Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 96

Fréttablaðið - 12.03.2016, Side 96
Jónas Jónsson frá Hriflu er mögulega áhugaverðasti ein-staklingur íslenskrar stjórn-málasögu tuttugustu aldar. Hann varð einna fyrstur til að átta sig á því að eftir því sem lok sjálfstæðisbarátt- unnar færðust nær, yrði flokkakerfi sem byggðist á gömlum væringum í sambandsmálum Íslands og Danmerkur úrelt. Þess í stað hlyti að verða til nýtt flokka- kerfi sem byggði á stéttastjórn- málum og hefðbundnum hægri/ vinstri víglínum. Hriflu-Jónas átti því stóran þátt í að stofna bæði Framsóknarflokk- inn og Alþýðuflokkinn. Hann var meðal þeirra fyrstu til að kynna málstað jafnaðarstefnunnar hér á landi, en gerðist síðar á ferli sínum einn hatrammasti andstæðingur sósíalisma og reyndi að hrekja yfirlýsta sósíalista úr opinberum stöðum. Á sama hátt var hann lengi einn áhrifamesti forystumað- ur Framsóknarflokksins, en endaði stjórnmálasögu sína einangraður í hálfgerðri stjórnarandstöðu í sínum eigin flokki. Óhætt er að segja að Jónas hafi verið maður mótsagna og hvergi birtust þær betur en í afstöðu hans til Reykjavíkur. Andstæðingar hans á mölinni héldu mjög á lofti þeirri hugmynd að Jónas vildi veg Reykja- víkur sem minnstan og væri jafnvel hatursmaður höfuðstaðarins. Og vissulega lá þingmaður Suður- Þingeyinga ekki á þeirri skoðun sinni að óæskilegt væri að Reykja- vík yxi um of, enda væri mannlífið til sveita heilbrigðara og þjóðholl- ara en í sollinum á mölinni. En á hitt ber að líta að fáir stjórn- málamenn ef nokkrir létu sig útlit og bæjarbrag Reykjavíkur jafn miklu varða. Jónas hafði metnað fyrir hönd Reykjavíkur sem höfuðborgar og vildi auka veg þeirra stofnana sem heima ættu í slíkri borg. Hallgríms- kirkja, Þjóðleikhúsið og Sundhöllin voru meðal þeirra mannvirkja sem Jónas beitti sér fyrir og honum var sömuleiðis mikið í mun að koma skrifstofum stjórnarráðsins, Hæsta- rétti og Alþingi í nýtt og betra hús- næði. Þannig komst hann að þeirri niðurstöðu þegar á árum seinni heimsstyrjaldarinnar að þinghúsið við Austurvöll væri orðið of lítið og rétt væri að byggja nýtt, helst með íbúðum fyrir þingmenn lands- byggðarinnar. Aðþrengdur háskóli Húsnæðismál Háskóla Íslands voru Jónasi sömuleiðis hugleikin, þótt samband hans við stofnunina væri alla tíð stormasamt. Þannig beitti Jónas sér fyrir setningu laga sem heimiluðu að ráðist yrði í háskóla- byggingu, þótt þau lög hefðu í fyrstu verið orðin tóm þar sem engin fjár- veiting fylgdi. Háskóli Íslands var stofnaður árið 1911 með sameiningu þriggja embættismannaskóla: Lagaskólans, Læknaskólans og Prestaskólans. Þótti sumum hæpið að stofnunin stæði undir háskólanafninu, enda nemendur jafnt sem kennarar fáir og starfsemin að mestu bundin við fáein laus herbergi í Alþingishúsinu þar sem þrengslin voru slík að hluti stúdenta varð að standa í kennslu- stundum. Stjórnendur háskólans vildu vita- skuld fá úrbætur í húsnæðismálum, en sýndu þó að margra mati óþarf- lega mikið langlundargeð gagnvart fjárveitingarvaldinu. Hafa ber þó í Stigaþrep forsmánarinnar Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um