Fréttablaðið - 26.09.2015, Síða 92
Reglulega má sjá undarlega hluti aug-
lýsta til sölu í netheimum. Á síðunni
www.therichest.com er að finna skondna
samantekt á mjög svo undarlegum
hlutum sem boðnir hafa verið upp á Ebay.
Draugur í flösku
Krukka sem átti að hafa fundist í aflögð-
um kirkjugarði og sögð ásótt af draugum,
var boðin upp á Ebay af seljanda frá
Arkansas. Hæsta boð var rétt um 56.000
dollarar eða um það bil 717.000 krónur,
þegar uppboðinu var lokað. Seljandi
krukkunnar sagðist ásóttur af draugnum í
krukkunni og tók skýrt fram að hann yrði
ekki ábyrgur fyrir því sem gæti komið fyrir
nýjan eiganda krukkunnar. Kaupandinn
greiddi aldrei.
Andsetin önd
Foreldrar barns auglýstu leikfangaönd
til sölu á Ebay sem þau sögðu andsetna.
Barnið þeirra hagaði sér einnig eins og
andsetið þegar öndin væri nálæg svo
fjölskyldan hefði meira að segja leitað
aðstoðar prests. Einnig tóku þau skýrt
fram að þau afsöluðu sér allri ábyrgð á því
sem gæti hent nýjan eiganda andsetnu
andarinnar. Hún seldist samt, og á 107,50
dollara eða um það bil 13.800 krónur.
Kornflaga í laginu
eins og Illinois
Ættjarðarást Ameríkana eru
engin takmörk sett, í það
minnsta ekki Texasbúans sem
keypti litla kornflögu á 1.350 dollara af
systrum frá Virginíu á Ebay, eða um það
bil 172.800 krónur. Hann ætlaði flög-
una, sem var í lögun eins og Illinois,
í farandsafn sitt en hann safnaði
hlutum sem tengdust Ameríku.
ALLAR ÍSLENSKAR
NETVERSLANIR
Kjarni.is er eins konar verslunar-
miðstöð á netinu en þar er að
finna yfirlit yfir nær allar íslenskar
netverslanir á einum stað. Síðuna
stofnaði kerfisfræðingurinn Þór
Sigurðsson en honum fannst
þurfa að koma íslenskum vef-
verslunum undir einn hatt.
Verslununum er skipt niður í
flokka. Meðal vinsælla flokka má
nefna Barnavörur & leikföng, Fatn-
aður & skór og Íslensk hönnun en
á síðunni eru líka flokkar eins og
Matvara, Mótor- & reiðhjól, Ferða-
lög & afþreying, Símar & spjald-
tölvur og Tónlist & tölvuleikir svo
eitthvað sé nefnt. Þá er að finna
flokk sem heitir Netverslanir á
Face book en þar er að finna ara-
grúa fjölbreyttra verslana.
Tilgangur síðunnar er að auð-
velda eigendum þeirra að koma
sér á framfæri og auðvelda um
leið netverjum að finna það sem
þeir leita að. Á
sama tíma er
markmiðið að
styrkja
íslenska
verslun
og at-
vinnulíf.
Þeir sem reka
netverslun geta
skráð hana með
einföldum
hætti á
síðuna.
SKRÍTIN KAUP
VERSLAÐ Á NETINU
Á MÁNUDEGI
Mánudagurinn eftir þakkar-
gjörðarhátíðina í Bandaríkjunum
er kallaður Cyber Monday eða
Netmánudagur. Hugtakið var
skapað af markaðsfyrirtækjum
og ætlað til þess að fá fólk til að
versla á netinu. Föstudagurinn
á undan er hinn svokallaði Black
Friday sem er einn stærsti dagur
bandarískrar verslunar.
Ellen Davies, formaður Félags
bandarískra smásala, bjó til orða-
sambandið Cyber Monday og var
það fyrst notað í fréttatilkynningu
sem gefin var út þann 28. nóvem-
ber 2005 og fjallaði um það að
Cyber Monday væri orðinn sá
dagur sem mest væri verslað á
netinu. Netsala á Cyber Monday
árið 2014 var 2,68 milljarðar
dollara en var 2,29 milljarðar árið
áður.
Tilboð verslana á Cyber
Monday gilda einungis í netversl-
unum og eru oftar í boði smærri
verslana. Þau kaup sem gerð eru
á Cyber Monday eru mikið til á
tískusviðinu en síðustu tvö ár
hafa að meðaltali 45 prósent fleiri
kaup á fatnaði verið gerð þann
dag en á Black Friday. Einnig voru
fimmtíu prósent fleiri skókaup
gerð á Cyber Monday en á Black
Friday.
Cyber Monday er orðinn að
alþjóðlegu fyrirbrigði og er hug-
takið notað af netverslunum í
Argentínu, Kanada, Síle, Kína,
Kólumbíu, Danmörku, Þýskalandi,
Írlandi, Úganda, Japan, Portúgal,
Svíþjóð og Bretlandi.
KYNNING − AUGLÝSING 26. SEPTEMBER 2015 LAUGARDAGUR8 Netverslun og vefsíðugerð