Litli Bergþór - des. 2018, Síða 28
28 Litli-Bergþór
3. Tækni
Jú, það var Ríkisútvarpið. Ekki einusinni kallað
Rás 1 eða Gufan. Það var bara útvarpið. Þar
voru fréttir, miðdegissagan, spennuleikrit og
tónlist fyrir fullorðna. Svo komu „lög unga
fólksins“ einusinni í viku, „Óskalög sjúklinga“
á laugardögum og „Óskalög sjómanna“ einhvern
annan dag. Tilkoma sjónvarpsins var mikið
ævintýri. Dýrlingurinn hélt manni spenntum viku
eftir viku. Framhaldsþættir af ýmsu tagi, sem
enduðu í hverri viku með einhverjum þeim hætti
að maður hlakkaði til næsta þáttar í næstu viku.
Svo kom Rás 2, enn ein tímamótin, svo frjálsar
útvarps- og sjónvarpsstöðvar, litasjónvarp og
fjarstýringar, því smám saman þótti of erfitt að rísa
upp til að skipta um rás. Svo fóru sjónvarpstækin
upp á vegg, skjáirnir stækkuðu, myndin varð
skýrari og greiðurnar hurfu af þökunum og tækin
urðu að tölvum. með aðgangi að þúsundum
sjónvarpsstöðva eða réttara sagt sjónvarpsveitna.
Þeim fækkar stöðugt sem nenna að bíða þar til
í næstu viku eftir framhaldi á sjónvarpsþætti.
Þar kemur Netflix sterkt inn. Það á ekki að þurfa
að bíða eftir framhaldinu, ekki frekar en eftir
eplunum.
Ég vil gjarnan halda því fram, að sjónvarpið
eigi einna stærstan þátt í því hvernig mannkynið
er statt nú.
4. Farartæki
Ég hef sennilega verið 7-8 ára þegar Landróverinn
kom á æskuheimilið. Það þurfti enn að tvíkúpla
þegar ég lærði á bíl. Fyrstu bílarnir mínir voru í
eldri kantinum og neyðin kenndi mér að gera við
hitt og þetta. Meðal annars að loka ryðgati undir
sætunum aftur í. Viðgerðin sú var nú ekki annað
en tveir steyputeinar sem lagðir voru yfir gatið og
síðan einhverskonar plata ofan á. Svo var ekið um
sveitina með synina tvo aftur í. Á malarvegum
voru oft pollar sem ekki tókst að þræða framhjá.
Þannig var með stóra pollinn sem sendi vatnsgusu
af svo miklu afli upp í gegnum ryðgatið að
synirnir supu hveljur, holdvotir í forundran yfir
þeim ósköpum sem þarna höfðu átt sér stað.
Svo urðu farartækin smám saman skárri.
Nú er það orðin spurning um rafknúna bifreið.
Hverjum hefði nú dottið það í hug?
5. Uppeldi
Ég tilheyri barnasprengjukynslóðinni sem
fæddist eftir að seinni heimsstyrjöld lauk fram
að því að Pillan kom til sögunnar. Á þessum
tíma þótti ekki tiltökumál að eignast 5-6 börn. Á
Höfundur og Land Rover upp úr 1960.Dýrlingurinn Simon Templar (Roger Moore).