Litli Bergþór - Dec 2018, Page 35
Litli-Bergþór 35
Ég fór í sumardvöl austur í Bræðratungu frekar ungur eða sjö ára. Mig langar til
að rifja upp ferðalagið þangað.
Við fórum saman austur, þú
hafðir verið í Flensborg og
varst á leið austur til foreldra
þinna. Við fórum með Bjössa
á Reykjavöllum sem keyrði
vörubíl. Þegar Bjössi var búin
að sækja okkur keyrði hann
upp í Áburðarverksmiðju
og þar var tekið fullfermi af
áburði. Svo fórum við á ýmsa
bæi þar sem hann varð að skila
áburði. Ferðin tók eitthvað tólf
tíma svo við vorum komnir í
Bræðratungu seint um kvöld.
Þar tók mamma þín á móti
mér og fór með mig upp á loft
þar sem við sváfum. Auðvitað
var nýstárlegt fyrir mig að
koma þangað svona ungur. Ég
minnist þess enn að mamma
þín sagði mér að fara með
bænirnar mínar. Ég kunni lítið
af bænum svo hún kenndi mér:
Vertu guð faðir faðir minn, sem
ég kann ennþá og fer oft með.
Sumarið 1955 var mesta
rigningarsumar í manna
minnum. Það stytti ekki upp
fyrr en um höfuðdaginn 29.
ágúst. Heyskapurinn gekk
illa og það var ekki heyjað á
engjum það sumar en það hafði
alltaf verið gert og var gert
næstu sumur. En það var samt
nóg að gera. Það var verið að
grafa fyrir húsi Sveins bróður
þíns og Siggu. Þau voru nýgift
og bjuggu í gamla húsinu
í sambýli við foreldra þína
en þau þurftu að sjálfsögðu
sérstakt hús.
Þetta tíðarfar var óskaplega
erfitt og það var reynt að
slá túnið sem gekk hálf illa
þótt það væri kominn góður
traktor. Þegar kom glæta var
reynt að breiða og svo var
sett í sæti og maður var með
yfirbreiðslur sem voru breiddar
yfir heysáturnar. Þetta þættu
undarleg vinnubrögð núna. En
sannleikurinn var sá að mér
leiddist ekki og reyndar aldrei
þegar ég var í sveitinni.
Hjá ykkur var Willis-jeppi
sem var notaður við búskapinn
og svo til ferðalaga enda var
pabbi þinn oddviti og þurfti
mikið að sinna því starfi, en
hann tók aldrei bílpróf þótt
hann ætti jeppann. Jeppinn
var árgerð 1947 og með
góðri yfirbyggingu sem Bói í
Ásakoti hafði smíðað. Hann
var notaður við heyskapinn
og sem farartæki á allskonar
fundi og samkomur. Af því að
jeppinn var yfirbyggður var
ekki hættulegt að láta unglinga
keyra hann og ég lærði fljótt að
keyra.
Það var náttúrlega eitt af
þessu sem manni þótti svo
óskaplega spennandi, að keyra
traktorinn og jeppann. Það var
einhverntíma þegar Svenni var
mjög upptekinn og Skúli þurfti
að fara á hreppsnefndarfund
á Vatnsleysu, að ég naut þess
trausts að keyra bílinn. Mér
er það minnisstætt að sætið
var orðið slitið og ég ekki
Sumardvöl
í Bræðratungu 1955 til 1961
Magnús Gunnarsson segir frá í viðtali við Pál Skúlason frá Bræðratungu
Magnús Gunnarsson á Neista.
Myndin er tekin á útihátíð á Vatnsleysu.
Skúli Gunnlaugsson í Bræðratungu í baðstofunni
að lesa við ljós frá Aladin lampa.