Litli Bergþór - Dec 2018, Page 29

Litli Bergþór - Dec 2018, Page 29
Litli-Bergþór 29 heimilum voru þá oftast foreldrarnir með börn sín og einnig algengt að þar væru líka móður- eða föðurforeldrar. Þrjár kynslóðir. Samhengi. Ég hygg að í stærri bæjum hafi verið komin dagheimili eða róluvellir, en algengast var að eiginkonur héldu utan um börn og heimili, en eiginmenn öfluðu lífsviðurværis, væru fyrirvinnur. Já, já, við breytum víst ekki því sem var. Mig grunar, fullyrði ekki, veit ekki, að það hafi verið með pillunni sem þróunin í átt til þess sem nú er hófst fyrir alvöru. Konur tóku í síauknum mæli að afla sér menntunar og sækja vinnu utan heimilis. Uppeldi barnanna tók að færast æ meir til stofnana. Ég kýs að halda langt ekki inn á þann vettvang sem uppeldismál eru á þessum vettvangi, enda Litli Bergþór ekki fjölmiðill með athugasemdakerfi (kommentakerfi). 6. Stjórnmál Það var örugglega logið að okkur í gamla daga, að minnsta kost krítað liðugt að ýmsu leyti. Munurinn var kannski sá, að stjórnmálaöflin gátu haldið úti dagblöðum og fólk keypti þau blöð sem þeirra flokkur gaf út og fékk þar með beint í æð stefnu síns flokks, staðfestist í trú sinni á ágæti hans og hættunni sem stafaði af hinum. Kosturinn við þetta var ef til vill sá, að maður gat efast ef maður vildi. Ég hefði getað fengið lánaðan Moggann á næsta bæ, í stað þess að lesa ekkert nema Tímann. Gerði það reyndar aldrei. Seinna þegar ég komst í fjölmenningarlegra samfélag á Laugarvatni fór ég að móta eigin skoðanir á pólitíkinni. Svo breyttist allt, smám saman. Einhverjir stofnuðu dagblöð sem ruddu hinum úr vegi, að mestu. Einhverjir stofnuðu útvarps- og sjónvarpsstöðvar. Smám saman varð allt óljóst. Maður var aldrei alveg viss um hvaða hagsmunir réðu fréttaumfjöllun. Það varð óljóst hvað var ósagt látið og hversvegna öðru var haldið á lofti. Ég held að í hugum okkar bærist æ meiri efi um að það sem við heyrum, lesum eða sjáum sé í rauninni satt og rétt. Við sjáum fyrir okkur einhverja hagsmunaaðila sem freista þess að stýra hugsun okkar og skoðunum. Við lifum óvissutíma í stjórnmálum. -------------- Hver skyldi svo vera niðurstaðan úr þessum vangaveltum? Hún er í það minnsta ekki sú, að allt hafi verið miklu betra í gamla daga. Þeir dagar færðu okkur sem lifðum þá ekkert sérlega mikil lífsþægindi, svona á nútímamælikvarða, en hafa ber í huga þann algilda sannleik að þú saknar ekki þess sem þú veist ekki um eða þekkir ekki. Jú, veröldin var einfaldari áður fyrr, valkostirnir skýrari, færra sem kallaði á athyglina. Margt var hinsvegar erfiðara, ekki síst líkamlega. Ég held að ég leyfi mér bara í lokin að komast að þeirri niðurstöðu að stærsta áskorun nútímans sé, að takast á við vandann sem þægindin hafa í för með sér. Flest sem þig vantar er einum tölvusmelli frá þér. Stærsta markmið þróunar síðustu áratugina hefur verið að auka þægindi fólks. Við eigum ekki að þurfa að þola líkamlegt erfiði, við eigum ekki að þurfa að bíða, við eigum alltaf að hafa allt til alls og helst meira en við þurfum. Hvort hér er um að ræða góða þróun, læt ég aðra dæma um, sigli sallarólegur í átt að sólarlaginu, fyrir framan tölvuna, með Facebook opið á kantinum, leit- andi að gagnslausum upplýsingum eða skroll- andi (skrunandi) fram og til baka um vefsíður, sem breyta engu fyrir mig. Þetta finnst mér vel sagt.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.