Heimsmynd - 01.11.1990, Side 42
FEGURÐ: Gegn veöri og vindum
Falleg og hraustleg húð hefur lengi verið keppikefli kvenna og draumurinn um ei-
lífa œsku aldrei langt undan. Ýmis húsráð og uppskriftir að fegrunarsmyrslum hafa
gengið frá móður til dóttur kynslóð fram af kynslóð. Eða hver kannast ekki við ráð
eins og pað að þvo sér daglega upp úr mjólk til að halda sem lengst í æskuljóma húð-
arinnar?
Nú hafa konur hins vegar fengið vísindin í lið með sér til að
leysa gátuna um hvernig öðlast megi eilífa æsku. Sérfræðingar
á ýmsum sviðum keppast við að leita uppi efni sem hamlað
gætu hrörnun húðarinnar og unnið gegn þeim umhverfis- og
eðlislægu þáttum sem valda því að hún missir teygjanleika
sinn og æskuljóma. Leikur-
inn er í raun ójafn frá upp-
hafi því margt leggst á eitt
við að svipta húðina unglegu
yfirbragði hennar, til dæmis
streita, reykingar, röskun á
hormónajafnvægi, hreyfing-
arleysi og sólböð.
Húðin er stærsta líffæri
mannslíkamans og vegur alls
um þrjú kíló. Gott eða slæmt
ásigkomulag hennar ræðst
mikið til af því lífsmynstri
sem viðkomandi temur sér.
Forsenda heilbrigðrar og
hraustlegrar húðar er heilsu-
samlegt líferni, hreyfing, holl
fæða, nægur svefn og hófleg
sólböð. Pá hafa ýmsir erfða-
þættir áhrif á það hvernig
húðin eldist.
Frá og með tuttugu og
fimm ára aldri tekur húðin
að missa æskuljóma sinn.
Hægja tekur á raka- og súrefnismyndun hennar og eig-
inleikar húðarinnar til að bregðast við ytra áreiti
minnka. Flest snyrtivörufyrirtæki hafa reynt að
koma til móts við konur með því að leita uppi efni
sem dregið gætu úr eða hægt verulega á þessari
þróun. Fjöldinn allur af andlitskremum hefur í
þessum tilgangi verið settur á markað og í aug-
lýsingum með sumum þeirra er því jafnvel heitið
að smyrslið muni draga að einhverju marki úr
þeim hrukkum sem fyrir eru. Margir læknar og
sérfræðingar vilja hins vegar draga í efa sann-
leiksgildi slíkra loforða og benda í því sambandi
á að ekki hafi tekist að sanna með óyggjandi
hætti að krem þessi skili tilætluðum
árangri.
Ein undantekning er þó á
þessari reglu. Reatín A, sem
upphaflega var þróað sem
lyf í baráttunni við ungl-
ingabólur, hefur sýnt sig
að hafa yngjandi áhrif á
húð. Komið hefur á dag-
inn að við reglubundna
notkun Reatíns A verður
hörundið stinnara og
mýkra viðkomu og talsvert
birtir yfir litarafti húðarinnar.
Enn sem komið er fæst þessi
áburður þó eingöngu gegn framvísún
lyfseðils og verður þess líkast enn
Nú hafa vísindin gengið í lið með
konum í leitinni að eilífri æsku.
langt að bíða að hann verði almennt viðurkenndur sem fegr-
unarsmyrsl til almennrar notkunar þar sem talið að hann auki
hættu á húðkrabbameini.
Um gildi andlitskrema til að verja húðina gegn skaðlegum
umhverfisþáttum eins og ryki og brennandi geislum sólar eru
þó flestir þeir sem starfa á sviði húðrannsókna sammála. Með
reglubundinni hirðu húðarinnar og með notkun nærandi og
verjandi krema má draga úr óæskilegum áhrifum umhverfis-
þátta á húðina. Flest dagkrem innihalda til dæmis orðið vörn
gegn skaðlegum geislum sólar. Sem dæmi má nefna dagkrem-
in Lotus frá Clarins og Stratagem Day Care frá Charles of the
Ritz en bæði innihalda þau vörn gegn útfjólubláum geislum og
verja jafnfamt húðina fyrir þeirri veðrun sem hún verður fyrir
daglega. Þá hefur Yves Saint Laurent sett á markað nýtt krem,
Hydra Perles, sem er ætlað að verja húðina gegn mengun og
sporna við hrörnun hennar. Kreminu er ætlað að örva nátt-
úrulega vörn húðarinnar við ytra áreiti, bæta öndun hennar og
stuðla að hærra rakastigi í húðfrumunum.
Þótt andlitskrem hafi enn ekki sannað mátt sinn sem lyf til
að koma í veg fyrir hrörnun húðarinnar hafa sérfræðingar á
þessu sviði ekki gefist upp í leitinni að eilífri æsku. Chanel
hefur til dæmis nýverið sett á markað andlitskrem sem meðal
annars er ætlað að hægja á frekari hrörnun húðarinnar og
vernda hana gegn ofþornun. Sömu sögu er að segja af snyrti-
vörufyrirtækinu Lancaster sem sett hefur á markað nýtt krem,
Competence, og er því meðal annars ætlað að vinna gegn
ótímabærri öldrun húðarinnar.
A síðustu árum má segja að hafi orðið bylting í fram-
leiðslu á snyrtivörum. Hvert fyrirtækið á fætur
öðru hefur tekið að státa af því að nota ein-
vörðungu náttúrulegar afurðir í fram-
leiðslu sína. Þannig innihalda Biodr-
oga snyrtivörur í svokallaðri High
sensitive línu til dæmis engin ilm-,
gervi- eða rotvarnarefni og hafa sér-
fræðingar á rannsóknarstofum þess
þróað sérstaka lífræna meðferð
sem ætlað er að styrkja eigið varn-
arkerfi húðarinnar. Þá hafa mörg
snyrtivörufyrirtæki einnig tekið að
hampa einstökum vítamíntegund-
um þó læknar bendi á að í vissum
tilfellum geti þau jafnvel valdið of-
næmisviðbrögðum. Þannig hefur
komið í ljós að e-vítamín í andlits-
kremum getur valdið útbrotum.
Engum þarf að dyljast að húð
sem er bæði vel hirt og snyrt er fal-
leg og stuðlar að vellíðan viðkom-
andi. Austur-Evrópa hefur lengi ver-
ið talin Mekka húðsnyrtingar og kon-
ur í þessum löndum yfirleitt þótt hafa
áberandi unglega og fallega húð. Þar
hefur hirðu húðarinnar frá fornu fari ver-
ið gert hátt undir höfði og ætti það að segja
kynsystrum þeirra í norðri margt um mikil-
vægi þess að huga vel að húð sinni og gæta þess
að láta það að hlúa að henni ekki sitja á hakan-
um í dagsins önn.D
42 HEIMSMYND