Fréttablaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 4
Tölur vikunnar 06.03.2016 Til 12.03.2016
4.000
kílómetra af loft-
línum ætlar RARIK
að leggja í jörð á
næstu 20 árum.
40.000
ferkílómetra hálendisþjóðgarður
er krafa náttúruverndarfólks og
ferðaþjónustunnar.
70%
af fasteignamarkaði
er stjórnað af
stærstu fasteigna-
félögum landsins.
15 dómarar
munu eiga sæti
við nýtt milli-
dómstig – Lands-
rétt.
302
einstaklingar leituðu til Stígamóta
í fyrsta sinn árið 2015.
194
létust eða slösuðust alvarlega
í umferðinni árið 2015.
181.000 farþega
flutti Icelandair í
febrúar sem var
26% fjölgun frá
fyrra ári.
Þrjú í fréttum
Bið, höfuðsafn
og popúlismi
Snædís Rán Hjartardóttir
háskólanemi sem er með sjaldgæfan
taugahrörnunarsjúkdóm
sagði mennta-
málaráðu-
neytið hafa
sniðgengið
Félag fólks
með sam-
þætta sjón-
og heyrnar-
skerðingu. Hún
kvaðst enn bíða
eftir breytingum eftir að hún vann
mál sitt gegn ríkinu. Henni hafði
verið synjað um endurgjaldslausa
túlkaþjónustu.
Hilmar J. Malmquist
forstöðumaður Náttúruminjasafns
Íslands
sagði stöðu Nátt-
úruminjasafns
ins stór-
undarlega
nú þegar
einkaaðilar
setja á fót
náttúrusýn-
ingu í Perlunni.
Þeir væru að fara
að rækja lögbundnar skyldur
höfuðsafns þjóðarinnar sem væri
húsnæðislaust og fjársvelt.
Unnur Brá Konráðsdóttir
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
sagði popúlisma
vera aðal-
vandamál
stjórn-
málanna.
Stjórnmála-
menn gerðu
allt til að
fanga athygli
sjónvarpsmynda-
véla. Þeir vildu breyta samfé-
laginu til hins betra en stundum
tæki púkinn stjórnina af þing-
mönnum. Hún sagði jafnframt
erfitt að eiga góða vini í pólítík. Í
prófkjöri væru menn að slást við
félagana.
Ferðamál Umhverfisstofnun hefur
umsjón með reglubundnu viðhaldi
á svæðinu við Gullfoss. Nú liggja
svellbunkar yfir jörð á svæðinu við
fossinn og ferðamenn eiga bágt
með að fóta sig. Kvartað hefur verið
undan því að hálkuvörnum, söltun
og söndun hafi ekki verið sinnt sem
skyldi.
Þá hafa ferðamenn virt lokanir
að stíg að vettugi en lögregluborða
hefur verið komið fyrir til að hindra
aðgang að stígnum sem liggur loka-
spottann að fossinum.
Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri hjá
Umhverfisstofnun, segir til standa
að setja upp skilti sem vari ferða-
menn við og hvetji þá til að vera á
mannbroddum.
„Það er í verkahring Umhverfis-
stofnunar að sjá um viðhald á
göngustígum. Almennt séð er
það þó þannig að ferðamenn sem
koma til Íslands bera ábyrgð á eigin
öryggi, rétt eins og ferðamenn sem
fara til útlanda,“ segir hann.
Að sögn Ólafs þurfa ferðamenn
að kynna sér aðstæður á hverjum
stað.
„Við höfum verið að sanda helstu
gönguleiðir á svæðinu en stundum
skapast veðurskilyrði þar sem er
erfitt að halda uppi hálkuvörnum.
Við erum að fara að setja upp skilti
von bráðar. Á þeim verður varað við
hálku og gestir beðnir um að vera á
mannbroddum.“
Svæðinu er aldrei lokað þrátt fyrir
vond veðurskilyrði.
„Nei, það hefur ekki verið lokað
og það er ekki í okkar verkahring
að loka svæðinu. Það væri verk lög-
reglunnar eða Almannavarna. En
þegar kemur að því að loka aðgangi
að ótryggum stíg, þá er það í okkar
verkahring. Við ætlum að loka betur
af ótryggt svæði með hliði þannig
að ferðamenn eigi erfiðara með að
virða lokanir að vettugi og merkja
það betur,“ segir Ólafur.
