Litli Bergþór - des. 2018, Blaðsíða 25
Litli-Bergþór 25
t.d. með því að velja vörur úr nágrenninu, sem
eru framleiddar á heilnæman hátt og borga
frumframleiðendum sanngjarnt verð fyrir. Borða
meira grænmeti, en ef valið er kjöt að velja þá
gæða kjöt. Fækka milliliðum ef þess er nokkur
kostur.
Á sýningunni voru mjög margir fyrirlestrar um
allt milli himins og jarðar. t.d. um stöðu kvenna
innan kokkabransans, sýklalyfjaónæmi, fækkun
milliliða og hvernig væri hægt að ná landi af
mafíunni.
Elinborgu Sigurðardóttur og Guðmundi
Ingólfssyni á Iðu voru í október veitt umhverfis
verðlaun Bláskógabyggðar þetta árið, fyrir
baráttu þeirra gegn skógarkerfli. Þau hafa slegið
helgunarsvæði Vegagerðarinnar við bæinn Iðu,
þar sem kerfillinn var orðinn mjög áberandi og
hreinsað upp eftir megni þær plöntur sem hafa
dreift sér inn á landareign þeirra.
Heilsueflandi samfélag í Bláskógabyggð í umsjón
Gunnars Gunnarssonar stóð m.a. fyrir sirkushelgi
í maí með sirkuslistakonunni Húlladúllunni.
Einnig var ljósmyndaganga með Ívari Sæland,
fjallahjólahittingur, róður, golfkynning og fleira
í samvinnu við hreyfiviku á vegum UMFÍ. Í
júlí - okt. var fella- og fjallgönguverkefnið
„Sveitin mín“, þar sem fjallgöngufólk skráði sig
í gestabækur á ákveðnum fjöllum og var dregið
úr nöfnunum í lok átaks. Var það Heiða Pálrún
Leifsdóttir sem hlaut fyrstu verðlaun.
Í samvinnu við Ferðafélag Íslands var staðið
fyrir vikulegum Lýðheilsugöngum um allt land
í september eins og í fyrra. Í Bláskógabyggð
var gengið um Laugarvatn, við Þingvallarvatn,
Laugarvatnshelli og á Þverfell, sem og óvissuferð
frá ML. Skógarganga var á Galtalæk, heilsu- og
ljósmyndagöngur frá Íþróttahúsinu í Reykholti
og menningarganga frá Slakka í Laugarási. Fjöldi
heimamanna tók þátt, eða kom að því að leiðsegja
í viðkomandi göngum.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir leik- og grunn-
skólabarna. T-listinn lagði til á fundi 8. nóvember
að skólamáltíðir leik- og grunnskólabarna í
Bláskógabyggð yrðu gjaldfrjálsar frá og með 1.
janúar 2019 og var það samþykkt. Áður hafði
meirihluti T-lista fellt tillögu Þ-lista um lækkun
leikskólagjalda um 15 þúsund krónur.
Á sama fundi var beiðni íbúa Miðholts um aðgerðir
til að bæta umferðarmerkingar og að stemma stigu
við hraðakstri um götuna samþykkt.
Þá var samþykkt að taka 400 milljón króna lán
til 16 ára vegna byggingar leikskóla og annarra
framkvæmda.
Þjóðgarðsvörður. Einar
Á. Sæmundsen var ráðinn
í stöðu Þjóðgarðsvarðar
á Þingvöllum 5. október
eftir að hafa gegnt stöð-
unni síðastliðið ár.
Útgáfuhóf.
Bjarni Harðarson og
Elín Gunnlaugsdótt-
ir héldu útgáfuhóf
í Skálholti 6.
október í tilefni af
útgáfu bókarinnar
Í Gullhreppum
eftir Bjarna. Bjarni
las valda kafla úr
sögunni og svaraði
spurningum gesta
og Elín söng nokkur
þjóðlög og vísur
um enn eldri tíma.
Loks þáðu gestir
veitingar.
Gengið um Laugarás (mynd Jón Bjarnason).
Einar Á Sæmundsen.