Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 42
FÓLK|HELGIN
Það er nokkuð misjafnt hvernig fólk vill eyða laugar dagskvöldi. Unga
fólkið fer á djammið á meðan
þeir eldri njóta þess að vera
með fjölskyldu eða vinum. „Ekki
hringja, það þýðir ekki neitt,
nota ekki síma, sé þig hjá klukk-
unni klukkan eitt,“ segir í texta
Braga Valdimars Skúlasonar í
Baggalútslaginu skemmtilega.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON hefur
haft nóg að gera undanfarna
daga. Hann söng ásamt helstu
stórsöngvurum Íslands í Eldborg
á miðvikudagskvöld á stórkost-
legum tónleikum þar sem minn-
ing Franks Sinatra var heiðruð. Í
kvöld er hann með eigin tón-
leika í Háskólabíói. „Það hefur
verið mikill undirbúningur fyrir
tónleikana í kvöld. Ég verð með
góða menn með mér á sviðinu
sem gera verkið auðveldara,“
segir Björgvin og bætir því við að
laugardagskvöld fari oft í vinnu.
„Ég myndi helst vilja eyða laugar-
dagskvöldi með fjölskyldu og
vinum yfir góðum mat og spjalli
um allt milli himins og jarðar. En
það er líka alltaf gaman í vinnunni
hjá mér,“ segir Bo.
LINDA PÉTURSDÓTTIR starfar
sem einkaráðgjafi að bættri
heilsu. Hún segist eyða laugar-
dagskvöldi með dóttur sinni.
„Það er kósíkvöld hjá okkur. Við
klæðum okkur í náttföt, borðum
góðan mat, poppum, horfum á
mynd eða spilum og slökum á.
Fyrir mér er þetta nærri því að
vera hið fullkomna kvöld.“
ÓLAFUR STEPHENSEN, fram-
kvæmdastjóri Félags atvinnu-
rekenda, hefur verið tals-
maður fyrir tollalækkun á
innfluttum matvælum.
Hann er mikill mat-
gæðingur og ætlar að
elda andabringur með
grænpiparsósu, spari-
kartöflumús og sykurbaun-
um í kvöld og sitja svo
að spjalli með góðu
fólki fram á nótt.
Þegar hann
er spurður
hvernig hann vilji helst eyða góðu
laugardagskvöldi, svarar hann:
„Elda eitthvað nýtt og skemmti-
legt sem er búið að malla í hausn-
um á mér alla vikuna og sitja svo
að spjalli með góðu fólki fram á
nótt.“
BIRGITTA JÓNSDÓTTIR, alþingis-
maður og pírati, hefur haft nóg að
gera á þinginu í vikunni. Hún seg-
ist ekki gera mikinn greinarmun á
helgum og virkum dögum. „Ef ég
er í alvöru fríi, sem gerist ekki oft,
þá finnst mér gaman að horfa á
eitthvað í sjónvarpinu með yngri
syni mínum eða fara með honum
í bíó. Menning er líka skemmtileg,
sér í lagi tónleikar eða leikhús.
Kvöldið í kvöld er óráðið. Ef
það er heiðskírt fer ég kannski á
norður ljósaveiðar,“ segir hún.
BUBBI MORTHENS lætur venju-
lega mikið að sér kveða en í
kvöld er hann í fríi og ætlar að
njóta þess í faðmi fjölskyldunn-
ar. „Við horfum á góða bíómynd,
borðum popp og karamellur og
njótum lífsins. Ég mun örugglega
hafa annan handlegginn utan
um dæturnar. Þetta verður fjöl-
skyldukvöld.“
HREFNA SÆTRAN
matreiðslumeistari
sem eldar ofan í
gesti á veitinga-
húsum sínum dag-
lega er núna í góðu
fríi á Tenerife. „Í
kvöld ætla ég að bera
á mig after sun-krem
og fara út að borða
með manninum mín-
um og börnum.
