Litli Bergþór - Dec 2018, Page 46

Litli Bergþór - Dec 2018, Page 46
46 Litli-Bergþór að sér, - fimm börn, það yngsta fjögurra ára, - en móðir mín og eldri systir hennar Ruth, þá 19 ára, aðstoðuðu og unnu fyrir mat til heimilisins. Auðvitað hjálpaði að eiga stóra fjölskyldu þarna í þorpinu. En móðir mín var einnig að eðlisfari bjartsýn og æðrulaus, sem hjálpaði henni að yfirstíga erfiðleika og veikindi síðar á ævinni. – Titill á viðtali, sem Guðrún Guðlaugsdóttir tók við hana fyrir Morgunblaðið, 13. September 1987, lýsir henni nokkuð vel: „Lærði snemma að sætta mig við hið óumflýjanlega“. Móðir mín lést fyrir 30 árum, árið 1988, svo þeim fer fækkandi Tungnamönnum sem þekktu hana. En ég vona samt að einhverjir hafi gaman að þessum minningum hennar frá átthögunum. Geirþrúður Sighvatsdóttir --- Góðir samkomugestir! Ég var beðin um að segja ykkur svolítið frá mínum heimahögum. Mér leist nú ekki meir en svo á það, en fannst svo að mér ætti að vera það ljúft að lýsa því hvernig umhverfið var heima og hvað við höfðumst að. Það verður varla merkilegt né mikið, en ég ætla að gera tilraun. Ég ólst upp í sveitaþorpi á því landsvæði í Norður Þýskalandi, sem heitir „Lüneborgarheiði“. Þorpið heitir Hermannsburg. Það var talsvert stórt, eða um 3.500 íbúar fyrir stríð. En sveitarþorp engu að síður, því að bændur bjuggu um allt þorpið. Svo var það aðal verslunarstaður margra smáþorpa í kring. En það var ekki bara verslun sem var sótt til Hermannsburgar, þar er Miðskóli, Menntaskóli og Trúboðsskóli og þorpið getur státað af þrem kirkjum, þjóðkirkju og tveim fríkirkjum. Þjóðkirkjan hélt upp á 1000 ára afmæli fyrir skömmu og var gerð upp um sama leyti. Einu sinni eða tvisvar brann hún samt að mig minnir. En nú langar mig að fara með ykkur út fyrir þorpið. Vegir liggja þar í 7 áttir, 3-5 km eru til þorpanna í kring, en einn vegur er lengstur, þar eru 15 km til næsta þorps. Sá vegur liggur upp „hæðina“ eins og það var kallað. Fyrst komum við þar í gegn um vítt heiðaland, vaxið beitilyngi, einitrjám, birki og greni. Seinna taka við miklir Minningar frá heimahögum í Þýskalandi eftir Margréti Grünhagen á Miðhúsum (f. 1926 d. 1988) Hús Grünhagenfjölskyldunnar í Baven 1952. Foreldrar mínir, Margrét Grünhagen og Sighvatur Arnórsson, fluttu í Tungurnar árið 1952. Móðir mín þýsk, faðir minn ættaður úr S-Þingeyjasýslu. Þau bjuggu fyrsta árið á jörðinni Bóli meðan þau byggðu íbúðarhús og fjárhús á Miðhúsum, en þá var þar ekkert hús uppistandandi. Á Miðhúsum bjuggu þau síðan alla sína búskapartíð, voru þar með blandað bú og komu upp sínum sex börnum. Handskrifuð blöð að erindi þessu fundust í svefnherbergi foreldra minna þegar gamli bærinn á Miðhúsum var leigður út árið 2015. Engin dagsetning er á þeim, en ef miðað er við niðurlagsorðin, er það væntanlega skrifað til flutnings á einhverri innansveitarsamkomu fyrir 1970, því það ár fór móðir mín til Þýskalands í fyrsta sinn frá því hún flutti til landsins árið 1949. Erindið fjallar aðallega um umhverfið og lífið í Hermannsburg, - þorpinu í Lüneborgarheiðinni í Norður-Þýskalandi, - þar sem móðir mín ólst upp. Hún eyðir ekki mörgum orðum í ástandið á stríðsárunum, en þó eru setningabrot hér og þar, sem vísa í erfiða lífsbaráttu. Sjálf talaði hún aldrei um stríðsárin við okkur börnin sín, né erfiðleika þeirra systkina við að lifa af eftir dauða foreldra þeirra. Gertrud amma mín dó af barnsförum þegar móðir mín var 12 ára og faðir hennar Christoph dó 1943 þegar hún var 17 ára. Anna föðursystir þeirra tók þá heimilið

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.