Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 17
Algengur frasi í Íslendinga-sögum er „hann var mikill ójafnaðarmaður“ og „hann
var enginn jafnaðarmaður“. Það er
varla að jafnaðarmaður komi fyrir án
neitunar. Aftur á móti er mikið fram-
boð af ójafnaðarmönnum: „Þorgeir
Hávarsson og Þormóður Kolbrúnar-
skáld voru litlir jafnaðarmenn,“ segir
í Grettlu. Í samfélagi ofbeldisréttar-
ins er ekki jarðvegur fyrir jöfnuð. Það
væri þá helst Dauðinn sem leggur
alla að velli jafnt, en flytur líka með
sér kærkomið réttlæti, lægir rostann
í ribböldum og valdsmönnum og
færir menn til Himnaríkis sem er
jafnaðarríki – með jákvæðri mis-
munun: hinir síðustu verða fyrstir.
„Sósíalisti“ og „kommúnisti“
koma fyrst fyrir í íslenskum texta
hjá hinum melankólska Gísla Brynj-
úlfssyni sem í Dagbók sinni í Höfn
veltir því fyrir sér hvort það sé satt að
„Hann (Kristur) sé fyrsti kommúnisti
eða sócíalisti?“ Þetta var árið 1848
þegar alda byltinga reið yfir Evrópu.
Að þessu sinni var það ekki borgara-
stéttin sem leiddi eins og fyrir 59
árum, heldur alþýðan sem gerði
kröfur á hendur borgurunum. Kröfu
um réttinn til að kjósa, réttinn til að
mynda samtök en fyrir hann var girt
með sérstökum lögum frá 1791 og
sama var raunar uppi á teningnum
í Englandi (1832) og Þýskalandi
(1854) – stjórnmálaþátttaka verka-
lýðsins var ýmist bönnuð eða skilyrt
með efnahag sem jafngilti útilokun.
„Oft er ég að hugsa um það hvort
mér ekki auðnist að lifa það að soci-
alismus sigri einhvers staðar,“ skrifar
Einar Benediktsson í bréfi til Péturs
á Gautlöndum árið 1894, og bætir
við: „Séra Benedikt á Grenjaðarstað
segir: Anno 20.000. Ég trúi ekki á
hans rauðaglósur. – Nær mun annar
eldsær rísa?“
Annað skáld, Þorsteinn Erlings-
son, boðar kenninguna fullum fetum
í byrjun 20. aldar. Í öðru tölublaði
Alþýðublaðsins, þann 21. janúar
1906, er skýrt frá því að í undirbún-
ingi sé stofnun verkamannafélags
sem „á að heita Dagsbrún“. Í sama
blaði á Þorsteinn grein upp á þrjár
blaðsíður sem hann nefnir „Verk-
efnin“:
„ …en það þykist jeg sjá í hendi
minni, að verkmannasamtökum
og verkmannablaði eða alþýðu-
manna getur því aðeins orðið lífs
auðið og framgángs, að þau snúi sér
með fullri djörfung og heils hugar að
þeirri stefnu, sem heimurinn kallar
Sósíalismus og nú er aðal athvarf
verkmanna og lítilmagna hins svo-
kallaða menntaða heims.“
Hér vísar Þorsteinn til hreyfingar
sósíalista úti í Evrópu sem hafði
stofnað Alþjóðasamband árið 1889,
réttum hundrað árum eftir frönsku
byltinguna. Því hreyfing jafnaðar-
manna hlaut að vera að minnsta
kosti jafn alþjóðleg og kapítalisminn.
Kautsky er þýskur, Lenín Rússi, Rósa
Luxemburg Pólverji, Jaurès Frakki...
en öll koma þau saman í bandalagi
sem hefur eitt og sama markmið:
að koma alþýðu landanna til valda
og grundvalla þjóðskipulag í þágu
almennings í stað auðstéttar.
