Heimsmynd - 01.11.1990, Page 36
Sigurbjörn Jónsson listmálari.
LIST: Hrynjandi og rými
Litríkar og krefjandi myndir unnar
olíu einkenna listform ungs myndlist-
armanns, Sigurbjörns Jónssonar, sem
nú heldur sína fyrstu einkasýningu
hérlendis eftir margra ára list-
nám á erlendri grundu.
stóran þátt í myndum hans.
„Viðfangsefni mitt í þessum
myndum er að staðsetja pers-
ónurnar í rýminu og gefa þeim
líf og hreyfingu. Hví þá ekki að
Sigurbjörn hélt utan að loknu námi í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands og lauk masters-
gráðu í málaralist frá Parsons School í New
York eftir tveggja ára nám. Sjálfur segir Sigur-
björn að þar fyrst hafi hann fyllilega skynjað
hvað málverk er. „Mér brá óneitanlega í brún
þegar á daginn kom að námið byggðist að
mestu leyti upp á því að mála módel en eftir
nokkra mánuði lærði ég að meta gildi þessa.
Smám saman tók ég að skynja mikilvægi lita og
rýmis og samspil þessara þátta.“
Eftir að hafa lokið námi frá þessum virta og
eftirsótta listaskóla fékk Sigurbjörn inngöngu í
New York Studio School þar sem hann var
einn vetur. Skólinn sem er talsvert sér á báti
var stofnaður af listamönnum og nemendum
árið 1964 í þeim tilgangi að skapa nemendum
aðstæður til að vinna að listsköpun á svipuðum
grundvelli og málarar utan veggja skólans.
Astæðan var viss óánægja með þá stefnu sem listnám á há-
skólastigi hafði tekið. Sigurbjörn hélt síðan heim á ný árið
1988 og hefur síðan helgað sig málaralistinni.
Skipta má verkum Sigurbjarnar, sem nú eru til sýnis í lista-
safninu Nýhöfn, í tvo flokka. Annars vegar eru það fígúratívar
myndir og hins vegar abstrakt myndir. Allar eru myndirnar
unnar í olíu en þær fyrrnefndu einkennast aðallega af pers-
ónum sem staðsettar eru kringum hljóðfæri. Listamaðurinn á
enga einhlíta skýringu á því hvers vegna hljóðfæri spila svo
Viðfangsefnð er að staðsetja persónurnar í rýminu.
notast við hljóðfæri eins og hvað annað?“ segir hann. „Ég
reyni að ígrunda viðfangsefnið og líkt og rithöfundur leitast ég
við að forma verkið áður en ég hefst handa.“
Sigurbjörn segist ekki mála með tilteknar sýningar í huga.
Þá fyrst þegar efnið liggur fyrir sé tímabært að fara að huga að
því að halda sýningu. „Það er mikil og erfið vinna að mála og
ekkert sem heitir að ætla sér að verða útlærður í þessari list-
grein frekar en öðrum. Segja má að hver mynd sé skóli í sjálfri
sér.“D
• Njóttu lífsins sem nýr maður með Apollo
hár. Hárið er hluti af sjálfum þér í leik og
starfi allan sólarhringinn, í sturtunni og í
sundi.
• Allar upplýsingar í fullum trúnaði og án allra
skuldbindinga.
• Sendum myndbæklinga, ef óskaö er.
RAKARA- OG HÁRGREIÐSLUSTOFAN
HRINGBRAUT 119 S 22077
36 HEIMSMYND