Fréttablaðið - 26.09.2015, Qupperneq 19
Ísland steig stórt skref í átt til jafn-réttis þegar ein hjúskaparlög tóku gildi árið 2010. Þar tóku
þingmenn sig saman um mikla rétt-
arbót, sem var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum. Frá þeim tíma
hafa hugmyndir um „samviskufrelsi“
reglulega skotið upp kollinum í
umræðunni. Með því er átt við „frelsi“
presta þjóðkirkjunnar að neita sam-
kynja pörum um hjónavígslu. Undir-
rituð lögðu nýverið fram fyrirspurn
til innanríkisráðherra til þess að fá
endanlega úr því skorið hvort þessi
heimild væri yfir höfuð til staðar og
hvort hún væri nýtt.
Svör ráðuneytisins við fyrirspurn
okkar, sem og viðbrögð starfandi
biskups á forsíðu Fréttablaðsins,
vekja enn fleiri spurningar en þau
svara. Kristján Valur Ingólfsson
vígslubiskup leggur á það áherslu
að samviskufrelsi presta sé stjórnar-
skrárvarinn réttur og meðal dýrmæt-
ustu mannréttinda, á sama tíma og
ráðuneytið segir mjög skýrt að sem
opinberir starfsmenn megi prestar
ekki mismuna fólki á grundvelli kyn-
hneigðar. Samt bendir ráðuneytið á
lagaheimild til að útlista hvenær
prestum sé skylt að framkvæma
hjónavígslu og hvenær ekki – sem nú
stendur til að fá tillögur frá biskupi
um! Verður hluti af þeim tillögum
réttlæting á því að prestar mismuni
fólki á grundvelli kynhneigðar?
Réttindi rekast á
Hér rekast á réttindi presta til eigin
trúar og réttur fólks til að vera ekki
mismunað af opinberum starfs-
mönnum – en hvor rétturinn viljum
við að vegi þyngra? Er kannski sann-
gjarnast fyrir alla aðila að losa alla
undan þessum árekstri?
Ein lausnin væri að fara leið Sjálf-
stæðisflokksins og festa misréttið
í lög. Þegar Alþingi afgreiddi ein
hjúskaparlög vildu þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins gefa vígslumönnum
trúfélaga skýra heimild til að synja
hjónaefnum um vígslu ef það stríðir
gegn trúarlegri sannfæringu þeirra.
Þessari breytingartillögu var hafnað
með öllum atkvæðum nema 14
atkvæðum sjálfstæðismanna. Ein-
faldari lausn væri að úthýsa misrétt-
inu með því að skilja á milli trúar og
hjúskapar. Ef borgaralegum vígslu-
mönnum væri alfarið falið að sjá um
að skrá fólk í hjónaband, líkt og tíðk-
ast víða annars staðar, væri tryggt að
fólk gengi alls staðar að þeirri þjón-
ustu vísri. Þau hjónaefni sem vilja
auk þess fá trúarlega blessun gætu
gert það eftir sem áður, en það væri
persónuleg ákvörðun þeirra sem
ríkisvaldið þyrfti ekki að blanda sér í.
Réttur fólks til að ganga í hjóna-
band eru mikilvæg borgaraleg rétt-
indi, sem Alþingi hefur ákveðið
að nái til allra óháð kynhneigð. Ef
vígslumenn trúfélaga treysta sér
ekki til að standa vörð um þau rétt-
indi, þá þarf að skoða af fullri alvöru
að færa vígsluréttindin þangað sem
réttur fólks til hjúskapar verður
örugglega varinn – til borgaralegra
vígslumanna.
Ást fyrir alla
Steinunn Þóra
Árnadóttir
þingmaður
Vinstri grænna
Andrés Ingi
Jónsson
varaþingmaður
Vinstri grænna
Hr. Már Guðmundsson,
Seðlabankastjóri
Samhliða kynningu stjórnvalda á
stöðugleikaskattinum þann 8. júní
2015 var tilkynnt að í stað skattsins
stæði slitabúum gömlu bankanna
til boða að greiða stöðugleikafram-
lag. Þetta stöðugleikaframlag átti að
uppfylla svokölluð stöðugleikaskil-
yrði, sem væru í raun jafngild skatt-
inum í þeim skilningi að þau standi
með sama hætti vörð um hagsmuni
heimila og fyrirtækja. Jafnframt kom
fram að ferlið við afnám gjaldeyris-
hafta yrði opið og gagnsætt. Sú fyrir-
ætlun var að mati undirritaðra góð
enda ljóst að betur sjá augu en auga.
Nú, rúmum þremur mánuðum
síðar, hafa skilyrðin enn ekki verið
birt opinberlega eftir því sem við
komumst næst. Seðlabankinn hefur
því enn ekki staðið við loforð stjórn-
valda um opið og gagnsætt ferli. Svo
virðist sem ekki einu sinni lykil hags-
munaaðilar eins og Alþingi, efna-
hags-og viðskiptanefnd eða bankaráð
Seðlabankans hafi fengið kynningu á
þeim. Einu aðilarnir sem vitað er til
að hafi fengið upplýsingar um stöð-
ugleikaskilyrðin eru slitabú gömlu
bankanna og kröfuhafar þeirra.
Samt eru einungis þrír mánuðir þar
til frestur slitabúa til að undirgangast
stöðugleikaskilyrðin rennur út.
