Fréttablaðið - 12.03.2016, Page 30

Fréttablaðið - 12.03.2016, Page 30
urnar voru að skrifa fyrir börnin sín sem höfðu tekið úr sparibauknum sínum og keypt eitthvað handa honum. Þetta var ótrúlega magnað og allur þessi fallegi stuðningur hjálpaði manni að standa í lapp- irnar,“ segir hún og rifjar upp eina sendinguna sem skipti hana afar miklu máli. „Um tveimur árum eftir slysið fékk ég smá pakka í pósti. Það var vídeóspóla sem hafði verið tekið upp á. Það voru rétt í kringum tvær mínútur af Hreiðari að leika við strákana í læk við sumarbústað hérna vestur í Vatnsfirði í Flóka- lundi. Spólan kom frá fólki sem hafði verið í bústað við hliðina á þeim og ég þekkti þau ekki neitt. Þau tóku þetta óvart upp því það voru krakkar frá þeim að leika sér í læknum. Þetta sendi konan mér Gunnhildur segir þetta reynslu sem enginn ætti að hafa á bakinu. Gunnhildur og Anton saman stuttu eftir atburðinn. Fyrst á eftir talaði hann mikið um foreldrana og litla bróður sem hann færði reglulega gjafir í kirkjugarðinn. FréttAblAðið/GvA Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að bjarga honum,“ segir Gunn-h i l du r E l í a s d ó t t i r , föðuramma Antons Lína. Gunnhildur bjó á efri hæð hússins ásamt þáverandi eiginmanni sínum og dóttur. Þau vöknuðu við læti á neðri hæðinni og sáu fljótt hvað var í gangi. „Við vöknuðum við öskur og hróp, það var líklega Anton Líni sem náði að vekja pabba sinn. Hin voru þá sennilega dáin í reyknum. Það var talið að þau hefðu aldrei vitað hvað gerðist,“ segir Gunnhildur. Hún hljóp út á nærfötunum niður á neðri hæðina þar sem ekki var innangengt af efri hæðinni. Þá lá Hreiðar aðframkominn við úti- dyrnar. „Pabbi hans komst með hann hálfa leið út. Hann komst út en týndi Antoni á leiðinni í kófinu. Þegar ég kem að segir pabbi hans strax: Anton Líni er inni. Ég var ekkert að hugsa það, auðvitað voru þau öll inni. Ég fór inn en ætlaði að fara að snúa við út af reyk og það var allt svart. Þá heyrði ég pínulítinn grát í honum og það var kraftaverk ég skyldi finna hann því ég sá ekki neitt.“ Kom ekki til greina að flytja Gunnhildur fór út með Anton Lína en þá hafði Hreiðar farið aftur inn til þess að reyna bjarga eiginkonu sinni og yngri syni. Þau létust öll í brunanum. Dagarnir á eftir brunann voru erfiðir. Nýr veruleiki blasti við og ekki var hægt að gefast upp, þau þurftu að vera til staðar fyrir Anton Lína. „Þetta var ekki auðvelt. Ég fór með honum að kveðja þau í síðasta skiptið og það voru átök á sálinni.“ Þau fluttu úr húsinu meðan var verið að gera við skemmdirnar eftir brunann en fluttu aftur inn þremur mánuðum síðar. „Fólk var svolítið hissa á því en við sögðum alltaf að húsið hefði ekki gert okkur neitt.“ Gunnhildur segir það ekki hafa komið til greina að flytja frá Þing- eyri. Þau fengu mikinn stuðning frá bæjarbúum en litla samfélagið var lamað af sorg. „Nokkrum dögum eftir slysið kom áfallateymi frá Landspítalanum. Sóknarpresturinn sem var hérna, Guðrún Edda Gunn- arsdóttir, og eiginmaður hennar, Einar Sigurbjörnsson, voru okkur stoð og stytta. Guðrún Edda skírði báða strákana og gifti þau hjónin. Hún er enn að veita mér áfalla- hjálp fjórtán árum síðar. Þetta var ómetanlegt. Hún kom stundum, vaskaði upp, tók til og sagði manni að borða,“ segir Gunnhildur þakk- lát. Hjálp alls staðar að „Maður fékk hjálp alls staðar að. Anton Líni fékk senda pakka og bréf. Þetta var ótrúlegt. Hann fékk send föt og dót frá ókunnugu fólki. Hann var að fá bréf þar sem mömm- Kraftaverk að hafa fundið hann Gunnhildur Elíasdóttir, föðuramma Antons Lína, bjargaði honum úr eldsvoðanum eftir að faðir hans hafði hlaupið með hann hálfa leiðina út. Hún segist vera þakklát fyrir þann mikla stuðning sem fjölskyldan fékk eftir slysið. Það kom upp rosaleg reiði og sorg. Það rifjaðist upp hellingur af minningum, margt sem mér hafði verið sagt en ég hafði lokað á Þetta allt. Þetta var ekki auðvelt. ég fór með honum að kveðja Þau í síðasta skiptið og Það voru átök á sálinni. Anton notar tónlistina til að takast á við erf- iðar minningar og hefur samið lag um foreldra sína og bróður. gott að gera þetta upp í þessu lagi. Þetta er svona mín leið til að reyna að tala um þetta og gera eitthvað. Pabbi var mjög góður á gítar og þau sungu bæði vel.“ Anton býr nú á Akureyri hjá móðurömmu sinni og stefnir á að ná lengra í tónlistinni. Hann hefur verið að vinna lög með vinum sínum og saman kalla þeir sig Aquari ion. Þakklátur fyrir stuðninginn Eftir brunann var safnað fyrir Anton og fjölmargir lögðu söfnun- inni lið á ýmsan hátt. „Ég er virki- lega þakklátur fyrir hvað ég fékk mikla hjálp á þessum tíma. Það var fólk úti um allt land að hafa samband. Mér er mjög minnistætt þegar ég var yngri og var að æfa fótbolta. Þá kemur strákur með 50 krónur og spyr hvort ég hafi ekki misst fjölskylduna mína. Ég segi jú og þá segist hann vilja gefa mér 50 krónurnar sínar. Það var ýmislegt svona sem maður fann.“ Hann segir líka mikilvægt að minna fólk á að vera þakklátt fyrir það sem það á. „Þetta varð líka til þess að ég fór að hugsa hvað fólk áttar sig ekki á hvað fjölskyldan er dýrmæt og kann ekki endilega að meta það sem það hefur. Fólki finnst þetta sjálfsagður hlutur en það er það ekki.“ ↣ FréttAblAðið/Auðunn tveimur árum seinna. Það var mjög dýrmætt að fá þessa sendingu og maður skildi hvað svona litlir hlutir eru stórir í svona aðstæðum,“ segir hún. Fyrst eftir atburðinn talaði Anton Líni mikið um foreldra sína og bróður. „Við fórum mikið í kirkju- garðinn. Við bjuggum við kirkju- garðshornið og hann var alltaf að færa brósa sínum eitthvað. Gefa 1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r30 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.