Fréttablaðið - 12.03.2016, Síða 17

Fréttablaðið - 12.03.2016, Síða 17
Algengur frasi í Íslendinga-sögum er „hann var mikill ójafnaðarmaður“ og „hann var enginn jafnaðarmaður“. Það er varla að jafnaðarmaður komi fyrir án neitunar. Aftur á móti er mikið fram- boð af ójafnaðarmönnum: „Þorgeir Hávarsson og Þormóður Kolbrúnar- skáld voru litlir jafnaðarmenn,“ segir í Grettlu. Í samfélagi ofbeldisréttar- ins er ekki jarðvegur fyrir jöfnuð. Það væri þá helst Dauðinn sem leggur alla að velli jafnt, en flytur líka með sér kærkomið réttlæti, lægir rostann í ribböldum og valdsmönnum og færir menn til Himnaríkis sem er jafnaðarríki – með jákvæðri mis- munun: hinir síðustu verða fyrstir. „Sósíalisti“ og „kommúnisti“ koma fyrst fyrir í íslenskum texta hjá hinum melankólska Gísla Brynj- úlfssyni sem í Dagbók sinni í Höfn veltir því fyrir sér hvort það sé satt að „Hann (Kristur) sé fyrsti kommúnisti eða sócíalisti?“ Þetta var árið 1848 þegar alda byltinga reið yfir Evrópu. Að þessu sinni var það ekki borgara- stéttin sem leiddi eins og fyrir 59 árum, heldur alþýðan sem gerði kröfur á hendur borgurunum. Kröfu um réttinn til að kjósa, réttinn til að mynda samtök en fyrir hann var girt með sérstökum lögum frá 1791 og sama var raunar uppi á teningnum í Englandi (1832) og Þýskalandi (1854) – stjórnmálaþátttaka verka- lýðsins var ýmist bönnuð eða skilyrt með efnahag sem jafngilti útilokun. „Oft er ég að hugsa um það hvort mér ekki auðnist að lifa það að soci- alismus sigri einhvers staðar,“ skrifar Einar Benediktsson í bréfi til Péturs á Gautlöndum árið 1894, og bætir við: „Séra Benedikt á Grenjaðarstað segir: Anno 20.000. Ég trúi ekki á hans rauðaglósur. – Nær mun annar eldsær rísa?“ Annað skáld, Þorsteinn Erlings- son, boðar kenninguna fullum fetum í byrjun 20. aldar. Í öðru tölublaði Alþýðublaðsins, þann 21. janúar 1906, er skýrt frá því að í undirbún- ingi sé stofnun verkamannafélags sem „á að heita Dagsbrún“. Í sama blaði á Þorsteinn grein upp á þrjár blaðsíður sem hann nefnir „Verk- efnin“: „ …en það þykist jeg sjá í hendi minni, að verkmannasamtökum og verkmannablaði eða alþýðu- manna getur því aðeins orðið lífs auðið og framgángs, að þau snúi sér með fullri djörfung og heils hugar að þeirri stefnu, sem heimurinn kallar Sósíalismus og nú er aðal athvarf verkmanna og lítilmagna hins svo- kallaða menntaða heims.“ Hér vísar Þorsteinn til hreyfingar sósíalista úti í Evrópu sem hafði stofnað Alþjóðasamband árið 1889, réttum hundrað árum eftir frönsku byltinguna. Því hreyfing jafnaðar- manna hlaut að vera að minnsta kosti jafn alþjóðleg og kapítalisminn. Kautsky er þýskur, Lenín Rússi, Rósa Luxemburg Pólverji, Jaurès Frakki... en öll koma þau saman í bandalagi sem hefur eitt og sama markmið: að koma alþýðu landanna til valda og grundvalla þjóðskipulag í þágu almennings í stað auðstéttar. Og þú veist hvernig fór: árið 1917, í miðri heimsstyrjöld, braust út bylting í Rússlandi og í stríðs- lokin í Þýskalandi. Í Rússlandi náði hún með harmkvælum að skjóta rótum, en í Þýskalandi var hún kæfð í blóði og róttækustu foringjar jafn- aðarmanna, Rósa Luxemburg og Karl Liebknecht, tekin af lífi. Rússneska byltingin var fyrirburi sem lést í öndunarvélinni en upp af beðnum reis Frankenstein – sem breytir ekki því að óttinn við fordæmi rússnesku byltingarinnar skóp alþýðuflokkum „Nær mun annar eldsær rísa?“ á Vesturlöndum vígstöðu, en klauf jafnframt hreyfinguna í jafnaðar- menn (sósíaldemókrata) og sósíal- ista (komma). Engu að síður var það alþýðufylgi þessara hreyfinga sem skóp samfélögin kennd við velferð. Best lýst með gamansögu Stöðu stjórnmálanna í dag verður kannski best lýst með gamansögu sem sögð hefur verið um Halldór Laxness. Bíllinn hans fór ekki í gang á ljósum og bílstjórinn fyrir aftan lá á flautunni. Uns Halldóri leiddist þófið, vatt sér út úr sínum bíl, gekk til bílstjórans óþolinmóða og sagði: „Nú skulum við skipta um sæti, ég skal þeyta hornið á þínum bíl á meðan þú startar mínum.“ Það virðist litlu breyta hverjir eru við stjórnvölinn, það gerist ekki neitt. Vegna þess að við erum stödd á vegamótum sem eru í raun og veru gjá. Og minnir á orðin frægu sem Lenín lét falla á mið- stjórnarfundinum: „Félagar, í fyrra vorum við á barmi hyldýpisins, í ár höfum við tekið risaskref fram á við.“ Málið er að snúa við. Nú er það ekki verkalýðurinn, alþýðan, laun- þegarnir sem heimta breytingar heldur jörðin, lífríkið. Og þær eru svo róttækar að hætt er við að stjórn- málamaður sem tæki þær sér í munn hefði um leið lokið erindi sínu. En verkefnið hverfur ekki fyrir það: allar auðlindir þjóðanna verða að fara í uppihald kerfanna sem við kennum við heilbrigði, menntun, samgöngur, löggæslu o.s.frv. í stuttu máli: mann- sæmandi líf. Ekki prósenta heldur 100%. Sem aftur útheimtir skipulag framleiðslunnar í áður óþekktum mæli. Kannski verður það ekki fyrr en árið 20 þúsund, eins og Benedikt á Grenjaðarstað spáði, sem breytir ekki því að allir dagar sem eru fram yfir daginn í dag þoka okkur nær hyl- dýpinu. Málið er að snúa við. Nú er það ekki verkalýðurinn, alþýðan, launþegarnir sem heimta breytingar heldur jörðin, lífríkið. Pétur Gunnarsson rithöfundur Þú afgreiðir framtalið þitt í fjórum skrefum á fimm mínútum 442 1000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is skattur.is skattur.is Á Íslandi sparar rafræna tæknibyltingin framteljendum mikinn tíma frá því sem áður var. Nú geta fjölmargir yfirfarið skattframtalið sitt á örfáum mínútum. Framtalið þitt er tilbúið og aðgengilegt á skattur.is með rafrænum skilríkjum eða veflykli RSK með innsendum upplýsingum frá launagreiðendum, fjármálastofnunum og fleirum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru á rsk.is. Einnig er aðstoð veitt í síma 442 1414 frá kl. 9.30-15.30 og til kl. 18.00 dagana 14. og 15. mars þegar skilafrestur rennur út. ...opnar framtalið ...ferð yfir allar upplýsingar ...breytir ef ástæða er til ...staðfestir Þú einfaldlega... Skilafresti lýkur 15. mars
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.