umdeilt mann- virki. … gætu þúSundir manna riðlaSt þar um úfið og Svipljótt hraungrýti. huga að á þessum árum þótti ekki viðeigandi að opinberir embættis- menn stæðu í harðri baráttu fyrir framlögum til stofnana sinna. Að lokum komst þó skriður á málin þegar Alþingi samþykkti að veita Háskólanum einkaleyfi til að reka peningahappdrætti til að standa straum af byggingu skólahúsnæðis vestur á Melum. Guðjón Samúels- son, húsameistari ríkisins, teiknaði háskólabygginguna sem tekin var í notkun á árinu 1940 og átti að full- nægja allri húsnæðisþörf skólans til margra áratuga, þótt annað ætti síðar eftir að koma á daginn. Á fimmtíu ára afmæli háskólans árið 1961, kom út saga stofnunar- innar eftir sagnfræðiprófessorinn Guðna Jónsson. Í verkinu var að finna mjög skýra söguskoðun, sem stjórnendum skólans féll vel í geð. Samkvæmt henni hafði háskól- inn frá fyrsta degi notið forystu ódeigra baráttumanna sem sífellt unnu að vexti hans og eflingu, þótt ytri aðstæður og misvitrir stjórn- málamenn hafi oft gert þá baráttu erfiða. Í frásögn Guðna er mest gert úr þætti Alexanders Jóhannessonar rektors í húsbyggingarmálinu og honum eignuð sú hugmynd að fjármagna framkvæmdirnar með happdrættisfé. Hljóð úr horni Hriflu-Jónasi var ekki skemmt. Hann settist niður og ritaði tíu greina bálk og birti í Mánudags- blaðinu, sem um þær mundir var orðið hálfgert einkamálgagn hans. Í greinaflokknum fór Jónas um víðan völl og skaut föstum skotum á nafn- greinda háskólamenn fyrir ýmsar sakir – þar á meðal þá menn sem hann taldi hafa staðið að „Stóru- bombunni“, þegar reynt var að lýsa Jónas geðveikan og því óhæfan í embætti dómsmálaráðherra. Megintilgangur þessara löngu rit- gerða var þó að árétta túlkun Jónas- ar sjálfs á byggingarsögu Háskólans. Samkvæmt henni tilheyrðu flestir háskólaprófessorar hinni íhalds- sömu yfirstétt sem skorti bæði stórhug og metnað til framkvæmda. Þess í stað einbeittu stjórnendur skólans sér fremur að því að finna leiðir til sparnaðar og niðurskurðar í samvinnu við ríkisstjórnir íhalds- manna með fjöldatakmörkunum og niðurlagningu námsbrauta. Einungis framfarasinnaðir sam- vinnumenn höfðu kjarkinn til að kalla eftir almennilegum úrbótum, þannig hafi Jónas sjálfur fengið lögin um háskólabygginguna sam- þykkt og húsameistarinn Guðjón Samúelsson látið sér detta í hug að stofna til happdrættis. Í báðum tilvikum hafi hreinlega þurft að dekstra íhaldssama stjórnendur háskólans til að styðja málefnið. Er greinaflokkur þessi sem birtist veturinn 1961-62 hið skemmtileg- asta lesefni, þótt höfundurinn gangi langt í túlkunum sér í vil. Fádæma smekkleysi Nokkrum árum síðar tók Jónas þráðinn upp að nýju í Mánudags- blaðinu. Þar hjó hann í sama kné- runn með að bygging Háskólans væri einkum Guðjóni Samúelssyni og í minna mæli honum sjálfum að þakka, en að háskólaprófessorar hafi fremur þvælst fyrir málinu en hitt. En nú hafði umkvörtunarefn- unum fjölgað. Í fyrsta lagi húðskammaði Jónas borgaryfirvöld í Reykjavík fyrir þá smekkleysu að heimila bygg- ingu Bændahallarinnar við Mela- torg, sem gnæfði yfir