Heimsmynd - 01.11.1990, Qupperneq 102
málastjóri Fjölbrautaskóla Suðurlands,
gift Garðari H. Gunnarssyni skrifstofu-
stjóra. Börn þeirra eru Ingibjörg Þóra
Garðarsdóttir (f. 1963) kennari á Sel-
fossi, Gunnar Garðarsson (f. 1964) mæl-
ingamaður á Selfossi, Aðalsteinn Garð-
arsson (f. 1965) kerfisfræðingur á Sel-
fossi og Ásthildur Kristín Garðarsdóttir
(f. 1967), í sambúð með Þór Valdimars-
syni húsasmíðanema á Selfossi.
d. Ólafur Þórarinsson (f. 1950) bóndi
og tónlistarmaður í Glóru. Hann hefur
verið í helstu popphljómsveitum á Suð-
urlandi um langt árabil og rekur nú með-
al annars hljóðver í Glóru.
3. Þorbjörg Björnsdóttir (f. 1915)
starfsmaður Landsbankans í Reykjavík.
4. Ásthildur Kristín Björnsdóttir (f.
1917), lengi starfsmaður Hagstofu Is-
lands. Hún er ekkja Steins Steinarr, eins
helsta og mest lesna Ijóðskálds Islend-
inga á þessari öld, og voru þau barnlaus.
BRAUTARHOLTSFÓLKIÐ
Ásta Ólafsdóttir (1892-1985) húsfreyja í
Brautarholti á Kjalarnesi var yngsta barn
þeirra séra Ólafs og Ingibjargar í Hjarð-
arholti. Á yngri árum var hún stoð og
stytta foreldra sinna í sambandi við
skólahald í Hjarðarholti og kenndi sjálf
söng og hannyrðir. Ásta giftist Ólafi
Bjarnasyni frá Steinnesi í Húnavatns-
sýslu. Hann var búfræðingur að mennt
og var fyrst bóndi á Akri fyrir norðan.
Hann keypti Brautarholtið árið 1925 af
Páli, mági sínum, og séra Ólafi, tengda-
föður sínum, gerði það eitt af stærstu bú-
um landsins og varð vinsæll og vel met-
inn bændahöfðingi syðra. Hann var í
hreppsnefnd Kjalarneshrepps 1925 til
1958, oddviti í tólf ár og hreppstjóri í 38
ár. Margs konar trúnaðarstörf hlóðust á
hann og meðal annars var hann um hríð
formaður stjórnar Mjólkurfélags Reykja-
víkur. Börn þeirra eru:
1. Bjarni Ölafsson (1926-1948)
2. Ingibjörg Ólafsdóttir (f. 1927) hjúkr-
unarfræðingur, kona Gunnars Sigurðs-
sonar byggingaverkfræðings í Reykjavík.
Gunnar hefur lengst af starfað hjá
Reykjavíkurborg og hefur verið bygg-
ingafulltrúi borgarinnar frá 1973. Börn
þeirra eru:
a. Ásta Gunnarsdóttir (f. 1954) kenn-
ari í Reykjavík, gift Birni Reyni Frið-
geirssyni, starfsmanni Vátryggingafélags
Islands.
b. Sigurður Bjarni Gunnarsson
(f.1962) aðstoðarmaður í hjúkrun.
3. Ólafur Ólafsson (f. 1928) landlækn-
ir. Hann lauk læknisprófi frá Háskóla Is-
lands 1957 og stundaði síðan framhalds-
nám í Danmörku, Svíþjóð og London.
Hann er viðurkenndur sérfræðingur í lyf-
læknis- og hjartasjúkdómum og embætt-
islækningum. Hann var yfirlæknir Rann-
sóknarstöðvar Hjartaverndar 1967 til
1972 og gat sér þar slíkt orð að hann var
skipaður landlæknir árið 1972 og hefur
gegnt því embætti síðan. Ólafur er að
ýmsu leyti óvenjulegur embættismaður,
talar yfirleitt ekki neina tæpitungu eða
stofnanamál eins og margir embættis-
menn gera. Til þess að staðna ekki
hleypur hann í það öðru hverju að gegna
héraðslæknisstörfum um tíma og þá
einkum í afskekktum héruðum sem erfitt
er að manna. Kona hans er Inga Mari-
anne Falck hjúkrunarfræðingur frá Sví-
þjóð. Þau eiga fimm börn en fyrir átti
Ólafur tvo syni. Börnin eru:
a. Svavar Lárus Ólafsson (f. 1955)
verslunarmaður í Reykjavík, kvæntur Por-
kötlu Valdimarsdóttur bankagjaldkera.
b. Ólafur Ólafsson (f. 1957) héraðs-
dómari á Akureyri.
c. Ásta Sólveig Ólafsdóttir (f. 1960)
hjúkrunarfræðingur, í framhaldsnámi í
Svíþjóð, í sambúð með Ágúst Kárasyni
vélamanni.
d. Ingibjörg Ólafsdóttir (f. 1964)
hjúkrunarfræðinemi.
e. Bjarni Ólafur Ólafsson (f. 1965) lög-
reglumaður.
f. Páll Ólafsson (f. 1968) laganemi.
g. Gunnar Alexander Ólafsson (f.
1969) nemi.
4. Páll Ólafsson (f. 1930) bóndi og bú-
fræðingur í Brautarholti. Hann stofnaði
graskögglaverksmiðju í Brautarholti
ásamt Jóni bróður sínum árið 1963 og
hefur rekið hana síðan. Hann hefur tek-
ið mikinn þátt í félagsmálum bænda, ver-
ið formaður Búnaðarsambands Kjalar-
nesþings og tók við hreppstjóraembætti
að föður sínum látnum. Kona hans er
Sigríður Kristjana Jónsdóttir hjúkrunar-
fræðingur. Börn þeirra, komin yfir tví-
tugt, eru:
a. Guðrún Pálsdóttir (f. 1963) lyfja-
fræðingur í Reykjavík, í sambúð með
Stefáni Hilmarssyni, löggiltum endur-
skoðanda.
b. Ásta Pálsdóttir (f. 1965) nemi í
Reykjavík, í sambúð með Gunnari Páli
Pálssyni viðskiptafræðingi.
c. Þórdís Pálsdóttir (f. 1968) nemi.
d. Ingibiörg Pálsdóttir (f. 1969) nemi.
5. Jón Ólafsson (f. 1932) bóndi í Braut-
arholti. Hann er oddviti sveitar sinnar og
hefur verið potturinn og pannan í öllum
helstu framkvæmdum á Kjalarnesi und-
anfarin ár. Kona hans er Auður Krist-
insdóttir. Börn þeirra yfir tvítugt eru:
a. Ólafur Jónsson (f. 1961) svínabóndi
í Brautarholti.
:r*v ' ii / JrP V
-r* i
Ný sending
Dömu- oq
herrasloppar
Stórglæsilegt
úrval
Ennfremur mikið úrval
af nærfötum, slæðum
og margskonar
gjafavörum.
Snyrtivöruverslunin
Gullbrá,
Nóatúni 17, sími: 624217.
Sendum ípóstkröfu.