Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 44
Bækur og menning 29. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ KNIFEMAKER: Einstakir handgerðir hnífar í jólapakkann Palli hnífasmiður hefur smíðað hnífa í um 35 ár og frá upphafi hefur aðalsmerki hans verið að nýta íslenskt hráefni. „Þetta byrjaði sem áhugamál en svo fór fólk að sýna hnífunum áhuga, ég fór að selja þá og svona vatt þetta upp á sig. Í dag er ég að búa til ýmiss konar hnífa svo sem veiðihnífa, flökunar- og fláningarhnífa, útivist- arhnífa, tálghnífa, sveppatínsluhnífa og margt fleira. Matreiðsluhnífarnir frá Knifemaker eru svo framleiddir af henni Soffíu Alice, samstarfskonu minni til margra ára og fyrrverandi eiginkonu. Hún lærði af mér á sínum tíma og hefur verið að búa til frá- bæra matreiðsluhnífa núna í um 7–8 ár,“ segir Páll Kristjánsson. Nýtir það sem til fellur Hnífarnir frá Knifemaker eru einstak- ir enda er þetta allt saman handa- verk. „Stílar okkar Soffíu eru ólíkir að mörgu leyti. Bæði fáum við fyrsta flokks hnífsblöð að utan. Mín blöð koma frá Svíþjóð, Danmörku, Nor- egi og Þýskalandi og hennar blöð koma frá Þýskalandi og Japan. Þá notar hún mikið til erlendan harðvið í sköftin en sjálfur hef ég sérstaka unun af því að nýta íslenskt hráefni, og helst eitthvað sem myndi annars fara forgörðum. Ég nota aldrei tilbúin efni eins og plast og vil frekar nota náttúrulegan efnivið. Það er líka miklu umhverfi- svænna. Það að leita uppi gott, náttúrulegt hráefni fyrir sköftin, er að auki hálf skemmtunin við að búa til hnífinn. Ég fer í sláturhúsin og fæ þaðan horn og hófa. Þá vinn ég hráefnið þannig að hægt sé að nýta það. Hrútshorn þarf að byrja á að sjóða í 5–6 tíma, saga þau svo niður og þurrka í eitt og hálft ár. Hófana þarf að sjóða í tíu tíma, hreinsa til og verka og þurrka jafnlengi og hornin. Einnig nýti ég gömul tré sem falla til úr görðum og margt fleira.“ Handgerður hnífur er falleg jólagjöf Þeir sem kaupa hnífana hans Palla eru mikið til útivistarmenn og veiði- menn. „Ég hef verið að gera sérstaka sveppatínsluhnífa upp á síðkastið, en þeir eru með sérstöku blaði sem hentar vel til verksins og með bursta á endanum. Þá kaupa safnarar mikið hnífa frá mér, en allir hnífarnir eru þó smíðaðir til notkunar. Hníf- arnir mínir eru listaverk og ég lít á sjálfan mig sem listamann.“ Fallegur, handgerður hnífur frá Knifemaker er tilvalin jólagjöf handa kokkinum í þínu lífi, safnaranum, sveppatínslu- manninum eða veiðimanninum. Gæðastund fjölskyldunnar á hnífagerðarnámskeiði Palli er með stórskemmtileg hnífa- gerðarnámskeið í boði fyrir bæði fullorðna og börn á unglingsaldri. „Ég legg til allt hráefnið, blaðið og efni í skaftið og svo kenni ég gest- um að vinna hníf úr þessu. Það er ótrúlega gaman að fá til mín krakka sem hafa kannski aldrei búið til neitt í höndunum og sjá þau allt í einu standa með tilbúinn hníf sem þeir bjuggu til alveg sjálfir. Að sjá svipinn á þeim er ómetanleg upplifun, enda eru þau svo stolt af sjálfum sér. Þetta er líka frábær leið fyrir foreldra til þess að eyða gæðastundum með börnunum sínum. Öll símanotkun er bönnuð og ég banna líka erlendar slettur. Hér tölum við íslensku (nema náttúrulega ef um erlent fólk sé að ræða). Eitt námskeið er tvö skipti, sex tímar í senn.“ Námskeiðin eru haldin í verkstæði Palla og Soffíu að Álafossvegi 29 í Mosfellsbæ, en þar má einnig skoða hnífalagerinn, sem og fylgjast með listamönnunum að störfum. Þá fást hnífarnir frá Knifemaker einnig í versluninni Brynju á Lauga- vegi 29. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni knifemaker.is Sími: 899-6903 Tölvupóstur: palli@knifemaker.is Fylgstu með Knifemaker á Facebook. Myndir: Eyþór Árnason. Páll Kristjánsson, hnífasmiður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.