Þá er einnig von á betri tækja-
búnaði. „Við eigum von á öflugum
snjóhreinsi og sanddreifara síðar
í mánuðinum. Það er bara einn
starfsmaður sem sinnir þessu en við
viljum bæta þjónustuna og upplýsa
ferðamenn betur.“
Ólafur segir aukinn fjölda ferða-
manna um vetur koma öllum á
óvart. Unnið hafi verið að því að
fjölga ferðamönnum til landsins yfir
vetrartímann en hann telji að það
hafi enginn búist við að fjölgunin
yrði svo mikil svo fljótt.
„Við erum að reyna eins og við
getum að bregðast við þessu. Mér
skilst að Íslandsstofa muni standa
að átaki í þessum efnum og fræða
ferðamenn betur um þær aðstæður
sem ríkja hér. Það liggur líka fyrir að
það þurfi að stórefla heilsárs land-
vörslu á svæðinu,“ segir Ólafur A.
Jónsson. kristjanabjorg@frettabladid.is
Von á betri tækjum og ætla að
aðvara ferðamenn við Gullfoss
Til stendur að vara ferðamenn betur við hættu sem skapast við Gullfoss þegar svell liggur yfir svæðinu. Rætt
hefur verið um úrbætur um árabil. Umhverfisstofnun ber ábyrgð og segir að hálkuvarnir verði bættar.
Ferðamenn áttu afar erfitt með að fóta sig á svellinu við Gullfoss þegar ljósmyndara bar að á fimmtudag. FRéttAblAðIð/PjetuR
lögregluborðar og skilti vara ferða-
menn við ótryggum stíg sem liggur
lokaspottann að fossinum. til stendur
að loka svæðið betur af með hliði.
FRéttAblAðIð/PjetuR
Við erum að fara að
setja upp skilti von
bráðar. Á þeim verður varað
við hálku og gestir beðnir
um að vera á mannbroddum.
Ólafur A. Jónsson hjá Umhverfisstofnun
Heilbrigðismál Bílaskýli Land-
spítalans var breytt í bráðadeild í
gær. Þar verða sjúkrarúm fyrir sex
sjúklinga til að bregðast við miklu
álagi á bráðamóttökunni.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, sagði í viðtali við Stöð
2 í gærkvöldi að öryggisógn hefði
skapast á spítalanum vegna mikils
fjölda sjúklinga.
„Við vorum með 28 sjúklinga á
gangi á miðvikudagskvöldi og 35 í
rúmum sem komust ekki inn á yfir-
fullan spítala. Þetta er öryggisógn.“
Á sama degi og sjúkrarúmum var
komið fyrir í bílageymslunni birti
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra hugmyndir sínar
um að reisa nýjan Landspítala í
Garðabæ frekar en við Hringbraut.
Páll segir málflutning forsætis-
ráðherra valda vonbrigðum. Öryggi
sjúklinga sé ógnað í gömlum húsa-
kosti.
„Allt það sem truflar að nýjar
byggingar rísi sem fyrst er stór-
hættulegt. Það voru mér vonbrigði
að heyra í forsætisráðherra og
bæjar stjóra Garðabæjar. Ekki hafa
þessir menn kynnt sér málin hjá
okkur,“ sagði Páll í fréttum Stöðvar
2 í gær.
Guðfinna Jóhanna Guðmunds-
dóttir, borgarfulltrúi Framsóknar
og flugvallarvina, segir staðarval
fyrir sjúkrahús engin áhrif hafa á
umræðuna um staðsetningu Reykja-
víkurflugvallar.
„Það er vel hægt að hafa flug-
völlinn áfram á þessum stað þótt
spítalinn verði annars staðar,“ segir
Guðfinna. „Þetta snýst ekkert um
það að flugvöllurinn þurfi að vera
við hliðina á sjúkrahúsinu heldur
þarf hann að vera nálægt sjúkra-
húsinu.“ – kbg / gb
Spítalastjóri gagnrýnir forsætisráðherra
bílskýli landspítalans var í gær breytt í bráðamóttöku. FRéttAblAðIð/unA
1 2 . m a r s 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð