Litli Bergþór - des. 2018, Blaðsíða 50
50 Litli-Bergþór
Í félaginu eru nú rúmlega 50 manns, en fólk er þó misjafnlega virkt. Guðni Lýðsson í Reykholti, er
formaður, Sigurbjörg Snorradóttir á Galtalæk er ritari og Svavar Sveinsson á Gilbrún er gjaldkeri.
Meðstjórnendur eru Ólafur Jónasson í Reykholti og Áslaug Jóhannesdóttir á Spóastöðum.
Í haust höfum við farið í tvær ferðir saman. Í annað skiptið var farið á vegum félagsins til höfuð-
borgarsvæðisins og hinsvegar með kvenfélagskonum á Þingvelli.
Frá Félagi eldri borgara
í Biskupstungum
Við byrjuðum á Bessastöðum í Stór-Reykjavíkurheimsókninni. Þar var tekið á móti okkur af
staðarhaldara sem sýndi okkur húsið frá kjallara upp í ris. Fornminjar í kjallara, móttökuaðstöðu
forsetans á miðhæð og geymdar gjafir frá erlendum
þjóðaleiðtogum í risinu. Síðan lá leið okkar í
Háaleitishverfið þar sem við skoðuðum lífrænan
útivistargarð þar sem voru lífræn listaverk af
ýmsum toga. Á heimleið fengum við okkur að borða
í veitingahúsinu Höndum í Höfn í Þorlákshöfn. Var
þessi ferð vel heppnuð í alla staði.
Í Þingvallaferðinni skoðuðum við nýja aðstöðu á
Hakinu og fórum í „leikjatölvur“ þar. Við skoðuðum
líka Sogsvirkjunina og að lokum borðuðum við á
hótel Borealis í Grímsnesi sem okkur þótti mjög
frumlegt. Allt gladdi þetta okkur og kunnum við
Kvenfélaginu kærar þakkir fyrir.
Hefðbundin dagskrá vetrarins hófst síðan í byrjun
október.
Við hittumst tvisvar í viku. Fyrst á þriðjudögum
kl. 16:30 í íþróttamiðstöðinni. Þar iðkum við
Í móttökusal forsetaembættisins.
Sigurður Erlendsson tekur í orgel Bessastaðakirkju. Með honum á
myndinni, f.v. Sigurjón Kristinsson, Guðrún Mikaelsdóttir, Oddný
Jósefsdóttir, Guðni Lýðsson og Ólafur Jónasson.