Heimsmynd - 01.11.1990, Blaðsíða 44
HÖNNUN: Þegar húsgögn öölast líf
Óhefðbundin form, sem minna einna helst á sveigjur og
kúrvur mannslíkamans, einkenna hönnun tékkneska innan-
hússarkitektsins Borek Sipeks sem fæddur var í Prag árið
1949. Sipek hefur
hlotið mikla viður-
kenningu fyrir verk
sín og er nú talinn
einn þeirra núlif-
andi hönnuða sem
hvað mest er að
vænta af næstu ára-
tugina. Listamað-
urinn, sem býr og
starfar í Amster-
dam, á meðal ann-
ars verk í banda-
ríska listasafninu
the Museum of
Modern Art í New
York og PTT lista-
safninu í Haag.
Þeir sem fjallað
hafa um verk Sip-
eks segja þau svo
miklu lífi gædd að
nánast sé sem þau
lifi sjálfstæðu lífi.
„Hönnun stóls fyrir Hefðbundin form eru látin lönd og leið við hönnun
mér er ekki ein- s^|s
vörðungu spurning
um notagildi heldur lít ég mun frekar á verkefnið sem leit að
leið til að gera hann að einhverju meiru, helst einhverju sem
hægt er að bera tilfinningar
til,“ segir Sipeks.
Sipeks er snillingur í
meðferð
efnis, hvort
heldur það er
tré, gler eða
málmur. Mörgum þykir mik-
ið til þess koma að húsgögn
þau er hann hannar hafa oft á
tíðum yfirbragð handunninna
hluta þótt þau séu öll unnin í
vélum. Sjálfur kveðst Sipeks
hafa mesta unun af því að
hanna ljós. „Það er endalaust
hægt að finna nýjar leiðir til
að hanna hlut sem gegnir því
hlutverki að lýsa upp vistar-
verur fólks," segir listamað-
urinn. Hann hefur jafn-
framt lýst þeirri skoðun
sinni að hann telji það eðli
máls samkvæmt að hönn-
un innréttinga og hús-
gagna taki breytingum í
tímans rás og að ávallt sé
leitað nýrra leiða til að
nálgast við-
fangsefnið.
Það á eflaust
eftir að vera forvitnilegt að fylgjast með því hvað kemur úr
smiðju þessa framúrstefnulega hönnuðar næstu árin.D
þessa skemmtilega
Að mati
Tékkans Sip-
eks er hönn-
un Ijosa eng-
in takmörk
sett.
Komdu á óvart um þessi jól og gefðu
síma í jólagjöf. Með því að gefa
ættingjum og vinum síma gefur þú
gagnlega jólagjöf, þú heyrir oftar
í þeim og sambandið milli ykkar
styrkist enn meira.
Sími - talandi dæmi um góða jólagjöf.
Komdu og skoðaðu úrvalið
í söludeildum Pósts og síma
POSTUR OG SIMI
^rSliirtpilHir í Kirkiu<;trapti Krii