Heimsmynd - 01.11.1990, Page 100
Bernard stóð fyrir því að halda sýningu á
verkum vinar síns, Vincents, eftir dauða
hans, var Gauguin á móti því, vegna
þess að hann taldi að almenningsálitið
mundi snúast gegn samtímamálurum,
fólk færi hugsanlega að halda því fram
að þeir væru allir geðveikir eins og
Vincent. Ekki síst þess vegna er átakan-
leg sagan af viðbrögðum Vincents við
málverki Gauguins af honum er hann
var að mála sólblómin. Þegar Vincent sá
málverkið sagði hann: „Jú, þetta er ég.
Þcgar ég er orðinn geðveikur.“D
Gáfumannaætt. . .
framhald af bls. 87
a. Ólafur Þorsteinsson (f. 1948) við-
skiptafræðingur í Reykjavík. Hann var
skrifstofustjóri og síðar deildarstjóri hjá
Innkaupastofnun ríkisins 1977 til 1987 en
er nú skrifstofustjóri Krabbameinsfélags
Islands. Kona hans er Helga Jónsdóttir,
íslenskufræðingur og starfsmaður við
Orðabók Háskólans.
b. Kristín Þorsteinsdóttir (f. 1955)
cand. mag., fréttamaður við Ríkisút-
varpið - sjónvarp. Maður hennar er
Skafti Jónsson, áður blaðamaður og
kaupmaður, nú aðstoðarframkvæmda-
stjóri Rauðakross íslands.
3. Þórhallur Vilmundarson (f. 1924)
prófessor er yngstur barna Kristínar og
Vilmundar. Hann er cand. mag. í ís-
lenskum fræðum frá Háskóla íslands og
kenndi við Menntaskólann í Reykjavík á
árunum 1951 til 1960. Þórhallur varð
prófessor í sögu við Háskóla íslands 1961
og frá 1969 hefur hann veitt forstöðu Ör-
nefnastofnun Þjóðminjasafns. Eftir Þór-
hall liggja nokkur rit og ritgerðir en
þekktastur er hann fyrir örnefnarann-
sóknir sínar. Hann flutti fyrirlestra um
svokallaða náttúrunafnakenningu á ár-
unum 1966 til 1973 sem vöktu gríðarlega
athygli og náði hann því þá meðal annars
að fylla Háskólabíó hvað eftir annað og
mun það einsdæmi um fræðimann. Þór-
hallur hefur setið í nýyrðanefnd og síðan
málnefnd um áratugaskeið enda orðhag-
ur eins og faðir hans. Hann er og for-
maður örnefnanefndar. Á sjötta ára-
tugnum lét Þórhallur stjórnmál allmjög
til sín taka og var einn af stofnendum
Þjóðvarnarflokksins sem barðist gegn
hersetu Bandaríkjamanna á íslandi.
Hann þótti áróðursmaður snjall en
nokkuð sérvitur og er hvort tveggja ætt-
arfylgja. Kona hans er Ragnheiður
Torfadóttir menntaskólakennari. Börn
þeirra eru:
a. Guðrún Þórhallsdóttir (f. 1961) mál-
vísindamaður, við doktorsnám við Corn-
ellháskóla í Bandaríkjunum.
b. Torfi Þórhallsson (f. 1964) raf-
magnsverkfræðingur, í framhaldsnámi í
Þýskalandi.
c. Helga Þórhallsdóttir (f. 1968) nemi í
byggingaverkfræði.
Apricot Scrubfrá St. Ives er
hreittsikrem tneð sérstökum
slípikomutn sem hreinsa
with
Elder Flower
mjúklega burt óhrein og
dauð húðlög. Apricot Scrub
örvar blóðrásina og gefur
húðinni styrkjandi nudd en
er samt svo milt að það tná
nota daglega.
FOÐVAL hf.
SKÚtUVOGUR 10D 125 RVK. S: 687370 &686570
St. Ives fœst í betri matvöruverslunum og stórmörkuðum
100 HEIMSMYND