Fréttablaðið - 26.09.2015, Síða 6
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
bAnDAríkin Barack Obama Banda-
ríkjaforseti og Xi Jinping, forseti
Kína, kynntu í gær áform sín í lofts-
lagsmálum, sem felast í því að bæði
ríkin setja sér ákveðið hámark um
losun svonefndra gróðurhúsaloft-
tegunda gegn því að geta síðan keypt
eða selt mengunarkvóta eins og tíðk-
ast hefur víða um heim frá því nokkru
fyrir aldamót.
Yfirlýsing þeirra þykir mikilvæg,
sérstaklega nú í aðdraganda loftslags-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem
haldin verður í París í desember næst-
komandi.
Frans páfi, sem einnig er í heimsókn
í Bandaríkjunum, lagði sitt lóð á þessa
sömu vogarskál þegar hann í ávarpi
sínu á Bandaríkjaþingi á fimmtudag
hvatti Bandaríkin og önnur ríki heims
til þess að grípa án tafar til aðgerða í
loftslagsmálum.
Hann ítrekaði þetta svo í gær í
ávarpi sínu í höfuðstöðvum Samein-
uðu þjóðanna í New York, þar sem
hann sagði umhverfið eiga sín rétt-
indi og mannkynið hafi engan rétt
til að brjóta gegn þeim. Guð hafi ekki
heimilað mannkyninu að misnota
náttúruna, hvað þá að eyðileggja hana.
„Við hljótum að fallast á að til
sé „réttur umhverfisins“, og það af
tveimur ástæðum. Annars vegar
vegna þess að menn eru partur af
umhverfinu,“ sagði páfi. „Og hins
vegar vegna þess að allar verur, sér-
staklega þær sem eru gæddar lífi,
hafa gildi í sjálfu sér.“
Lítill árangur hefur orðið af lofts-
lagsráðstefnum Sameinuðu þjóð-
anna undanfarin ár, en töluverðar
vonir eru bundnir við ráðstefnuna
í París.
Saman bera Bandaríkin og Kína
ábyrgð á um það bil 45 prósentum
af útblæstri koltvísýrings í heim-
inum.
Kínverjar ætla að stefna að því
að árið 2030 nái útblástur þeirra
hámarki. Obama hyggst fyrir sitt
leyti sjá til þess að Bandaríkin dragi
úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda
um 26 til 28 prósent til ársins 2025.
Yfirlýsing Kínverja verður ekki
síst mikilvæg í bandarískum stjórn-
málum, þar sem repúblikanar á
þingi hafa verið andvígir því að
Bandaríkin skuldbindi sig í þessum
málum meðan Kínverjar gera það
ekki.
Obama og Xi boða
loftslagsaðgerðir
Leiðtogar Bandaríkjanna og Kína taka höndum saman um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Mikilvæg forsenda þess að árangur náist á loftslagsráð-
stefnu í París í desember. Ríkin bera ábyrgð á hátt í helmingi af útblæstri heims.
Frans páfi er í New York í tveggja daga heimsókn og mun koma víða við. Hann mun meðal annars verða
viðstaddur messu í Madison Square Garden. Á fjöltrúarlegri athöfn til minningar um hryðjuverkin
11. september 2001 hitti hann fulltrúa gyðinga og múslima. fréttablaðið/epa
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
71
0
87
Sikiley
5. október í 10 nætur
Frá kr.139.900
Sikiley kemur á óvart með áhugaverðri blöndu af
öllu því helsta sem ferðamenn sækjast eftir. Samfelld
3000 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð,
ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn,
ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu
mannlífi – allt þetta og miklu fleira finnurðu á Sikiley.
Heimsferðir bjóða sérferð, gönguferð og sólarferð í
beinu flugi til Sikileyjar í byrjun október á yndislegum
tíma. Hitastigið er ennþá notalegt og hentar bæði
til sólbaða og fyrir þá sem vilja verja tímanum til að
skoða þessar stórbrotnu eyju.
Í sérferðinni er flogið til Palermo og dvalið í 5 nætur
á Campofelica di Rocella ströndinni. Þann 10.
október er ekið til austurstrandarinnar og dvalið á
Giardino Naxos í 5 nætur. Áhugaverðar kynnisferðir
eru í boði með íslenskum fararstjórum.
10 daga gönguferð til Vindeyja, hins ævintýralega
eld-fjallaeyjaklasa norður af Sikiley. Í ferðinni
verður farið í valdar dagsgöngur eftir ægifögrum
göngustígum á milli litskrúðugra þorpa, gróður-
sællra unaðslunda og fjalls-tinda með óviðjafnanlegu
útsýni yfir nokkrar af rómuðustu náttúruperlum
Suður-Ítalíu.
Í sólarferðinni er flogið til Palermo og ekið til ferða-
mannastaðarins Giardini Naxos á austurströndinni
og dvalið þar í 10 nætur. Bestu baðstrendurnará
Sikiley eru á austurströndinni og þar er öll þjónusta
við ferðamanninn eins og best verður á kosið.
Frá kr. 199.800
m/hálft fæði og
drykki innifalið
Netverð á mann frá
kr. 199.800 á Fiesta Garden
Beach og Hotel Giradini
Naxos Villas m.v. 2 í
herbergi m/hálfu fæði og
drykkjum með kvöldverð.
Frá kr. 239.900
m/morgunmat
og 5 kvöldverðum
Netverð á mann frá
kr. 239.900 m.v. 2 í
herbergi.
Sérferð
Gönguferð
Frá kr. 139.900
m/morgunmat
innifalinn
Netverð á mann frá
kr. 139.900 á Hotel Villa
Linda m.v. 2 í herbergi
m/morgunmat innifalinn.
SÉRTILBOÐ
Sólarferð
Við hljótum að
fallast á að til sé
réttur umhverfisins.
Frans páfi
45%
af útblæstri koltvísýrings
koma frá Bandaríkjunum
og Kína.
Um leið aukast líkurnar á því að
marktækt samkomulag takist í París
í desember, sem flest ríki jarðar
gætu orðið aðilar að.
Þar sem Kína telst enn til þró-
unarríkja hafa Kínverjar til þessa
ekki verið skuldbundnir samkvæmt
alþjóðasamningum til þess að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Yfirlýsingin í gær er byggð á sam-
komulagi ríkjanna, sem gert var í
Kína á síðasta ári þegar Obama kom
þangað í heimsókn.
gudsteinn@frettabladid.is
Minnast fórnarlamba hryðjuverkanna