háskólabygg- inguna og spillti ásýnd hennar. Fengu skólastjórnendur sinn skerf af skömmum fyrir að hafa ekki náð að afstýra þessu slysi. Sýnu verri þótti Jónasi þó frá- gangur skólalóðarinnar og þá sér- staklega „stigaþrep forsmánar- innar“ fyrir framan innganginn að skólanum. Þar hafi Guðjón Samú- elsson hugsað sér að risi „… mikill Ásbyrgishvammur. Skeifulaga hamar, klæddur hrafntinnu. Í miðri sléttunni gosbrunnur, Geysir í hvítri skál eins og íslensk náttúra skapar víða dásemdir hér á landi. Létt stigaþrep skyldu liggja lítt sýnileg frá hlaði háskólans niður að gos- brunninum.“ Þessi lýsing er í samræmi við útlitsteikningar Guðjóns að háskól- anum, þar sem gert var ráð fyrir þverhníptum og hrafnsvörtum vegg umhverfis skeifuna. Hefði hann óneitanlega orðið tignarlegt mannvirki. Gosbrunnur var einnig fyrirhugaður og munu hafa verið gerðar fyrir hann undirstöður, áður en ákveðið var að koma þar fyrir styttunni af Sæmundi á selnum eftir Ásmund Sveinsson. Frágangur skeifunnar var ekki talið forgangsmál og sat á hak- anum á meðan Háskólinn reisti sér íþróttahús. Þá voru vangaveltur um hvort nýta mætti svæðið fyrir grasagarð, sem nýtast myndi Reyk- víkingum til útivistar en náttúru- fræðinemum til rannsókna. Var möguleikinn á þeirri staðsetningu kannaður alvarlega áður en Reykja- víkurbær ákvað að velja Laugardal- inn í staðinn. Styttuherdeildin Þegar loks var komið að fram- kvæmdum höfðu sjónarmið breyst í háskólanum. Alexander Jóhannes- son sá fyrir sér voldugar tröppur frá dyrum skólabyggingarinnar niður í Skeifuna. Jónas, stóryrtur að vanda, taldi breytinguna siðabrot af þeirri stærðargráðu að fágætt væri í sögu menntaðra þjóða. Í stað tignarlegs hamraveggs væri komin grasbrekka „… sem líktist moðbing með sætum sem engir nota og hin ferlegu stigaþrep framan við háskólafordyrnar. Í þessum fáránlega óskapnaði eru faldir tólf fótstallar fyrir styttur frægra Reykjavíkurprófessora. Stiga- þrepin eru hjákátleg. Þar eru engir mannavegir. Vegna stærðarinnar gætu þúsundir manna riðlast þar um úfið og svipljótt hraungrýti. Þrepin eru vita gagnslaus og svo ólistræn að þau eiga hvergi sinn líka.“ Háskólaþrepin voru, að mati Jónasar, óafmáanleg forsmán fyrir Háskólann, höfuðborgina og alla þjóðina uns þau yrðu rifin! Að sönnu eru Háskólaþrepin skringileg, þótt þau séu kannski ekki þjóðarhneyksli. Einkum eru það hinir skringilegu stallar, tólf talsins, sem gefa þeim undarlegt yfir- bragð. Stallarnir eru þó ekki útbúnir svona út í bláinn, því það var rétt hjá Jónasi að þar var ætlunin að koma fyrir styttum af menntaforkólfum úr Íslandssögunni. Það náði svo langt að efnt var til samkeppni meðal listamanna, en undirtektir reynd- ust dræmar. Skopmyndateiknarar Spegilsins drápu loks hugmyndina endanlega með því að teikna kunna háskólaprófessora í styttuformi í tröppunum. Sem er nú eiginlega synd, því það er eitthvað skemmti- lega sturlað við hugmyndina um að ganga í gegnum myndastyttuher- deild á leiðinni í nemendaskrá HÍ. 1 2 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r44 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.