Litli Bergþór - des. 2018, Síða 55
Litli-Bergþór 55
„Kanillinn
er kynlíf,
sykurinn er ástin“
Töff
12 islendingabok.is
13 Dagbækur Ólafs Jónssonar (1899 – 1986) árin 1936 – 1942 í fórum skrásetjara. Á útfarardegi Lárusar var 9 stiga frost
í Tungufelli.
Súluritið hér til hliðar sýnir vel muninn á fóðurþörf ánna og
sauðanna og einnig mismun heygjafar milli ára. Veturinn
1890/91 hefur verið hagstæður, sauðunum var gefið aðeins
34 sinnum á rúmlega tveimur mánuðum og um 20 kg af
heyi fóru í hvern sauð. Dæmi um uppgjör Lárusar eftir
veturinn er eftirfarandi færsla fyrir Dalhúsið vorið 1894
(stafrétt eftir vasabókinni):
Þanninn hef eg gefið þennann vetur hjer um bil 52 hesta af heyi 63 ám
í 14 vikur og 3 daga, í hverjum hesti nálægt 14 kírl[aupar], hver kírl.
að vikt 10 π [pund] svo hver ær hefur jetið nálægt 114 π af heyi eða
ekki fullkomlega 1 heyhest, því hver hestur nærri 140 π.
Eftir dvölina í Tungufelli var Lárus árum saman norður
í Húnavatnssýslu.8 Þá var hann oft fyrirliði Húnvetninga í
fjallferðum (göngum) suður á Kjöl, þar sem þeir smöluðu
með Biskupstungnamönnum svæðið frá Sandkúlufelli
norðan Seyðisár suður í Gránunes sunnan Kjalhrauns.
að sér ýmsum fróðleik. E.t.v. má segja að hann hafi verið „andlegur einfari“ eins og sagt hefur verið um
fólk með hæfileika sem vegna ytri aðstæðna fengu ekki að njóta sín. Líklega hefur hann kunnað best við
sig uppi á öræfum þar sem hann réð sér sjálfur og var í forystu bæði í haustleitum og með ferðamönnum
sem hann fylgdi yfir hálendið.
Lárus andaðist á Bergsstöðum 5. mars 1937 á 75. aldursári.12 Hann var jarðsettur í Tungufelli 13. mars.
Þann dag skrifar Ólafur Jónsson í Tungufelli í dagbók sína: „Lárus á Bergsstöðum var jarðaður og var
um 60 manns...“13 Það mun hafa þótt fjölmenn jarðarför á köldum vetrardegi þar sem um var að ræða
einhleypan vinnumann sem lengi hafði verið búsettur í fjarlægum sveitum. Mannfjöldinn sem fylgdi
Lárusi til grafar er til vitnis um vinsældir þær og virðingu sem hann naut meðal samtíðarmanna.
Myndagátan
Litli Bergþór heldur uppteknum hætti frá síðasta blaði og hér er komin önnur
myndagáta eftir Unni Malín Sigurðardóttur. Að þessu sinni eru verðlaun veitt
fyrir rétta lausn gátunnar, tvær ljóðabækur eftir Sigríði Jónsdóttur frá Arnarholti,
Kanill og Undir ósýnilegu tré, auk gjafaöskju frá Friðheimum. Ritstjórnin þakkar
þeim Sigríði og Friðheimum fyrir örlætið.
Sendið lausnir á lbergthor@gmail.com merkt MYNDAGÁTA og látið nafn og
símanúmer fylgja með. Skilafrestur rennur út kl. 18:00 þann 6. janúar. Verður
sigurvegari tilkynntur á facebooksíðu Litla Bergþórs og í næsta blaði. Ekki er
gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóðum, það er að segja; a/á, e/é,
i/í, o/ó, u/ú og y/ý.
Lausn gátunnar úr síðasta blaði:
Litli Bergþór er örugglega besta blað í Biskupstungum.