Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.03.2016, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 12.03.2016, Qupperneq 31
Skissustund fyrir alla fjölskylduna Í dag milli kl. 13 og 16 býðst allri fjölskyldunni að gera eigin skissur með leiðbeiningum frá snjöllum hönnuðum í Arion banka, Borgartúni 19. Skissugögn á staðnum. Í tilefni af HönnunarMars sýna íslenskir hönnuðir og arkitektar skissurnar sínar í Borgartúni 19 og veita innsýn í hvernig hugmyndir verða til og öðlast form. Sýningin er opin um helgina milli kl. 13 og 17. Allir velkomnir – kaffiveitingar í boði. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 6 -0 8 5 9 honum nammi. Einu sinni fór ég með honum og þá var hann með bland í poka og vildi gefa brósa nammi. Svo segir hann: Heyrðu, nei amma, brósi vill ekki nammi, hann segir að ég megi eiga það, og stakk molanum upp í sig,“ segir hún hlæj- andi að minningunni. „Svo leit hann oft upp í himininn og sá stjörnurnar og þá voru það mamma og pabbi að fylgjast með honum.“ Reynslan þroskar mann Eftir því sem Anton varð eldri talaði hann minna um atburðinn. „Ég held það sé í fyrst núna þegar hann samdi þetta lag sem hann er að tjá sig um þetta frá eigin brjósti. Mér finnst gott að maður var ekki að pressa á hann að tala um þetta heldur fékk þetta bara að fljóta þegar hans tími var kominn. Þetta er mikil reynsla sem enginn ætti að hafa á bakinu. Þó að þetta sé skelfi- legt þá þroskar svona reynsla mann. Hann er að taka út þennan þroska núna,“ segir Gunnhildur. Sjálf segist Gunnhildur ekki geta útskýrt það hvernig maður nái að halda áfram að lifa eftir svona hrika- legan atburð. „Ég veit það eiginlega ekki sjálf. Það einhvern veginn ger- ist, maður þarf að halda áfram. Ég á fjögur önnur börn og auðvitað er fullt af góðu fólki í kringum mann,“ segir hún. „Stuttu eftir þetta sat ég í eldhúsinu heima og hugsaði að ég væri að fara yfir um. Þetta væri of mikið. Ég spáði í því hvort ég ætti ekki fara bara til læknis og fá ein- hverjar pillur, ég hafði ekki tekið eina einustu svefntöflu allt þetta ferli. Þá hugsaði ég með mér að ég væri komin í stórhættu ef ég færi að éta eitthvað svoleiðis en ákvað í staðinn að fara út í göngutúr. Það má eiginlega segja að ég sé búin að vera upp um fjöll og firnindi síðan. Ég hugsa stundum hvar ég væri í dag hefði ég valið hinn kostinn.“ Mikilvægt að tala um hlutina Gunnhildur segir það líka mikilvægt að tala um hlutina. „Fyrir einhverj- um áratugum talaði fólk ekki um svona hluti. Það talaði ekki um sorg- ina. Maður átti að þegja og harka af sér. Sumir komast hins vegar aldrei í gegnum svona en ég blessunarlega tilheyri ekki þeim hópi. Það sem skipti líka miklu máli er að það var allt í sátt og samlyndi þegar þau dóu. Enginn var í fýlu við neinn. Það skiptir miklu máli að eiga ekki neitt óuppgert. Auðvitað er það ekkert alltaf þannig en við vorum heppin þarna,“ segir Gunnhildur. „Auðvitað hefur þetta samt reynt mikið á alla fjölskylduna eins og hún leggur sig. Að missa næstum heila fjölskyldu úr fjölskyldunni.“ Eftir brunann var sett í gang átak til þess að vekja fólk til umhugs- unar um að setja upp reykskynjara á heimilum sínum. „Það var mikil vakning eftir þetta varðandi reykskynjara. Það var ekki reykskynjari í íbúðinni. Það var gert mikið átak í þessum málum. Við vorum ófeimin við að segja frá því að þarna vantaði reykskynjara og hugsanlega hefði ekki farið svona illa ef það hefði verið. Þarna varð engu breytt en það kannski breytti fyrir einhverja eftir á. Og ég er alveg viss um að það hafi gert það. Þó það sé andskoti sárt að læra svona af reynslunni þá er alltaf eitthvað sem skilar sér. “ Gunnhildur segir þau Hreiðar og Ingibjörgu hafa verið yndislegt fólk. Þau voru aðeins 16 og 18 ára þegar Anton fæddist. Hún segir þau hafa lifað hratt en þau giftu sig sumarið áður en þau létust. „Það lýsir þeim vel að brúðkaupsnótt- inni eyddu þau í tjaldi sem hann hafði tjaldað deginum áður. Þau sóttu strákana svo morguninn eftir og fóru með þeim í útilegu. Þau voru mikið fjölskyldufólk.“ Bræðurnir saman. h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 31l A U g A R D A g U R 1 2 . m A R s 2 0 1 6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.