Litli Bergþór - des. 2018, Blaðsíða 19
Litli-Bergþór 19
Aðalfundur og uppskeruhátíð Hrossa ræktar félags
Biskupstungna var haldinn í Skjóli þ. 17. október
2018.
Stjórn félagsins skipa nú: Jón Örvar Baldvinsson
Geysi, formaður, Sólon Morthens Hrosshaga,
ritari og Bent Larsen Fróðason Fellskoti, gjaldkeri.
Starfsemi síðasta árs var minni en til stóð, því aflýsa
þurfti ræktunardegi á Flúðum sem fyrirhugaður
var 5. maí 2018 og skemmtiferð, sem fyrirhuguð
var í október, vegna ónógrar þátttöku.
Hinsvegar var farin hópferð á stóðhestasýningu í
Sprettshöllinni í lok apríl, þar sem var mikið af
góðum hrossum. Um 20 manns tóku þátt í þeirri
ferð, sem endaði með heimboði í hesthús þeirra
Valdimars Grímssonar og frú Kristínar, sem tóku
höfðinglega á móti hópnum.
Á uppskeruhátíðinni í Skjóli nú í október var
gestur fundarins Pétur Halldórsson. Hann er
margreyndur sýn ingar stjóri kyn bótasýninga og
deildi hann reynslu sinni með fundar gestum.
Þar voru að vanda veitt verðlaun fyrir hæst dæmdu
kynbótahross og ræktunarbú ársins 2018 og er
skemmst frá því að segja að Magnús Einarsson í
Kjarnholtum sópaði til sín öllum verðlaunum fyrir
Hrossaræktarfélag
Biskupstungna
Jón Örvar færði Maríu Þórarinsdóttur í Fellskoti þakkir fyrir góð störf
fyrir félagið.
Eigendur hæst dæmdu ræktunarmeranna. F.v. Guðný Höskuldsdóttir
Reykholti, Trausti Hjálmarsson Austurhlíð, Sjöfn Kolbeins Dalsholti og
Ólafur Einarsson Torfastöðum.