Svo kíkjum við
örugglega á hótelbarinn þar
sem plötusnúður þeytir skífum
og saxófónleikari spilar. Krökk-
unum finnst gaman að dansa
við það. Við ákváðum að prufa
svona síðbúið sumarfrí meðan
krakkarnir eru enn svona litlir,“
segir Hrefna. „Annars finnst mér
gaman að fá fólk heim í mat og
spjalla fram á nótt. Líka fara á
tónleika eða leikhús. Ég er mikil
félagsvera og slaka á í góðra
vina hópi.“
ANDRÉS JÓNSSON, almanna-
tengill og einn öflugasti Twitter-
skrifarinn á landinu, hefur nóg
að gera um helgina. „Í dag og
kvöld er ég að fara að taka þátt
í að steggja vin minn sem býður
til brúðkaups á næstunni. Ég er
mjög lítið fyrir allt sem tilheyrir
steggjunum og ætla að afþakka
slíkt prógramm þegar það kemur
að mér að gifta mig en ég vona
að lágar væntingar leggi grunn-
inn að góðu kvöldi í kvöld,“ segir
Andrés og bætir við: „Ég reyni
að leggja laugardagskvöldin upp
eins og öll önnur kvöld, sem
felst aðallega í að að véla ein-
hvern til að bjóða mér heim til
sín í mat. Uppáhaldsiðja mín
er annars að hitta fólk, drekka
kaffi og rölta í miðbænum og
ég er mikið að vinna með þessa
blöndu líka um helgar. Þó er
líka stundum bara fínt að hanga
heima á laugardagskvöldi með
fjölskyldunni (les Twitter-fam)
og eiga kaldhæðnar samræður
um mynd kvöldsins á RÚV. Twitt-
er er öruggur staður til að vera á
í flóði samfélagsmiðla.“
GERÐUR KRISTNÝ rithöfundur
hefur undanfarna daga verið á
Bókamessu í Gautaborg. Hún
ætlar að eiga gott kvöld yfir nýj-
ustu ljóðabók Kristjáns Þórðar
Hrafnssonar „Tveir Elvis Presley
aðdáendur og fleiri sonnettur“.
Skemmtilegast finnst henni þó
að horfa á góða kvikmynd með
fjölskyldunni. „Fyrir viku skrupp-
um við eldri sonurinn þó á leik-
ritið Í hjarta Hróa hattar. Það var
skemmtilegt,“ segir hún.
n elin@365.is
LAUGARDAGSKVÖLD
OG GLEÐIN VIÐ VÖLD
PARTÍ Það er laugardagskvöld, það er gleðin við völd, söng Karl Sigurðsson
og Baggalútur um árið. Rétt er að laugardagskvöld eru ljúf, hvort sem þau
eru nýtt til að slaka á, skemmta sér eða vinna. Nokkrir valinkunnir einstak-
lingar segja hér hvernig þeir ætla að eyða kvöldinu í kvöld.
20% AFSLÁTTUR
10% AF ÖÐRUM VÖRUM
OPIÐ Á LAUGARDAG
SKOÐIÐ LAXDAL.IS/BETTYBARCLAY
Laugavegi 63 • S: 551 4422
20% afsláttur
10% af öðrum vörum
Fæst í apótekum og heilsubúðum
w
w
w
.z
e
n
b
ev
.i
s
-
U
m
b
o
ð
:
vi
te
x
e
h
f
Friðsælar
nætur
Streitulausir
dagar
Betri og dýpri svefn
Engin eftirköst eða ávanabinding
Vísindaleg sönnun á virkni
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/16053244
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/18066139
Melatónin
Náttúrulegt
Upplýsingasími 896 6949
og www.vitex.is
ZenBev Triptófan úr graskersfræjum
Upplýsingar www.SUPERBEETS.is vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Íslensk vottun
á virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
NO. - 1. dós superbeets
jafngildir 30 flöskum
af 500 ml rauðrófusafa
Betri
heilsa
Fæst í apótekum og heilsubúðum