stóð áður. f baksýn er sjónvarpskúlan við Alexanderplatz, sem átti að vera tákn um sæluríki kommúnismans. 28 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.