Og þú veist hvernig fór: árið
1917, í miðri heimsstyrjöld, braust
út bylting í Rússlandi og í stríðs-
lokin í Þýskalandi. Í Rússlandi náði
hún með harmkvælum að skjóta
rótum, en í Þýskalandi var hún kæfð
í blóði og róttækustu foringjar jafn-
aðarmanna, Rósa Luxemburg og Karl
Liebknecht, tekin af lífi. Rússneska
byltingin var fyrirburi sem lést í
öndunarvélinni en upp af beðnum
reis Frankenstein – sem breytir ekki
því að óttinn við fordæmi rússnesku
byltingarinnar skóp alþýðuflokkum
„Nær mun annar eldsær rísa?“
á Vesturlöndum vígstöðu, en klauf
jafnframt hreyfinguna í jafnaðar-
menn (sósíaldemókrata) og sósíal-
ista (komma). Engu að síður var það
alþýðufylgi þessara hreyfinga sem
skóp samfélögin kennd við velferð.
Best lýst með gamansögu
Stöðu stjórnmálanna í dag verður
kannski best lýst með gamansögu
sem sögð hefur verið um Halldór
Laxness. Bíllinn hans fór ekki í gang
á ljósum og bílstjórinn fyrir aftan
lá á flautunni. Uns Halldóri leiddist
þófið, vatt sér út úr sínum bíl, gekk til
bílstjórans óþolinmóða og sagði: „Nú
skulum við skipta um sæti, ég skal
þeyta hornið á þínum bíl á meðan
þú startar mínum.“ Það virðist litlu
breyta hverjir eru við stjórnvölinn,
það gerist ekki neitt. Vegna þess að
við erum stödd á vegamótum sem
eru í raun og veru gjá. Og minnir á
orðin frægu sem Lenín lét falla á mið-
stjórnarfundinum: „Félagar, í fyrra
vorum við á barmi hyldýpisins, í ár
höfum við tekið risaskref fram á við.“
Málið er að snúa við. Nú er það
ekki verkalýðurinn, alþýðan, laun-
þegarnir sem heimta breytingar
heldur jörðin, lífríkið. Og þær eru
svo róttækar að hætt er við að stjórn-
málamaður sem tæki þær sér í munn
hefði um leið lokið erindi sínu. En
verkefnið hverfur ekki fyrir það: allar
auðlindir þjóðanna verða að fara í
uppihald kerfanna sem við kennum
við heilbrigði, menntun, samgöngur,
löggæslu o.s.frv. í stuttu máli: mann-
sæmandi líf. Ekki prósenta heldur
100%. Sem aftur útheimtir skipulag
framleiðslunnar í áður óþekktum
mæli. Kannski verður það ekki fyrr
en árið 20 þúsund, eins og Benedikt
á Grenjaðarstað spáði, sem breytir
ekki því að allir dagar sem eru fram
yfir daginn í dag þoka okkur nær hyl-
dýpinu.
Málið er að snúa við. Nú
er það ekki verkalýðurinn,
alþýðan, launþegarnir sem
heimta breytingar heldur
jörðin, lífríkið.
Pétur
Gunnarsson
rithöfundur
Þú afgreiðir framtalið þitt í
fjórum skrefum á
fimm mínútum
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
skattur.is
skattur.is
Á Íslandi sparar rafræna tæknibyltingin
framteljendum mikinn tíma frá því sem áður
var. Nú geta fjölmargir yfirfarið skattframtalið
sitt á örfáum mínútum. Framtalið þitt er tilbúið
og aðgengilegt á skattur.is með rafrænum
skilríkjum eða veflykli RSK með innsendum
upplýsingum frá launagreiðendum,
fjármálastofnunum og fleirum.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru á
rsk.is. Einnig er aðstoð veitt í síma 442 1414
frá kl. 9.30-15.30 og til kl. 18.00 dagana
14. og 15. mars þegar skilafrestur rennur út.
...opnar framtalið
...ferð yfir allar upplýsingar
...breytir ef ástæða er til
...staðfestir
Þú einfaldlega...
Skilafresti lýkur 15. mars