Litli Bergþór - dec. 2018, Side 42
42 Litli-Bergþór
Fjallskilareglugerðin mælir svo fyrir að farnar
skuli 3 leitir á afréttina ár hvert og fleiri ef þurfa
þykir. Munu Tungnamenn hafa framfylgt þessu
um áraraðir.
Leitirnar eru í daglegu tali nefndar þessum
nöfnum: fyrsta safn (í það fara 28 menn), eftirsafn
(í það fara 10 menn), og þriðjaleit (í hana fara 4
menn), og er foringi skipaður fyrir hverja leit því
dauður er höfuðlaus her, eins og máltækið segir.
Síðastliðið haust var með fádæmum vont, einkum
norðanlands, svo elztu menn muna varla annað
eins. Varð að fresta réttum þar því féð náðist ekki
af afréttinum vegna hríðar og snjóa, og komust
menn naumlega til byggða, fjárlausir.
Sunnanlands var þetta ekki eins slæmt, og gekk
allt eftir áætlun þó að fjallmenn lentu í nokkrum
hrakningum við að koma fénu niður. Er það haft
eftir einum fjallmanni, sem búinn er að fara að
minnsta kosti 50 ferðir inn yfir fjöll, að hann
hafi aldrei fengið jafn vont veður alla ferðina út
og þetta haust. Svo var farið í eftirsafn daginn
eftir réttirnar. Af þeirri ferð er það að segja, að
bíllinn, sem fór með dótið þeirra, komst ekki alla
leið vegna ófærðar af snjó og urðu þeir að reiða
það á hestum töluvert af ferðinni. Annars er dótið
flutt á bíl í tvær fyrstu leitirnar ef færð leyfir. Svo
var snjórinn mikill þegar inn á afréttinn kom, að
umbrotafærð var fyrir hestana. Allt gekk þó eftir
áætlun, og komu þeir til byggða á tilsettum tíma,
með um 30 fjár.
Þá er nú eftir síðasta leitin eða eftirleit eins og
hún er oft kölluð. Áskilið er, að hún standi yfir
eigi skemur en 7 daga og sé lokið í síðasta lagi
viku fyrir vetur, ef hægt er. Vanalega líður nokkur
tími frá því komið er úr eftirsafni og þar til farið er
í eftirleit. Þykir betra að fé renni til ef eitthvað er
eftir, og svo þurfa menn að sinna ýmsum verkum
heima fyrir áður en þeir fara, þar sem fólk er nú
víða fátt á bæjum.
Í þessa ferð, sem ég ætla að segja lítillega frá, fóru
þessir menn: Hárlaugur Ingvarsson, Hlíðartúni,
Guðni Lýðsson, Gýgjarhóli, Jón Karlsson,
Gýgjarholtskoti og sá er þetta ritar, og var hann
tilnefndur fyrirliði af háttvirtri hreppsnefnd. Kann
ég henni litlar þakkir fyrir, en hvað um það, það
verður að gera fleira en gott þykir, en það vita
allir, sem til þekkja, að ekki er maðurinn vel til
foringja fallinn. Tíðin batnaði heldur eftir tvær
fyrstu leitirnar og tók upp snjó a.m.k. framan til á
afréttinum.
Ekki var þó beinlínis álitlegt fyrir okkur að
leggja af stað inn á öræfi eftir þær fréttir, sem við
höfðum fengið þaðan, frá hinum, sem á undan
fóru. En hjá því varð ekki komist að fara og var
brottfarardagur ákveðinn miðvikudaginn 16.
október.
Voru nú hestar járnaðir (en hver maður hefur
tvo hesta) og nesti soðið og skyldu allir hittast á
Gýgjarhóli nefndan dag.
Það hefur verið venja undanfarin ár að fá jeppa
farið í áratugi. Magnús á Kjóastöðum fór í sína fimmtugustu ferð í haust og Brynjar á
Heiði sína fertugustu og var þeim tímamótum vel fagnað fyrsta kvöldið. Ráðskonurnar,
sem vart finnast betri á hálendinu, báru fram rjómatertu, allstóra og drukkið var kaffi.
Annars bar það helst til tíðinda í fjallferðinni í haust að Móra Brynjars á Heiði skilaði sér
til réttar, oftast kemur hún í eftirleit eða síðar. Móra er vitsmunaskepna hin mesta og eru
hennar sumarhagar í Fögruhlíð. Margur fjallmaðurinn hefur háð æsilega baráttu við að ná
Móru og hennar afkvæmum úr hlíðinni fögru og austur yfir Fúlukvísl í rennsli við annað
fé. Oftast hefur Móra betur og ekki óalgengt að hlúa þurfi að hörðustu smölum með bælda
sál og brotið sjálfstraust eftir viðskipti þeirra við Móru.
Mér hefur alltaf fundist það forréttindi að vera fædd og uppalin í Biskupstungum. Við
búum við anddyri hálendisins, afréttinn, fjallferðir, eftirleitir og réttir hafa mótað samfélagið
og búið til verðmætan menningararf sem okkur ber skylda til að standa vörð um og
varðveita. Það er gaman að lesa frásagnir frá liðinni tíð af fjallferðum og eftirleitum. Ég
læt hér fylgja með ljómandi skemmtilega frásögn eftir Ingvar R Ingvarsson á Hvítárbakka,
sem birtist í 2. tölublaði Bergþórs 1963 um þriðju leit á Biskupstungnaafrétti haustið
1963. Greinina fann ég vel varðveitta við tiltekt í íbúðarhúsinu í Bræðratungu.
Þriðja leit á Biskupstungna-
afrétt haustið 1963
Ingvar Ingvarsson, Hvítárbakka:
Rjómaterta
og kaffi?
Á fjöllum!
Áttu annan?