Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 92

Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 92
haustið undir leikstjórn höfundar- ins. Þetta var áttunda leikrit Ibsens og líkt og í sumum eldri verka hans voru hin dramatísku átök byggð í kringum ástarþríhyrning: Kven- hetjan er fangi í dauflegu hjóna- bandi en dreymir um að eyða lífinu með öðrum manni sem hún getur bæði litið upp til og elskað. Leik- ritið hlaut afar góðar undirtektir þegar það var frumsýnt og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan. Það var sýnt í Reykja- vík árið 1892 og kom jafnhliða út á bók í þýðingu Indriða Einarssonar og Eggerts Ó. Brím en fékk köflótta dóma hérlendis. Víkingarnir segir frá ástum og örlögum norskra fóstbræðra, Sig- urðar og Gunnars, sem uppi eru á tíundu öld. Forsaga atburðanna á sviðinu er sú að þeir sigla til Íslands í leit að ævintýrum. Þar hitta þeir landnámsmanninn Örnólf úr Fjörð- um sem flúið hefur ofríki Haraldar hárfagra í Noregi. Á hann sjö syni og dótturina Dagnýju. Með honum elst einnig upp kvenskörungurinn Hjördís sem hefur svarið að eiga þann mann sem drepur hvítabjörn sem hún á. Sigurður vinnur þá dáð í skjóli nætur en lætur líta út fyrir að Gunnar hafi drepið björninn. Í kjölfarið nema þeir fóstbræður konurnar á brott. Gengur Hjördís að eiga Gunnar og flytja þau til Háloga- lands í Norður-Noregi þar sem hann verður hersir. Sigurður kvænist hins vegar Dagnýju og leggjast þau í víking en vinátta þeirra fóstbræðra kólnar í kjölfarið. Vel hæft, Hjördís! Þegar fyrsti þáttur verksins hefst hefur Örnólfur komið siglandi til Hálogalands ásamt sonum sínum til að endurheimta konurnar úr hönd- um þeirra fóstbræðra. Á sama tíma tekur Sigurður þarna land ásamt Dagnýju og mönnum sínum, án þess að vita að Gunnar og Hjördís séu búsett á þessum slóðum. Leikritið lýsir samskiptum þessara þriggja hópa næstu daga. Smám saman kemur í ljós að Hjördís og Sigurður líta hvort annað girndaraugum en þyrftu að ryðja mökum sínum úr sá síðarnefndi fer með ófriði að bæ þeirra Hjördísar. Kára grunar að hún beri ábyrgð á þessum ófriði. Það er ekki staðfest í verkinu en kemur heim og saman við persónulýsingu Hjördísar að öðru leyti. Uppvöxtur stúlkunnar á heimili banamanns föður síns hefur hert skap hennar og henni gremst ítrekað að Gunnar skuli ekki sýna af sér meiri garpskap en raun ber vitni. Í aðdraganda leikritaskrifa sinna las Ibsen Íslendingasögurnar í dönskum þýðingum. Svo virðist sem að hann hafi orðið fyrir mestum áhrifum af Eglu, Laxdælu og Njálu en að auki studdist hann við ýmis atriði úr Völsunga sögu. Í rannsókn frá árinu 1909 gerir norski fræði- maðurinn Ferdinand G. Lynner markvissa grein fyrir flestum hlið- stæðunum milli leikritsins og forn- sagnanna. Leggur hann áherslu á efnið úr Völsunga sögu enda er sam- band þeirra Sigurðar Fáfnisbana og Gunnars Gjúkasonar við Brynhildi Buðladóttur þar augljós fyrirmynd að lýsingu Ibsens á sambandi Sig- urðar víkings og Gunnars hersis við Hjördísi. Mig langar hins vegar að beina sjónum að þeim dráttum í persónulýsingu Hjördísar sem rekja má til aðsópsmestu kvenpersónu Njálu, Hallgerðar langbrókar. Hvað sýslir þú þar? Eitt magnaðasta atriði Njálu eru orðaskipti Hallgerðar og eigin- manns hennar, Gunnars Hámund- arsonar, skömmu áður en hann er drepinn. Hópur vopnaðra manna situr um bæinn en Gunnar er þar einn til varnar. Nokkra menn fellir hann með boga sínum en það syrtir í álinn þegar óvinirnir hafa undið þakið af húsinu og einum þeirra tekist að höggva í sundur boga- streng hetjunnar. Gunnar mælir þá til Hallgerðar: „Fá mér leppa tvo úr hári þínu og snúið þið móðir mín saman til bogastrengs mér.