Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 60
60 FÓKUS 29. nóvember
Frá leðursvipum til kynsvalls og ógeðfelldra Sveinka
n Kvikmyndajóladagatal n Merktu þessar hjá þér n Hefurðu séð þær allar?
J
ólaandanum fylgir alltaf ýmis stemning með góðri aðstoð frá dægurmenningu. Í
hugum sumra bresta hátíðirnar ekki á fyrr en rétta lagið er komið í gang, jafnvel
rétti baksturinn og að sjálfsögðu réttu jólamyndirnar.
Því er kjörið að renna í gegnum 24 jólakvikmyndir. Ein jólaræma á dag kemur
hátíðarskapinu í lag með glæsibrag.
Batman Returns (1992)
Hér lætur stílistinn Tim Burton allt
flakka í abstrakt myndarömmum,
skuggamyndum í anda þýska ex-
pressjónismans og köldum þemum
sem snúa meðal annars að bældum
kynhvötum, félagslegum grímum og
ofbeldi gegn ungum börnum, að því
ógleymdu að S&M-undirtónarnir eru
gegnumgangandi. Svona eru jólin,
krakkar.
In Bruges (2008)
Leigumorðingi í tilvistarkreppu í einni
fallegustu borg heims býður ekki upp á
það sem kallast hefðbundin jólamynd.
Aftur á móti eru þeir Colin Farrell,
Ralph Fiennes, Brendan Gleeson, og
fleiri, algjörlega upp á sitt besta í sót-
svartri kómedíu sem hringir fleiri bjöll-
um en ætla mætti í fyrstu. Þessa má
endalaust vitna í á réttum tíma árs.
The Holiday (2006)
Þegar dyr lokast opnast nýir gluggar.
Eins og kemur skemmtilega fram í The
Holiday geta hinir ófyrirsjáanlegustu
hlutir oft leitt til óvæntrar gleði. Kvik-
myndinni The Holiday má ár hvert taka
á móti með opnum örmum enda er
hlýjan og sjarmörinn allsráðandi, meira
að segja hjá Jack Black, sem er merki-
lega sjaldséð.
Eden (2019)
Íslenska partímyndin Eden er einfald-
lega rokkandi fín, lítil ræma; unnin á
hnefanum, en brött, ýkt, frumleg á köfl-
um og rúllar á sterkri frammistöðu frá
einni efnilegustu leikkonu landsins.
Hún er mynd sem á örugglega eftir að
lifa góðu költ-lífi á klakanum um ókom-
in ár, sérstaklega í ljósi þess að hún er
einnig hin undarlegasta jólamynd.
Scrooge (1951)
Það er með ólíkindum hversu oft er
búið að festa Jólasögu Charles Dick-
ens á filmu. Áhorfandinn, sem er ekki
kominn með bráðaógeð af sögunni,
er nánast með valkvíða um hvaða út-
gáfu smella í tækið. Þó er til rétt lausn
við því hugarangri og fer ekki á milli
mála að útfærslan með Alistair Sim í
burðarhlutverkinu ber af. Hún gefur
kunnuglegri sögu nokkur viðbætt smá-
atriði og kemur þroskasaga Skröggs-
ins út áreynslulaust og vekur upp sterk
áhrif. Annars má alltaf hafa útgáfuna
með Prúðuleikurunum og Michael
Caine sem kost til vara.
Kiss Kiss Bang Bang (2005)
Frasakóngurinn Shane Black (Lethal
Weapon) er hér í essinu sínu með kol-
ruglaðri félagakómedíu um morðgátu
í Hollywood á hátíðartímum. Black er
þekktur fyrir að búa til naglharðar en
hnyttnar og ófyrirsjáanlegar spennu-
myndir sem gerast á þessum tíma
árs. Til að bæta stjörnuna ofan á þetta
subbulega en meinfyndna jólatré hefur
Robert Downey Jr. sjaldan verið betri,
eða beittari.
Miracle on 34th Street (1947)
Hér er ekkert á boðstólum nema hjarta-
hlýja og listin að slökkva á allri nei-
kvæðni. Miracle on 34th Street, endur-
gerðin frá árinu 1994, er ekki alslæm
heldur. Túlkun Edmunds Gwenn á
meintum jólasveini myndarinnar er ein
sú allra besta og sögunni tekst af mik-
illi snilld að vera dramatísk og upplífg-
andi án þess að síga fullmikið út í meló-
drama eða sykur. Þessi er ómissandi.
The Hateful Eight (2015)
Rokkstjörnuleikstjórinn Quentin Tar-
antino tjaldar öllum níhilismanum til
og verður seint hægt að kalla áttundu
kvikmyndina hans gleðilega. Myndin
sýnir þó á flugbeittan máta hvað gerist
þegar hópur stórhættulegs fólks get-
ur verið á hálum ís þegar allir eru fastir
undir sama þaki á meðan snjóbylur
geisar. Jólaandinn sest þó að með stór-
glæsilegum hætti í ógleymanlegri senu
þar sem Heims um ból er spilað á píanó
yfir einræðu leikarans Samuels Jackson.
Eins og sjá má í þessum lágstemmda
en grimma snjóvestra Tarantino heldur
maðurinn bæði upp á hvít jól og rauð.
Því ber að fagna.
The Long Kiss Goodnight
Það er varla hægt að mæla hversu eitur-
svöl Geena Davis er í þessari mynd.
Shane Black er kominn hér í enn
einn jólagírinn þar sem eltingarleik-
ir, sprengingar, grafin leyndarmál og
töffarastælar eru borðleggjandi. Annað
væri nú hin mesta synd.
Edward Scissorhands (1990)
Það heldur enginn upp á melankólísk
jól eins og Tim Burton, en gegnum-
gangandi drunginn gerir að verk-
um að vonarneistinn og hlýju undir-
tónarnir skera sig þá meira úr. Johnny
Depp er endalaust trúverðugur og
elskulegur sem sakleysinginn með
klippikrumlurnar, sem reynir sitt besta
til að gera öðru fólki til geðs og heilla
Winonu Ryder. Öðru af tveimur mark-
miðum er náð, sem telst til mikils jóla-
sigurs.
Gremlins (1984)
Eru börnin nógu gömul til að horfa á
drungalegar myndir fyrir lengra komna
en þó ekki komin á réttan aldur til að
leggja í harðkjarna hryllingsmyndir?
Þarna kemur Gremlins eins og kölluð;
ákaflega skemmtileg, vel gerð og prakk-
araleg ævintýramynd sem hefur ábyggi-
lega í gegnum árin gegnt hlutverki sem
martraðarfóður margra barna. Einhvers
staðar þarf að byrja.
Rare Exports
Frændur okkar Finnar kunna aldeilis
að mjólka það að nærvera jólasveinsins
sé ekki alltaf af hinu góða. Rare Exports
tekur flottan snúning á hefðir og fær
prik fyrir einn makalaust ljótan Sveinka
sem kallar ekki allt ömmu sína.
1. desember 2. desember 3. desember 4. desember
5. desember
6. desember 7. desember
8. desember
9. desember
10. desember
11. desember
12. desember