Fréttablaðið - 26.09.2015, Side 46
FÓLK| HELGIN
Söngkonunni og tónskáldinu Ólöfu Arnalds finnst gott að fá heimatilbúið læri í matinn um helgar og best finnst henni að hanga með
fjölskyldunni. Í kvöld halda hún og hörpuleikarinn
Katie Buckley tónleika í Mengi þar sem þær
flytja tónlist Ólafar í bland við tónlist annarra
tónskálda. Ólöf og Katie hafa þekkst um nokk
urt skeið og dreymt um ýmis samstarfsverkefni.
Tónleikunum lýsa þær þannig að hljóð
heimurinn verði tær og látlaus þar sem
saman koma söngrödd, gítar og harpa
og lofa þær töfrastund. Lesendum gefst
hér tækifæri á að skyggnast inn í helgarlíf
Ólafar og hvernig henni þykir best að haga
því.
Hver er óskamorgunmaturinn um helgar?
Djúsí ommeletta.
Hver er yfirleitt helgarmorgunmaturinn? Ommel
etta.
Þegar þú ferð út að skemmta þér hvað finnst þér
skemmtilegast að gera? Að ná í skottið á gömlum
vini eða vinkonu og vera ekki með neitt plan.
Sefur þú út um helgar? Gjarnan.
Uppáhaldshelgarmaturinn? Sunnudagslærið.
Hvar er best að borða hann? Heima.
Vakir þú fram eftir? Oftar en ekki.
Ef þú ferð út að dansa hvert ferðu þá? Eitthvert
random og helst ekki á sama stað og síðast.
Hvernig er draumahelgardagurinn? Snemmsum
arsdagur í litlum bæ í SuðurEvrópu án tölvu eða
síma. Lesa og synda til skiptis, leggja sig síðdegis
og eiga svo ljúfan langan málsverð um kvöldið í
skemmtilegum félagsskap.
Ef þú ert nátthrafn færðu þér eitthvað í gogginn
á kvöldin? Ég er ólæknandi nátthrafn og svæsinn
næturgoggur.
Ertu með nammidag? Hvaða nammi færðu þér?
Þegar ég kaupi laugardagsnammið fyrir son minn,
slengi ég jafnan í mig einni mánarúllu honum til
samlætis.
Hvar er best að eyða laugardagseftirmiðdegi?
Heima að sýsla.
Með hverjum er best að hanga um helgar? Fjöl
skyldunni.
Hvað verður í sunnudagskaffinu? Kaffi fyrir full
orðna. Kakó og bakkelsi fyrir börn.
Hvað er annars að frétta? Bara gott. Ég var að
ljúka við tónlist fyrir kvikmynd og er að leggja drög
að upptökum á næstu plötu.
ÓLÆKNANDI
NÁTTHRAFN
HELGARLÍF Hljómlistarkonan Ólöf Arnalds notar helgina í tónleikahald og
heimastúss. Draumafrídeginum myndi hún verja í litlum bæ í Suður-Evrópu.
TÓNLISTARKONA Ólöf Arnalds heldur tónleika í kvöld með Katie Buckley hörpuleikara og á von á að það verði yndislega gaman.
MYND/GVA
Í tengslum við sýninguna „Í íslensku skógunum“ í Borg-
arbókasafninu Grófinni í Tryggvagötu, er boðið upp á
smiðju fyrir börn sem er kölluð „Skemmtilegir skógar,
dagur lítilla málara“. Í smiðjunni sem haldin verður
bæði klukkan 14 og 16 fá börnin meðal annars tæki-
færi til að feta í fótspor listmálarans Pekka Halonen og
skapa þeirra eigin list með innblæstri frá skógunum.
Fjölbreyttur efniviður verður í boði á staðnum. Dag-
skrá dagsins inniheldur leiðsögn við skapandi vinnu þar
sem ímyndunaraflið fær að njóta sín.
Sigurbjörg Karlsdóttir mun segja börnunum heillandi
sögur um töfra og leyndardóma skóganna. Frásögnin
verður bæði á íslensku og ensku eftir þörfum. Börn eru
beðin um að koma með tómar mjólkurfernur eða annað
áþekkt sem notað verður til að byggja fuglahús. Allt
annað efni fyrir smiðjuna verður í boði á staðnum.
SKEMMTILEGIR SKÓGAR Í BORGARBÓKASAFNI
Leiðbeinendur eru: Halla Birgisdóttir fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi,
Jónas Þór fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður,
Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursson fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver
Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í., Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur.
Sjáið myndirnar á facebook.com/Parisartizkan
Skipholti 29b • S . 551 0770
Haust-
dagar!
Glæsilegar
haustvörur
komnar.
Valdar vörur
á einungis
3 verðum.
5.000- kr,
10.000- kr og
15.000- kr.