Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 24
24 29. nóvemberFRÉTTIR B lessað golfið, helsta áhugamál Don- alds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur kostað Bandaríkjamenn ansi mikið síðan hann tók við embætti í janúar árið 2017. Áætlað er að 115 millj- ónir dollara, rúmlega 14 milljarðar króna, hafi farið í golffrí forsetann síðustu tæpu tvö árin. Það jafngildir því að hann myndi þiggja forsetalaun í 287 ár, en hann nýt- ir hvert tækifæri til að monta sig af því að þiggja ekki forsetalaun. Hins vegar er ekki hægt að slá upp- hæðinni sem hefur farið í golfið fastri því Hvíta húsið neitar að gefa upp þess- ar upplýsingar, eins og fram kemur í grein Huffington Post um málið. Huffington Post óskaði eftir upplýsingum um hve margir opinberir starfsmenn væru með í för í þakkargjörðarfríi Trump á Palm Beach í Flórída, á hótelinu sem hann sjálfur á, nú um helgina og hvað ferðin kostaði, en golf mun leika þar veigamikið hlutverk. Svar Stephanie Grisham, fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins, var stutt og laggott: „Nei.“ Rennur allt í vasa Trump Hvíta húsið þarf ekki að veita þessar upp- lýsingar þar sem það er undanskilið upp- lýsingalögum. Hins vegar er það brot á stjórnarskrá Bandaríkjanna að Trump þiggi aukagreiðslur, utan forsetalauna, frá bandarískum yfirvöldum. Af þessum 115 milljónum dollurum sem hafa runnið í golfferðir forsetans að því er virðist, hef- ur mikill peningur farið í að borga fæði og uppihald fyrir öryggisverði, starfsfólk Hvíta hússins og aðra opinbera starfsmenn enda þarf mikið fylgdarlið þegar forseti Banda- ríkjanna er annars vegar. Ýmsir fjölmiðlar hafa látið á það reyna fyrir dómi hvort þessar upplýsingar ættu ekki erindi til almennings. ProPublica fékk til að mynda upplýsingar varðandi kostnað við heimsókn kínverska forsetans Xi Jinp- ing árið 2017, en forsetarnir tveir skemmtu sér á Mar-a-Lago á Palm Beach á Flór- ída, á sama stað og Trump fagnar þakk- argjörðarhátíðinni. Hér er vert að minna á að hótelið og golfvöllurinn eru í eigu Trump. Samkvæmt upplýsingum ProPub- lica borguðu bandarískir skattgreiðendur 546 dollara, tæplega 70 þúsund krónur, fyr- ir nóttina á hótelinu fyrir hvern af þeim 24 starfsmönnum Trump sem gistu á svæð- inu. Er þetta talsvert hærra gjald en rukk- að er vanalega fyrir herbergi á staðnum. Þá borguðu skattgreiðendur einnig rúmlega 1.000 dollara, um 122 þúsund krónur, fyr- ir 54 drykki á barnum sem pantaðir voru af starfsmönnum Hvíta hússins. Property of the People ljóstraði ný- lega upp að leyniþjónustan hefði fengið 254.021 dollara fyrstu fimm mánuðina sem Trump var forseti fyrir að fylgja honum í 25 golfferðir. Fram að síðasta miðvikudegi hafði Trump farið í golf 223 sinnum síðan hann varð forseti. Því má leiða að því líkur að 2,3 milljónir dollara hafi farið til leyni- þjónustunnar í forsetatíð Trump. Gagnrýndi Obama Þessi mikli golfáhugi Trump og peningarn- ir sem renna í áhugamálið eru einnig ansi spaugilegir því Trump gagnrýndi fyrr- verandi forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, ítrekað fyrir að spila mikið golf. „Barack Obama spilar golf til að flýja vinnuna á meðan Bandaríkin fara í ræsið,“ tísti Trump í desember árið 2011. Í kosningabaráttunni sagði Trump enn fremur að hann myndi aldrei hafa tíma til að fara í golf ef hann yrði kosinn forseti. „Ég elska golf en ég held að ég myndi aldrei sjá Turnberry aftur ef ég kæmist í Hvíta húsið. Ég held að ég myndi aldrei sjá Doral aftur,“ sagði hann á kosningafundi í febrúar árið 2016 og vísaði í tvo golfvelli í hans eigu. „Ég held að ég sæi ekkert. Ég myndi vilja vera bara í Hvíta húsinu og vinna eins og brjálæðingur.“ Þrátt fyrir þessar yfirlýsingar hefur Trump leikið mun meira golf en fyrir- rennari hans. Þegar Obama hafði verið í embætti í tæp tvö ár, líkt og Trump er núna, þá hafði hann eytt 88 dögum á golf- velli. Trump hefur eytt 223 dögum í það. Auk þess kaus Obama yfirleitt að spila golf í grennd við Hvíta húsið en Trump ferð- ast langar vegalengdir til að sinna áhuga- málinu og spilar á sínum eigin golfvöll- um í New Jersey og Flórída. Síðan Trump tók við embætti hefur hann aðeins tvisvar leikið golf á golfvöllum sem hann á ekki, bæði skiptin í Japan. Sérfræðingar hafa því haldið fram að þessi gífurlegi kostnaður við golfið sé eingöngu til að færa peninga úr vasa skattgreiðenda í vasa Trump. n á þinni leið Á ÞINNI LEIÐ HRINGDU Í SÍMA 522 4600 TAKTU KRÓK Á LEIÐARENDA Krókur hf. er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun thónabifreiða og annarra birfreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur búður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum • 24 stunda þjónustu allt árið um kring • björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þar þá á verkstæði Krokur.net / Suðurhraun 3 / 210 Garðarbær FJÁRDRÁTTUR Á FLÖTINNI n Áætlað er að golfferðir Donalds Trump hafi kostað skattgreiðendur 115 milljónir dollara n Golfar nánast alltaf á sínum eigin völlum Lilja Katrín Gunnarsdóttirlilja@dv.is Fylgdarlið Fjölmargir starfsmenn fylgja Trump hvert sem hann fer. Fugl eða fiskur? Vonandi er Trump orðinn góður í golfi eftir allar þessar ferðir. MYNDIR: GETTY IMAGES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.