“ „Liggur þér nokkuð við?“ segir hún. „Líf mitt liggur við,“ segir hann, „því að þeir munu mig aldrei fá sóttan meðan eg kem boganum við.“ „Þá skal eg nú,“ segir hún, „muna þér kinnhestinn og hirði eg aldrei hvort þú verð þig lengur eða skemur.“ „Hefir hver til síns ágætis nokkuð,“ segir Gunnar, „og skal þig þessa eigi lengi biðja.“ Augljóst er að Ibsen hefur hrifist af þessari senu. Til hennar vísar hann meðal annars í upphafi þriðja þáttar leikritsins þar sem Hjördís situr heima á bæ þeirra Gunnars hersis og snýr bogastreng en á borð- inu fyrir framan hana liggja bogi og örvar. Eiginmaður hennar kemur þá inn. Gunnar: Hvað sýslir þú þar? Hjördís (lítur ekki upp): Sný bogastreng; sýnist þjer ekki svo? Gunnar: Bogastreng – úr hári sjálfrar þín! Hjördís (brosandi): Mjög taka þau nú að tíðkast, þrekvirkin; þú hefir vegið son fóstra míns, og jeg hefi snúið streng þennan síðan um apturelding. Hér slær reyndar saman áhrifum úr Njálu og Laxdælu. Seinni setning Hjördísar, sem vísar til dráps Gunn- ars hersis á einum sona Örnólfs, bergmálar fleyg orð Guðrúnar Ósvíf- ursdóttur í síðarnefndu sögunni. Hún segir við Bolla, eiginmann sinn, eftir að hann hefur drepið fóstbróður sinn: „Misjöfn verða morgunverkin. Eg hefi spunnið tólf alna garn en þú hefir vegið Kjartan.“ Tak lepp úr hári þínu Hjördís Síðar í þriðja þætti leikritsins, þegar Hjördís og Sigurður eru ein á sviðinu, berst talið aftur að boga- strengnum sem hún hefur verið að flétta. Sigurður hefur á orði að hún geri góð vopn handa manni sínum. Hjördís svarar því svo: „Eigi handa Gunnari, heldur gegn þér.“ Hún bætir svo við að í dagdraumum sínum hafi hún séð Sigurð koma siglandi til Hálogalands í þeim til- gangi að brenna þau Gunnar inni. „… við stöndum ein uppi; þeir kveikja í þekjunni úti. Eitt skot af boga mínum,“ segir Gunnar; „eitt einasta skot gæti frelsað okkur;“ þá brestur bogastrengur hans –„tak lepp úr hári þínu Hjördís, og snú streng á boga minn; líf mitt liggur við!“ En jeg rek upp hlátur –„Brenni þeir, brenni þeir! – lífið met jeg eigi svo dýrt sem lepp úr hári!“ Leikskáldið nýtir sér hér efnivið- inn úr Njálu með afar frjálslegum hætti. Dæmið varpar skýru ljósi á vinnubrögð Ibsens en þeim má líkja við klippimyndatækni í myndlist eða endurhljóðblöndun (remix) í tónlist. Þess má geta að Þorleifur Örn Arnarsson og Mikael Torfason beittu á köflum áþekkri aðferð í sinni úrvinnslu á Njálu. Hallgerður og Hedda Margir sem fjallað hafa um víkinga- leikrit Ibsens í seinni tíð telja að verkið hafi aðeins bókmenntasögu- legt gildi fyrir þá sem vilja kanna þróun hans sem leikritaskálds. Lýs- andi eru ummæli eins af ævisagna- riturum hans, Michaels Mayer: „Vík- ingarnir á Hálogalandi er kostuleg bókmenntaleg eftiröpun sem felur í sér […] kjarna þess sem átti, þrjátíu árum síðar […], eftir að verða eitt af snjöllustu leikritum Ibsens.