Litli Bergþór - Dec 2018, Page 44
44 Litli-Bergþór
Fögruhlíð og allt suður að Þverbrekkum að
vestan. En Kjalhraun, Svartárbotna og Gránunes
að austan og skyldi gista í Fossrófum næstu nótt.
Hlutverk okkar Guðna var austurhelmingurinn, en
hinir fóru vestur úr. Af okkur er það að segja, að
við fórum suður Kjalhraun, sinn hvoru megin við
Kjalfell og hittumst við kofatóft, sem er suðaustan
við það. Skiptum við okkur þar aftur, Guðni leitaði
Gránunes, en ég leitaði Svartárbotna. Komum
við í Fossrófur um dimmumót og höfðum enga
kind fundið. Var þá komið ofsa rok af suðaustri
með bleytuhríð. Gengum við frá hestum okkar
í hesthúsinu og var ærin þar og virtist una hag
sínum vel enda hafði hún nóg að bíta og brenna.
Fórum við síðan í kofann og þökkuðum okkar
sæla að vera komnir í húsaskjól, því alltaf herti
veðrið. Fyrsta verk okkar var að hita á katlinum,
bæði handa okkur og félögum okkar, sem ókomnir
voru. Tókum við síðan hraustlega til matar enda
var af miklu að taka, því hann var allur hjá okkur.
Svo leið tíminn og klukkan var farin að ganga átta
og enn voru félagar okkar ókomnir. Við hituðum
annan ketil af kaffi í þeirri von að þeir myndu
koma. Við vorum orðnir leiðir af að vita af þeim
úti í slíku veðri og geta ekkert aðhafst til hjálpar
ef eitthvað hefði komið fyrir þá, en það varð að
hafa sinn gang úr því sem komið var. Er ekki að
orðlengja það að þeir komu ekki fyrr en kl. 10
um kvöldið. Þá var riðið í hlaðið og urðum við
kofabúar himinlifandi að heimta þá heila á húfi
úr slíku foraðsveðri og náttmyrkri. Tók um við
nú við hestum þeirra og komum þeim í hús, svo
þeir kæmust sem fyrst í húsaskjól til að draga af
sér vosklæði og fá sér hressingu. En nú var orðið
kalt á katlinum og var ekki laust við að við yrðum
fyrir aðkasti vegna þess, en allt jafnaði það sig
fljótlega. Ferðasaga þeirra félaga var í stórum
dráttum á þessa leið.
Allt gekk tíðindalaust í Þjófadali, en þar er
sæluhús frá Ferðafélaginu. Áðu þeir þar um
stund og fengu sér bita, sem þeir höfðu með
sér, en bjuggust að því búnu til ferðar á ný.
Ekki höfðu þeir langt farið, er þeim verður litið
upp í Rauðkoll, sem er hátt fjall norðvestan við
Þjófadali, og sjá þar þá þrjár kindur í hlíðinni.
Urðu þeir nú harla kátir og hófust þeir þegar
handa að ná þeim. En þær voru ekki alveg á því
að láta ná sér og fór ein í ógöngur þarna í fjallinu.
Þó fór svo um síðir, að þær urðu að láta í minni
pokann. Settu þeir þær inn í sæluhúsið meðan
þeir leituðu Fögruhlíð. Voru þeir fljótir að því
og héldu svo hið bráðasta aftur til sæluhússins.
Þegar þangað kom var að skella á ofsarok og
bleytuhríð. Áttu þeir nú eftir að koma kindunum
í Fossrófur og þar að auki áttu þeir að leita suður
með Fúlukvísl að Þverbrekkum. Þar sem nú var
orðið áliðið dags ákváðu þeir að sleppa frekari
leit, en fara með kindurnar skemmstu leið. Fóru
þeir nú austur með Kjalfelli og komu kindunum
við illan leik í kofatóftina þar. Var þá veðrið orðið
mjög vont og kindurnar rákust ekki lengra. Hlóðu
þeir nú upp í dyrnar eftir föngum en héldu síðan
á ný út í bylinn og náttmyrkrið. Fóru þeir með
Kjalfellskvíslinni niður í Gránunes til að vera
vissir um að fara ekki af réttri leið og þaðan beint
í Fossrófur. Kindurnar, sem þeir félagar fundu
þennan dag, voru 2 ær norðan úr Húnavatnssýslu
og lambhrútur úr Hrunamannahrepp.
Sunnudagur: Þegar við vöknuðum um morg-
uninn, var veður óbreytt frá deginum áður. Var
nú ákveðið að ná í kindurnar í kofatóftinni við
Kjalfell. Gekk það greiðlega og vorum við búnir
að því skömmu eftir hádegi. Heldur
voru þær mjóslegnar, einkum
lambið, enda hafa þær verið búnar
að þola harðrétti nokkuð lengi. Enn
hélzt veðrið óbreytt, og var svo
allan daginn. Fórum við því ekki
út úr húsi nema til að gefa fé og
hestum. Lifðum við þarna kóngalífi
og mátti engu muna að menn ætu
ekki yfir sig. Annars höfðum við
meðul við öllu mögulegu enda er
það sjálfsagt inn á reginfjöllum.
Mánudagur: Veðrinu hafði nú
slotað og var komið bjartviðri og
frost. Höfðum við nú hröð handtök
við að búa okkur af stað, því við
vorum vel fyrirkallaðir, þar sem
við vorum búnir að hvíla okkur
næstum heilan dag. Nú skal leita Síðustu kindurnar i safninu að komast yfir Tungufljótsbrúna.