Litli Bergþór - des. 2018, Síða 4
4 Litli-Bergþór
Björgunarsveitin okkar hér í sveit er orðin 32
ára og ætti því að vera orðin svona sæmilega
fullorðin. Í dag eru 40 skráðir félagar en í reynd
eru það um 10 sem eru virkir í starfi sveitarinnar.
Björgunarsveitin er hluti af Slysavarnarfélaginu
Landsbjörg. Við eigum í samstarfi og samvinnu
við aðrar sveitir í Árnessýslu sem við köllum í
daglegu tali „svæði 3“. Við tökum þátt í um 10-15
aðgerðum á ári og meirihluti þeirra eru auðleystar
á skömmum tíma en aðrar geta staðið yfir í allt að
sólarhring. Sveitin er vel tækjum búin og er það
að mestu að þakka góðvilja sveitunga sem taka
vel í fjáraflanir okkar, eins og t.d. flugeldasöluna.
En alltaf höfum við pláss fyrir nýtt fólk til að
taka þátt í starfinu og í dag skiptir litlu máli aldur
„nýliða“ þar sem við getum notað alla.
Ég vil nota tækifærið og leyfa ykkur að sjá
inn í aðgerð sem við leystum þann 10. febrúar
2018.
Þennan dag, laugardaginn 10. febrúar, hafði
snjóað í tvo til þrjá daga og var ekki nema kannski
20-30 sm jafnfallinn snjór, en þegar
fór að líða á morguninn
byrjaði að hvessa. Þegar
komið var fram að
kaffi var færð farin að
spillast á þjóðvegi 35
frá Geysi á Selfoss. Um
kl 16:30 fengum við fregnir
um að bílar ættu í erfiðleikum og
væru farnir að festast á veginum
fyrir neðan Torfastaði. Útkall
kom til okkar um 17:00 og
fóru 2 menn úr húsi á bifreið
okkar sem við köllum Biskup
1 (Nissan Patrol, árgerð 2005
sem er 46” breytt fjallabifreið).
Þeir fóru strax í að reyna að
losa bíla og snúa við fólki upp
í Reykholt. Hafist var handa
við að koma fólki og bifreiðum
inn á bílastæði Bjarnabúðar og fólk beðið um
að hinkra þar til skafrenningnum linnti og bíða
eftir mokstursbíl, sem var væntanlegur um
kvöldmatarleytið. Fljótlega sáu mennirnir sem
voru að losa bíla að þeir væru of fáliðaðir og
Björgunarsveit Biskupstungna
Kristinn Bjarnason, formaður Björgunarsveitar Biskupstungna:
kölluðu eftir auknum liðsafla og innan skamms
bættust við þrír björgunarsveitarmenn í útkallið.
Þá var ræstur út Biskup 2 (Toyota Tacoma, árgerð
2005 sem keyptur var 2015). Til viðbótar komu
til aðstoðar nágrannar okkar hérna á Reykholti
á tveimur fjallabílum og um klukkan 19:00 var
búið að koma öllum upp í búð. Bjarni þurfti að
hafa lengur opið þar sem ekki var hægt að koma
þeim annað. Upp úr 20:15 var svo bílalestinni,
25 bifreiðum, hleypt af stað þar sem mokstursbíll
var kominn að afleggjara Syðri-Reykja og var
á leið á Selfoss á undan sjúkrabíl. Þó ekki hafi
liðið nema 5 mínútur frá því að skilaboð komu
um mokstursbíl þar til að bílalestinni var hleypt
af stað, þá byrjuðu vandamálin rétt fyrir neðan
afleggjarana að Miklholti/Hrosshaga. Vildi svo
til að þar festi 50 manna rúta sig í þröngum
snjógöngunum og stöðvaði alla lestina. Þá var um
lítið annað að ræða en snúa lestinni við og koma
öllum upp í Reykholt. Þá var ákveðið að opna
fjöldahjálparmiðstöð í Aratungu og var húsvörður
ræstur út ásamt félögum úr Björgunarsveitinni
sem aðstoðuðu við móttöku á fólki og við
upplýsingagjöf. Þegar tekist hafði að ferja fólk
upp í Aratungu og losa bifreiðar þessara óheppnu
útlendinga, var farið að nálgast miðnætti. Um 12
bílar voru vel fastir á veginum aftan við rútuna
og skóf að bílum og snjóskaflar orðnir um 1,5
m djúpir á köflum. Var orðið erfitt að keyra
fjallajeppa okkar við þessar aðstæður. Hjálp barst
loks frá Selfossi, þegar Vegagerðin hafði sent
veghefil og traktor með snjóblásara til að opna
veginn. Um miðnætti var loks búið að stinga í
gegnum skafla og losa rútuna. Þá gátum við loks
sent fólk af stað aftur í átt að Selfossi. Þegar
bílalestinni var hleypt að stað aftur var passað að
halda öllum nálægt heflinum og var bílunum fylgt
af björgunarsveitarbifreiðum frá Reykjavík sem
komnar voru til að aðstoða okkur heimamennina.
Allir komust að lokum á Selfoss, þar sem tók
við lengri bið fyrir suma, þar sem lokað var fyrir
umferð um Hellisheiði og Þrengsli þar til um kl.
02:00 um nóttina.
Björgunarsveitin vill nýta tækifærið og þakka
aftur öllum sem styðja og styrkja okkur, án ykkar
væri ekki mögulegt fyrir okkur að starfa.
Bannað
að gera upp á
milli Nissan og
Toyota.