Stöðugleikaskatturinn átti að skila
850 ma.kr. til ríkissjóðs, en þó var hægt
að fá afslátt þannig að lækka mætti
skattinn í 682 ma.kr. gegn bindingu
erlends gjaldeyris í landinu. Í nýjustu
Peningamálum metur Seðlabankinn
hins vegar stöðugleikaframlagið sam-
kvæmt tillögum slitabúanna upp á
15% af VLF eða um 300 ma.kr. Þetta
vekur upp mjög áleitnar spurningar
um það hvernig stöðugleikaframlag
upp á 300 ma.kr. getur verið jafngilt
850 ma.kr. stöðugleikaskatti.
Miðað við gríðarlegt mikilvægi
þessara aðgerða fyrir íslensk heimili
og lífskjör hérlendis og loforða ríkis-
stjórnarinnar viljum við undirritaðir
biðja þig um að birta:
a) Stöðugleikaskilyrðin og útreikn-
inga á því hvernig þau eru efnahags-
lega jafngild stöðugleikaskattinum með
hliðsjón af greiðslujöfnuði þjóðarinnar.
b) Tilboð slitabúanna um stöðug-
leikaframlög og hvernig þau uppfylla
stöðugleikaskilyrðin.
c) Áhrif stöðugleikaframlaganna á
greiðslujöfnuð þjóðarinnar.
d) Endurmat á stöðugleikaskilyrðun-
um með tilliti til þeirrar áhættu Ísland
býr við t.d. samkvæmt viðvörunum
IMF, enda ber almenningur tjón af því
ef bjartsýnar áætlanir ganga ekki eftir.
Þar sem mjög knappur tími er til
stefnu biðjum við um að upplýsing-
arnar verði birtar innan viku. Kjósi
Seðlabankinn að birta þessar upplýs-
ingar ekki, biðjum við um rökstuðning
fyrir því af hverju enginn nema slita-
búin og kröfuhafar þeirra eigi að fá að
sjá stöðugleikaskilyrðin og hvernig slík
ákvörðun fellur að loforðum stjórn-
valda um opið og gagnsætt ferli.
Birting
stöðugleikaskilyrða
Dr. Agnar Helgason
mannfræðingur
Davíð Blöndal
eðlis- og tölvunarfræðingur
Ólafur Elíasson
MBA
Ragnar Ólafsson
félagssálfræðingur
Dr. Torfi Þórhallsson
verkfræðingur
f.h. InDefence hópsins
Réttur fólks til að ganga í
hjónaband eru mikilvæg
borgaraleg réttindi, sem Al-
þingi hefur ákveðið að nái til
allra óháð kynhneigð.
L A U G A R D A G U R 2 6 . s e p t e m b e R 2 0 1 5
Hafa ber í huga að ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á framtíðarárangur. Gengi sjóðsins getur bæði
hækkað og lækkað og fjárfestar kunna að fá minna til baka en upphaflega var fjárfest fyrir.
Ávöxtunartölur eru fengnar hjá Landsbankanum sem er vörsluaðili sjóðsins.
Landsbankinn er söluaðili sjóða Landsbréfa. Komdu við í næsta útibúi
eða hafðu samband við Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf í síma 410 4040.
Landsbréf – Úrvalsbréf eru fjárfestingarsjóður, starfræktur í samræmi við lög nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingar sjóði
og fag fjár festa sjóði og lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Rekstrarfélag sjóðsins eru Landsbréf hf. og vörslufélag er Landsbankinn
hf. Fjárfesting í fjárfestingarsjóði telst almennt áhættumeiri en fjárfesting í verðbréfasjóði vegna rýmri fjár festinga heimilda.
Innlausnarvirði hlutdeildarskírteina sjóðsins er virði samanlagðra eigna að frádregnum skuldum sjóðsins, s.s. ógreiddri umsýslu,
þóknunum og öðrum gjöldum. Nánari upplýsingar um sjóðinn, skattlagningu hlutdeildarskírteina og áhættu þætti við fjár festingu
í sjóðnum má sjá í útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingum sem finna má á vefsvæði Landsbréfa, landsbref.is.
Meðaltal nafnávöxtunar Úrvalsbréfa á ársgrundvelli miðað við 31.08. 2015
Veittur er 50% afsláttur af gjaldi við kaup út október.
4 ár
20,2%
5 ár
19,1%
3 ár2 ár1 ár
24,4%23,2%
39,5%
Góð ávöxtun
Úrvalsbréfa
Landsbréf – Úrvalsbréf hafa skilað góðri ávöxtun
síðastliðin ár. Sjóðurinn er hlutabréfasjóður. Að baki
Úrvalsbréfum er teymi fólks með mikla reynslu,
víð tæk tengsl við markaðinn og þekkingu á íslensku
viðskipta lífi.
Fjárfesting í hlutabréfasjóðum felur ætíð í sér áhættu. Fjárfesting í hlutdeildarskírteinum
fjárfestingarsjóða er þó að jafnaði öruggari en þegar keyptir eru einstakir fjármálagerningar, þar
sem hver sjóður dreifir áhættu fjárfesta með kaupum í fleiri en einum flokki fjármálagerninga.
Hlutabréf eru í eðli sínu áhættusöm fjárfesting og afkoma þeirra félaga sem sjóðurinn á hlutabréf
í hefur bein áhrif á gengi sjóðsins. Nauðsynlegt er að fjárfestar kynni sér vel þá áhættu sem
fólgin er í því að fjárfesta í hlutabréfasjóðum með því að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins áður
en ákvörðun er tekin um fjárfestingu.