Litli Bergþór - dec 2018, Qupperneq 10

Litli Bergþór - dec 2018, Qupperneq 10
10 Litli-Bergþór Starfið í skólanum gengur mjög vel, enda valinn maður í hverju rúmi. Í ár er skólahald í Reykholti níutíu ára og þó ekki sé blásið til sérstakra hátíðahalda af því tilefni, mætti tileinka þann góða árangur sem náðst hefur og starfið í dag ber vitni um, þessum tímamótum. Það sem helst hefur einkennt líðandi haustönn og er af nýjum toga, er kannski tvennt: Annars vegar tvískipt árshátíðarvinna og hins vegar spjaldtölvuvæðing unglingastigsins. Árshátíð yngsta- og miðstigs var haldin fimmtudaginn 1. nóvember í Aratungu að venju. Þá vikuna brutum við upp starfið og helguðum undirbúningi hátíðarinnar. Skemmst er frá því að segja að allt lukkaðist þetta ljómandi vel og börnin sungu, dönsuðu, fluttu texta og léku fyrir okkur styttri þætti af öryggi og einurð undir stjórn kennaranna sinna Karls, Kathrinu, Heklu, Ástu Rúnar og Freydísar. Hvorki var að sjá feimni né hik á neinum og það er eitt helsta keppikefli skólastarfsins að mínu mati. Takist okkur að ná því fram ásamt því að þjálfa gagnrýna hugsun og leikni í samskiptum getum við lögst sæl og sátt til hvílu. Hátíðin endaði með kaffi og gómsætum kökum frá Brynjólfi, Eyrúnu og Bryndísi í eldhúsinu. Unglingastigið var í eilítið öðrum gír, þar sem þau frumsömdu leikritið Ættarmótið. Þeirra stoðir og styttur voru umsjónarkennararnir þeirra, Aðalheiður og Lára, reynsluboltar í leikhúsinu báðar tvær. Tvær stundir voru ætlaðar í starfið frá skólabyrjun í haust og svo var þemavika vikuna fyrir sýningu þar sem hendur voru látnar standa fram úr ermum. Leikritið var sýnt 15. nóvember og tókst glimrandi vel, þar sem leikarar töfruðu fram hina ýmsu karaktera sem finna má í hverri stórfjölskyldu og léku við hvurn sinn fingur. Að venju var eldri borgurum og nánustu fjölskyldu boðið að koma í leikhúsið. Að sýningu lokinni var Pálínuboð, sem foreldrar reiddu fram - og kaffi í boði skólans. Veitingunum gerðu menn góð skil og áttu dægilega stund saman. Sammæli var um að tvískipting árshátíðar væri af hinu góða, en huga þyrfti að skipulaginu og tímasetningu í tíma og leggja ákveðnari línur um það margþætta starf sem undirbúningur leiksýningar er. Nú punkta kennararnir niður um það sem jákvætt var og hitt sem betur mátti fara og svo tökum við samræðuna um hvenær og hvernig við stöndum að hátíðunum á næsta skólaári. Fréttir af spjaldtölvuvæðingu á unglingastigi í Reykholti hafa birst í héraðsblöðunum, en mér finnst hæfa að varpa enn ljósi á þann stórhug sem fyrirtæki og félagasamtök sýndu er skólinn leitaði eftir styrkjum til tækja- kaupanna. Menningarsjóður Biskups tungna, Lions klúbbur inn Geys ir, Frið heimar, Kven félag Biskupstungna og Hótel Geysir lögðu okkur til rúmlega eina milljón króna, nánast alla þá upphæð sem til kaupanna fóru. Vel gert og hjartans þakkir! Nýverið var haldinn samtalsfundur foreldra félagsins og kennara skólans um snjalltækjanotk un í skólanum. Hann hófst með því að Lára Bergljót Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri og stjórn- andi upplýsingatækniteymisins skipaði fundar mönnum í fimm umræðuhópa. Skipulaginu svipaði mjög til félagsvistar, því fólk fór á milli hópa og ræddi hinar ýmsu hliðar málsins. Að umræðum loknum var gert kaffihlé og síðan skiluðu hóp- stjórar niðurstöðum. Þá var eftir að ræða málin og það var gert af hreinskilni og stillingu. Hver viðraði sína skoðun og ekki voru allir með sömu sýn Sendibréf úr skólanum Smalafíkn eða tölvufíkn - fíkn er fíkn. Leikarar úr elstu deild skólans.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.