Litli Bergþór - dec. 2018, Side 45
Litli-Bergþór 45
með Jökulfalli, Svartá og Fúlukvísl í Hvítárnes,
sem er næsti náttstaður.
Var nú skipt verkum. Tveir fóru með kindurnar,
sem nú voru orðnar 5, og trússahestana niður
með Svartá. Einn fór með Jökulfallinu og einn
með Fúlukvísl og kom það í minn hlut. Skyldi ég
einnig smala það, sem eftir var á laugardaginn.
Gekk þetta allt eftir áætlun og fannst engin kind
þennan dag. Um kvöldið fór að snjóa, en þá voru
allir komnir í húsaskjól. Í Hvítárnesi gerðum við
okkur glaða stund þetta kvöld, eftir því sem efni
stóðu til. Var nú tekið fram allt það bezta, sem
menn höfðu í fórum sínum, því nú fer að síga á
seinni hluta fjallferðarinnar og ekki þykir gott að
reiða mikið af nesti til byggða aftur. Allur var sá
gleðskapur samt í hófi og var engum meint af,
hvorki utan né innan. Sungin voru mörg falleg ljóð
þessa stund, því allir vorum við félagar sæmilegir
söngmenn, þó ekkert hefðum við hljóðfærið til að
fara eftir.
Þriðjudagur: Við vöknuðum hressir og
endurnærðir þennan morgun. Veðurútlitið var
ekki sem bezt, gekk á með dimmum éljum og var
kominn talsverður snjór. Nú skal leita umhverfis
Bláfell í Fremstaver og er það löng leið.
Mötuðumst við nú í skyndi, gerðum hreint húsið
og héldum svo af stað með allt okkar hafurtask.
Reyndist seinfarið suður fyrir Hvítárbrú, einkum
fyrir kindurnar, bæði af snjó og byli. En færð og
veður fór batnandi þegar á daginn leið og náðum
við í björtu í Fremstaver. Fundum við 2 kindur til
viðbótar um daginn.
Þarna áttum við góða nótt í hinu nýja húsi, sem
hreppurinn lét byggja síðastliðið haust. Er það vel
úr garði gert og öllum til sóma, sem að því stóðu.
Miðvikudagur: Þá er runninn upp síðasti dagur
ferðarinnar og er veður allgott. Nú á að leita suður
að Sandá og svo Hólaland að afréttargirðingu,
sem er skammt fyrir innan Kjóastaði. Tveir menn
áttu að koma til móts við okkur við Sandá, en
þeir voru farnir sökum þess að við vorum á eftir
áætlun. Höfðu þeir leitað nokkuð af því svæði,
sem átti að leita þennan dag. Eitthvað fundu þeir
af fé, en ég man ekki hve mikið. Af okkur er það
að segja, að við fundum enga kind þennan dag
og vorum við komnir að Kjóastöðum kl. 3 um
daginn.
Þá er þessari ferðasögu lokið. Ég hef reynt að
skýra frá í stórum dráttum, hvernig eftirleit gengur
til. Eins og sjá má var þetta engin svaðilför og
er það mest að þakka því hvað færðin var góð á
afréttinum þrátt fyrir óhagstæða tíð.
Þetta var mín 21. ferð í eftirleit og vil ég nú
að lokum nota þetta tækifæri til að þakka þeim
mönnum, sem með mér hafa verið í þessum
ferðum bæði fyrr og síðar, fyrir ánægjulegar
samverustundir.
Ingvar Ingvarsson, Hvítárbakka.
Öll almenn málningarvinna
Skrautmálning & veggfóðrun
Snyrtileg umgengni
Fagleg vinnubrögð
Gleðileg jól
Arnar Sigurbjartsson, málari
Sími 777 5872