Fréttablaðið - 26.09.2015, Page 94
Jeremy Corbyn
∙ Fæddur 26. maí 1949 í Chippenham á Englandi∙ Corbyn er þrígiftur og á þrjá syni. Núverandi eiginkona er
Laura Alvaréz∙ Hann notar reiðhjól til að komast á milli staða, á ekki
bíl. Hefur verið grænmetisæta
frá því hann var tvítugur∙ Corbyn hefur setið á breska þinginu fyrir Islington North
kjördæmið síðan 1983∙ Kosinn leiðtogi Verkamanna-flokksins 12. september 2015
Nordicphotos/AFP
Corbyn enn
óskrifað blað
Á morgun mætir hann félögum sínum á flokksþingi
Verkamannaflokksins. Fyrstu skoðanakannanir
sýna að fáir treysta honum, en sjálfur er hann
óhræddur og ætlar sér stóra hluti.
Nú í vikunni gaf hann kost á sér
í viðtal við blaðamann hjá tímarit
inu New Statesman þar sem hann
var spurður hvert yrði hans fyrsta
verk, fari svo að hann verði forsætis
ráðherra:
„Að taka á húsnæðisvandanum,
taka á ójöfnuðinum, taka á fátæktar
vandanum í Bretlandi. Og móta
utanríkisstefnu sem snýst um frið
og mannréttindi, ekki um hernaðar
íhlutun víðs vegar um heim.“
Þarna virðist birtast í fáum orðum
stefna hans í hnotskurn. Hann vill
hjálpa þeim sem minna mega sín,
draga úr forréttindum hinna betur
stæðu og gjörbylta utanríkisstefnu
Bretlands.
Og ekki hafði hann neinar áhyggj
ur af því að flokkurinn muni klofna:
„Nei, hvers vegna ætti flokkurinn
að klofna? Við erum með opið lýð
ræðislegt ferli,“ sagði hann í viðtali
við vefmiðilinn Middle East Review,
stuttu fyrir leiðtogakjörið.
Vill stærri flokk
„Ég vil stærri flokk, virkan flokk sem
fólk vill ganga til liðs við. Flokk sem
vill berjast fyrir málefnum, flokk
sem er ekki hræddur við sjálfan sig,“
sagði Corbyn. „Við þurfum ekkert að
herma eftir íhaldinu og koma með
léttar aðhaldsaðgerðir. Við getum
gert betur en það, og ég ætla mér að
gera betur en það.“
Hægri menn hafa áhyggjur af því,
að hann muni með stefnu sinni
bæði rústa efnahagslífinu og stofna
öryggi Bretlands í hættu.
Hann vísar þessu á bug og segist
sannfærður um að öryggi Bret
lands muni styrkjast hætti Bretar
að fylgja Bandaríkjunum eftir í einu
og öllu.
„Ég held að við myndum treysta
öryggi okkar með því að sýna að við
höfum skilning á því hversu fjöl
breytt trúarbrögðin eru og hversu
fjölbreyttar óskir og væntingar
fólks eru víðs vegar um heiminn,
og einnig ef við yrðum mannrétt
indaafl í staðinn fyrir að vera afl
hernaðar íhlutunar.“
John Smith
1992–94
Neil Kinnock
1983–92
Gordon Brown
forsætisráðherra
2007–2010
Ed Miliband
2010–2015
Leiðtogar Verkamannaflokksins 1983-2015
Tony Blair
1994–2007
forsætisráðherra
1997-2007
F lokksþing breska Verkamannaflokksins hefst á morgun og stendur fram á miðvikudag. Þar mætir Jeremy Corbyn væntanlega verulegri tortryggni
frá hluta flokksfélaga, enda þótt
góður meirihluti þeirra hafi kosið
hann til formennsku fyrr í mán
uðinum.
Ný skoðanakönnun frá Ipsos
MORI gefur honum ekki góðan byr.
Aldrei áður hafa kjósendur almennt
haft jafn lítið álit á nýkjörnum leið
toga Verkamannaflokksins í fyrstu
skoðanakönnun eftir að hann tekur
við embættinu.
Útkoman er mínus 3, en léleg
ustu útkomuna fékk Michael Foot
árið 1980, en tæp þrjú prósent voru
ánægð með frammistöðu Foots
stuttu eftir að hann tók við leiðtoga
embætti flokksins.
Þykir heiðarlegur
Hins vegar eru mun fleiri á þeirri
skoðun að Corbyn sé heiðarlegur en
að David Cameron, leiðtogi Íhalds
flokksins, sé það.
Hvernig svo sem framhaldið
verður þá hefur Corbyn tekist að
hrista verulega upp í breskum
stjórnmálum með nokkuð gamal
dags róttækni.
Hægri menn eru margir hverjir
sigri hrósandi, sannfærðir um að
Corbyn muni aldrei takast að vinna
meirihluta kjósenda á band Verka
mannaflokksins undir sinni stjórn.
Margir vinstri menn óttast að það
mat geti verið rétt.
Corbyn er hins vegar enn að
mörgu leyti óskrifað blað, meðal
annars vegna þess að hann hefur
eftir bestu getu reynt að forðast fjöl
miðla, sem verður að teljast harla
óvenjulegt hjá stjórnmálamanni.
Óhræddur við kosningar
Sjálfur segist hann hafa fulla trú á
því að flokkurinn geti sigrað í næstu
þingkosningum, sem líklega verða
haldnar árið 2020.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
1979 1983 1987 1992 1997 2001 2005 2010 2015
Kosningaárangur Verkamannaflokksins - hlutfall atkvæða
%
Ár
50
40
30
20
36,9%
27,6%
30,8%
34,4%
43,2%
40,7%
35,3%
29,1%
30,5%
269/635
Fjöldi þingsæta Verkamannaflokksins af heildarfjölda þingsæta∙ Íhaldsflokkurinn í meirihluta∙ Verkamannaflokkurinn í meirihluta
209/650
229/650
271/651
419/659
413/659
356/646
258/650
Enginn fékk hreinan meirihluta:
Samsteypustjórn Íhaldsflokks
og Frjálslyndra tók við
232/650
2 6 . S E P T E M B E R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð