Litli Bergþór - des. 2018, Blaðsíða 44

Litli Bergþór - des. 2018, Blaðsíða 44
44 Litli-Bergþór Fögruhlíð og allt suður að Þverbrekkum að vestan. En Kjalhraun, Svartárbotna og Gránunes að austan og skyldi gista í Fossrófum næstu nótt. Hlutverk okkar Guðna var austurhelmingurinn, en hinir fóru vestur úr. Af okkur er það að segja, að við fórum suður Kjalhraun, sinn hvoru megin við Kjalfell og hittumst við kofatóft, sem er suðaustan við það. Skiptum við okkur þar aftur, Guðni leitaði Gránunes, en ég leitaði Svartárbotna. Komum við í Fossrófur um dimmumót og höfðum enga kind fundið. Var þá komið ofsa rok af suðaustri með bleytuhríð. Gengum við frá hestum okkar í hesthúsinu og var ærin þar og virtist una hag sínum vel enda hafði hún nóg að bíta og brenna. Fórum við síðan í kofann og þökkuðum okkar sæla að vera komnir í húsaskjól, því alltaf herti veðrið. Fyrsta verk okkar var að hita á katlinum, bæði handa okkur og félögum okkar, sem ókomnir voru. Tókum við síðan hraustlega til matar enda var af miklu að taka, því hann var allur hjá okkur. Svo leið tíminn og klukkan var farin að ganga átta og enn voru félagar okkar ókomnir. Við hituðum annan ketil af kaffi í þeirri von að þeir myndu koma. Við vorum orðnir leiðir af að vita af þeim úti í slíku veðri og geta ekkert aðhafst til hjálpar ef eitthvað hefði komið fyrir þá, en það varð að hafa sinn gang úr því sem komið var. Er ekki að orðlengja það að þeir komu ekki fyrr en kl. 10 um kvöldið. Þá var riðið í hlaðið og urðum við kofabúar himinlifandi að heimta þá heila á húfi úr slíku foraðsveðri og náttmyrkri. Tók um við nú við hestum þeirra og komum þeim í hús, svo þeir kæmust sem fyrst í húsaskjól til að draga af sér vosklæði og fá sér hressingu. En nú var orðið kalt á katlinum og var ekki laust við að við yrðum fyrir aðkasti vegna þess, en allt jafnaði það sig fljótlega. Ferðasaga þeirra félaga var í stórum dráttum á þessa leið. Allt gekk tíðindalaust í Þjófadali, en þar er sæluhús frá Ferðafélaginu. Áðu þeir þar um stund og fengu sér bita, sem þeir höfðu með sér, en bjuggust að því búnu til ferðar á ný. Ekki höfðu þeir langt farið, er þeim verður litið upp í Rauðkoll, sem er hátt fjall norðvestan við Þjófadali, og sjá þar þá þrjár kindur í hlíðinni. Urðu þeir nú harla kátir og hófust þeir þegar handa að ná þeim. En þær voru ekki alveg á því að láta ná sér og fór ein í ógöngur þarna í fjallinu. Þó fór svo um síðir, að þær urðu að láta í minni pokann. Settu þeir þær inn í sæluhúsið meðan þeir leituðu Fögruhlíð. Voru þeir fljótir að því og héldu svo hið bráðasta aftur til sæluhússins. Þegar þangað kom var að skella á ofsarok og bleytuhríð. Áttu þeir nú eftir að koma kindunum í Fossrófur og þar að auki áttu þeir að leita suður með Fúlukvísl að Þverbrekkum. Þar sem nú var orðið áliðið dags ákváðu þeir að sleppa frekari leit, en fara með kindurnar skemmstu leið. Fóru þeir nú austur með Kjalfelli og komu kindunum við illan leik í kofatóftina þar. Var þá veðrið orðið mjög vont og kindurnar rákust ekki lengra. Hlóðu þeir nú upp í dyrnar eftir föngum en héldu síðan á ný út í bylinn og náttmyrkrið. Fóru þeir með Kjalfellskvíslinni niður í Gránunes til að vera vissir um að fara ekki af réttri leið og þaðan beint í Fossrófur. Kindurnar, sem þeir félagar fundu þennan dag, voru 2 ær norðan úr Húnavatnssýslu og lambhrútur úr Hrunamannahrepp. Sunnudagur: Þegar við vöknuðum um morg- uninn, var veður óbreytt frá deginum áður. Var nú ákveðið að ná í kindurnar í kofatóftinni við Kjalfell. Gekk það greiðlega og vorum við búnir að því skömmu eftir hádegi. Heldur voru þær mjóslegnar, einkum lambið, enda hafa þær verið búnar að þola harðrétti nokkuð lengi. Enn hélzt veðrið óbreytt, og var svo allan daginn. Fórum við því ekki út úr húsi nema til að gefa fé og hestum. Lifðum við þarna kóngalífi og mátti engu muna að menn ætu ekki yfir sig. Annars höfðum við meðul við öllu mögulegu enda er það sjálfsagt inn á reginfjöllum. Mánudagur: Veðrinu hafði nú slotað og var komið bjartviðri og frost. Höfðum við nú hröð handtök við að búa okkur af stað, því við vorum vel fyrirkallaðir, þar sem við vorum búnir að hvíla okkur næstum heilan dag. Nú skal leita Síðustu kindurnar i safninu að komast yfir Tungufljótsbrúna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.