“ Verkið sem Mayer vísar til er Hedda Gabler. Mayer bendir á hliðstæður milli persóna og samtala í Heddu Gabler og Víkingunum sem eru álíka aug- ljósar og hliðstæðurnar milli síðar- nefnda verksins og Njálu. Rétt eins og Hjördís er Hedda gift manni sem hún fyrirlítur. Báðar láta sig dreyma um ástríðufullt líf með fyrrum félaga eiginmannsins en enda á því að senda þann mann í dauðann og taka eigið líf. Unnt er að líta svo á að Hedda sé af þriðju eða fjórðu kyn- slóð eftirminnilegra kvenskörunga í norrænum bókmenntum en meðal formæðra hennar eru þær Hjördís og Hallgerður langbrók. Já, við erum að hefna okkar fyrir það að þeir reyndu að ræna Snorra Sturlusyni. Við tökum Ibsen í gíslingu,“ segir Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri í nýlegu blaðavið- tali. Þar kemur fram að þeir Mikael Torfason rithöfundur hyggjast halda áfram því samstarfi sem nýlega bar ávöxt í umtalaðri uppfærslu á Njálu í Borgarleikhús- inu. Nýja verkefnið snýst um að flétta saman tveimur af þekktari leikritum Henriks Ibsen, Villi- öndinni og Fjandmanni fólksins, og setja afraksturinn á svið 2017 á árlegri Ibsen-hátíð í norska þjóð- leikhúsinu. Sú aðferð að blanda saman tveimur eða fleiri verkum í einni leiksýningu kann að virðast bæði einkennileg og óvenjuleg en svo merkilega vill til að Ibsen er meðal þeirra leikritahöfunda sem hafa lagt þetta fyrir sig. Það gerði hann um miðja nítjándu öld í leikritinu Víkingarnir á Hálogalandi (Hær- mendene på Helgeland) en það er um leið eitt elsta dæmi þess að Njáls saga hafi ratað á borgaralegt leiksvið. Sígildur ástarþríhyrningur Snemma árs 1857 fullyrti Ibsen í fyrir lestri að Íslendingasögurnar væru ekki heppilegur efniviður fyrir þá sem fengjust við nútímaleikrit- un. Samt liðu bara nokkrar vikur þar til hann hófst handa við að skrifa Víkingana. Fullskrifað kom verkið út vorið 1858 og var frumsýnt um Hugrás VefriT HugVíSindaSViðS HáSkóla íSlandS Fræðandi samstarf Fréttablaðsins og Hugrásar Fréttablaðið birtir aðra hverja helgi grein á vegum Hugrásar eftir fræði- menn og -konur. Greinarnar birtast einnig á vefnum og stundum í lengri og ítarlegri útgáfu. Heimildaskrá visir.is og hugras.is Þegar Ibsen tók Hallgerði í gíslingu Jón Karl Helgason prófessor í íslensku- og menningardeild HÍ leiðir líkur að því að Hedda Gabler eftir Ibsen eigi andlega ætt sína að rekja til Hallgerðar langbrókar enda var norska stórskáldið mikill unnandi Íslendingasagna og sótti sitthvað í þann sagnabrunn. norska leikskáldið Henrik ibsen. Í aðdraganda leiKritasKrifa sinna las ibsen Íslendingasögurnar Í dönsKum þýðingum. vegi til að láta rómantíska drauma sína rætast. Hjördís ýtir undir óvild milli þeirra fóstbræðra og um tíma er útlit fyrir að þeir berjist en verk- inu lýkur fremur óvænt á því að hún spennir boga sinn og skýtur Sigurð í brjóstið. Hún hyggst síðan svipta sig lífi svo að þau tvö geti orðið sam- ferða til Heljar. „Vel hæft, Hjördís!“ stynur Sigurður um leið og hann fellur en bætir við að hann hafi á víkingaferðum sínum tekið kristni, þannig að honum sé ætlaður annar áfangastaður en henni. „Jeg trúi á Hvítakrist; Aðalsteinn konungur hefir kennt mér að þekkja hann; og upp til hans fer jeg nú.“ Til mótvægis við þessi dramatísku sögulok fléttar Ibsen inn í verkið fáfengilegum deilum Gunnars við bóndann Kára sem enda á því að Úr uppfærslu Borgar- leikhússins á leikgerð Þorleifs arnar arnars- sonar og Mikaels Torfa- sonar á njálu. ljóSMynd/gríMur BjarnaSon 1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r40 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.