Litli Bergþór - des. 2018, Síða 11
Litli-Bergþór 11
eða óskir um tilhögun og reglusetningar. Lára
sagði frá unglingaþingi sem haldið var fyrir
fundinn um sama málefnið, þar sem fram kom
að nemendur höfðu sitthvað um málið að segja.
Og flest var ekki svo fjarri skoðunum þeirra
fullorðnu, þó einhver væri áherslumunurinn.
Engin áþreifanleg niðurstaða varð af fundinum
önnur en sú að skólinn myndi vinna málið áfram
með nemendunum, því með þau í liði við mótun
reglna væri mest von á árangri. Stefna skólans er
að kenna börnunum ábyrga notkun snjalltækja
og fá þau með sér í vegferðina, til framtíðar sem
enginn veit hvernig þróast. Starfsfólkið okkar, sem
býr yfir miklum mannauði, er í stærstum dráttum
sammála um leiðir og tilbúið í þessa vinnu, enda
halda skólareglurnar ágætlega og símarnir valda
ekki vandræðum í kennslunni.
Þeir breyttu tímar sem við glímum nú við setja
okkur ný verkefni til úrlausnar. Því er spáð að
hraðar tækniframfarir
á allra næstu áratugum
umsnúi starfaflórunni svo
rækilega að obbinn af
þeim framtíðarstörfum,
sem nemendurnir munu
sinna, sé bara ekki til í dag.
Lykillinn að þeirri framtíð
er tæknilæsi. Sú ógn sem
greinilegust er í dag er
tölvufíknin, sem birtist í
óhóflegum skjátíma. Við
trúum því að gegn henni
séu bestu meðulin fræðsla
og forvarnir, frekar en
boð og bönn. Og samhent
viljum við ganga fram,
foreldrar og kennarar. Það samtal sem fór fram
á téðum fundi er risaskref inn í framtíðina. Fyrir
liggur að nemendur munu koma að skipulagi síns
eigin framtíðarsamfélags þegar þau eldast, svo
hvað liggur beinna við en þjálfa þau núna í að
koma að og móta ákvarðanir um eigið samfélag
í skólanum - og utan hans. Ungdómurinn í
Reykholti hefur allt það til að bera sem þarf, svo
byggja megi upp og styrkja stoðirnar - í þeirra
eigin heimi. Til þess þurfa þau tækifæri til þess að
stunda heiðarleika og bera ábyrgð. Þannig öðlast
þau virðingu samfélagsins og læra að virða sitt,
sig og sína. Þegar því marki er náð, þá „höfum við
gengið til góðs, götuna fram eftir veg“.
Í byrjun ýlis,
Hreinn Þorkelsson
skólastjóri Bláskógaskóla í Reykholti.
Frá árshátíð yngri deildar.
Spjaldtölvuvæðing í Reykholtsskóla