Litli Bergþór - Dec 2018, Page 15

Litli Bergþór - Dec 2018, Page 15
Litli-Bergþór 15 Iðu fyrstu árin eftir slysið. Hann dvaldi tíðum hjá góðum kunningjum sínum, séra Gísla Jónssyni (1867-1918) á Mosfelli, er verið hafði prestur í Meðallandsþingum 1892-1900, Skúla lækni Árnasyni (1865-1954) í Skálholti og Böðvari Magnússyni (1877-1966) að Laugarvatni. Var hann hjá þeim sitt hvert árið meðgjafarlaust, en virðast þeir ekki hafa haft það í sér að vísa honum á dyr er hann kom til þeirra. Böðvar segir að Bjarni hafi þá verið „orðinn gamall og útslitinn, en vel gerður og allra manna kátastur, og allir höfðum við af honum hina mestu ánægju, en hann var ósköp þakklátur fyrir það, sem honum var gott gert ... Bjarni var hinn mesti jafnaðarmaður, örlátur og gjöfull, ef eitthvað var til að gefa, og leit á það sem sjálfsagðan hlut að svo ætti það helst að vera með alla.“ Svo vildi til að Iða var þá í eigu Einars Jónssonar (1867-1950) í Garðhúsum, sem þá var einn af ríkustu mönnum á Suðurlandi. Var Bjarni þess fullviss að hann gæti fengið Einar til þess að gefa sér jarðarpart úr Iðulandinu og segir Böðvar sig og Pál Guðmundsson (1872-1958) á Hjálmsstöðum engan frið hafa fengið fyrir Bjarna, sem vildi fá þá til liðs við sig til að skrifa bónarbréf til Einars. „Að vísu höfðum við nú minni trú á þessu en Bjarni, en létum þó til leiðast“, segir Böðvar. „Skrifaði ég bréfið, en Páll orti kvæðið. Minnir mig að við létum valinn mann skrifa þetta á stóra örk. Var Bjarni mjög ánægður með bréfið, en langaði til að mega fara með það til Skúla læknis og bera það undir hann. En það held ég að hafi kannski ekki verið vel ráðið, því að Skúli bauðst til að borga undir bréfið, ef hann mætti lesa það upp fyrir fólkinu, og það leyfði Bjarni. Bréfið var tvöfalt og lét Skúli fimmtíu einseyris frímerki á það, og líklega hefur Einari hreppstjóra þótt nóg um alla fegurðina.“ Segist Böðvar hafa reynt ásamt Páli að orða hugsun og tal Bjarna eins nákvæmlega og þeir gátu í orðum sínum þótt þeir hafi nú satt að segja brosað út í annað. Bæði bréf og kvæði eru dagsett í Iðu 1911 og lýsa að því er virðist hugarástandi hins aldna föður nokkuð vel. Grípum því aðeins niður í bréfið: „Tilefni þessa bréfs eru ástæður mínar. Ég er orðinn gamall að aldri. Ég er búinn að reyna það flest, sem fátækum bændum er títt að reyna á okkar afskekkta, fátæka landi. Ég hef átt konu og börn, en nýt nú einskis. Í upphafi æsku minnar logaði ég af ást og æskufjöri, og í því ástandi ályktaði ég að leggja hönd um háls, brjóst við brjóst, hjarta við hjarta og - - - - á mína elskusprundi Kristínu Runólfsdóttur frá Botnum í Meðallandi. En svo lauk okkar innilegu sambúð að við uppfóstruðum 2 dætur og 1 son. Og dvelur nú mín kæra kona hjá annarri dóttur sinni, Jónínu, og hennar hjartkæra ektamaka Jóni H. Wíum, nú bónda á Álfsstöðum, sem þér er að góðu og elskulegu kunnur, en ég á eiginlega hvergi heima. Af því ég er nú svo staddur sem ég er, nú 73 ára, heimilislaus, jarðnæðislaus, vinalaus, eignalaus – og það sem verst er, kvenmannslaus ... Sá sem hefur verið umvafinn örmum æskubrosandi yngismeyjar og komist inn í draumaland ástar og algleymis þessarar jarðnesku fullsælu, sá einn getur sett sig í spor þessa gamla manns, sem verður að láta sér það eitt nægja að faðma og umvefjast alslitnu brekáni.“ Í bréfinu fer Bjarni þess á leit við Einar að hann gefi honum fimm hundruð í landi Iðu af miskunnsemi sinni. Þetta er síðan endurtekið í ljóðinu: Þessi skemmtilega mynd er einnig tekin 1914. Myndin er eftir vökunótt á dansleik eftir ungmennafélagsmót í Meðallandi. Sigríður og Þorgerður er nr. 3 og 4 í fremri röð frá vinstri. Sigríður giftist síðar Sumarliða Sveinssyni sem er annar f.v. í efri röð en Þorgerður giftist Runólfi Bjarnasyni sem stendur við hlið hennar í fremri röð. Hver veit nema þau öll hafi verið byrjuð að gjóa augunum til hvers annars á þessu balli? Ljósmyndari Þorlákur Sverrisson.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.