Fréttablaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 98
Við þökkum ykkur fyrir hluttekningu,
hlýjar kveðjur og vináttu við andlát
og útför elsku mannsins míns, pabba,
tengdapabba og afa,
Gunnars Ingibergs
Guðmundssonar
Starfsfólki hjarta- og lungnaskurðdeildar
Landspítalans og heimahjúkrun Karitas er
þökkuð umhyggja og hlýja.
Halldóra Hallfreðsdóttir
Díana Dröfn Ólafsdóttir Guðmundur Karl Reynisson
Heimir Logi Gunnarsson
Guðlaug Harpa Gunnarsdóttir Guðmundur Tryggvi
Ólafsson
og afabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Helgadóttir
Stillholti 12, Akranesi,
lést á sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn
20. september sl. Útför hennar fer fram
frá Akraneskirkju miðvikudaginn
30. september kl. 14.00
Helga Jónsdóttir Einar Ásgeirsson
Hrannar Einarsson Guðbjörg Ösp Einarsdóttir
Jón Valur Einarsson
Hildigunnur Einarsdóttir Guðjón Jóhannesson
Andri Þór Einarsson
Einar Magni og Arnar Pálmi
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
MEÐ VIRÐINGU
OG KÆRLEIK Í 66 ÁR
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
www.útför.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Jóna Gróa Sigurðardóttir
fyrrverandi borgarfulltrúi,
Sléttuvegi 31, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
17. september sl. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 29. september kl. 13.00.
Guðmundur Jónsson
Ingunn Guðlaug Guðmundsdóttir Magnús Andrésson
Sigurður Guðmundsson Guðný Ívarsdóttir
Helga Guðmundsdóttir Jóhann Gíslason
Auður Björk Guðmundsdóttir Ægir Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjónin
Edda Sigrún Ólafsdóttir og
Helgi Hreiðar Sigurðsson
fögnuðu sextíu ára hjúskaparafmæli
í gær 25. september. Helgi og Edda eiga
5 börn, 14 barnabörn og 6 barnabarnabörn.
60
DEMANTSBRÚÐKAUP
ára brúðkaupsafmæli
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ketill Vilhjálmsson
fyrrv. bifreiðastjóri,
Túngötu 5, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 21. september. Útförin fer
fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 1. október kl. 13.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á styrktarsjóð Kirkjuvogskirkju í Höfnum,
0542-26-2902, kt. 690169-0299.
Sigrún B. Ólafsdóttir
Magnús Ketilsson Auður Tryggvadóttir
Sigurgísli Ketilsson Halldóra Jóhannesdóttir
Páll Ketilsson Ásdís B. Pálmadóttir
Valur Ketilsson Hjördís Hilmarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég kynni myndirnar fyrir sýninguna,
karakterana og aðstæður. Svo ætla ég að
endursegja fyrri helminginn í grófum
dráttum í hléi,“ segir leikkonan Thelma
Marín Jónsdóttir en hún mun leiða gesti
hátíðarinnar í gegnum tvær myndir á
hátíðinni, Gullna hestinn, sem sýnd er í
dag og svo Leynifélag Súpubæjarins sem
slær botninn í barnakvikmyndahátíðina
á mánudaginn.
„Ég verð tiltæk með hljóðnemann og ef
ég sé að áhorfendur eru ekki alveg með á
nótunum þá læði ég einhverju inn,“ segir
hún og hlær.
Kvikmyndin Gullni hesturinn er opn-
unarmynd Barnakvikmyndahátíðar-
innar en hátíðin er hluti af barnadagskrá
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykja-
vík, RIFF, sem stendur yfir til 4. október
næstkomandi.
Gullni hesturinn er teiknimynd frá Lit-
háen sem byggð er á leikriti og tók 10 ár
að ljúka við gerð hennar. Myndin fjallar
um baráttuna á milli góðs og ills segir
frá Antiņš sem hefur sjö ár og sjö daga
til þess að bjarga prinsessunni úr klóm
svörtu móðurinnar sem handsamaði
hana og nærist á sorg og tárum annarra.
Leynifélag í Súpubæ er leikin fjöl-
skyldumynd frá Eistlandi og fjallar um
Mari, Sadu, Olav og Anton sem stofna
til leynisamfélags til að leika sér í felu-
leik sem fundinn var upp af afa Mari.
Myndin á sér stað í hverfinu Súpubæ sem
er í borginni Tartu. Í kjölfar eiturárásar
á bæinn breytist fullorðið fólk í börn og
söguhetjurnar þrjár hefja leit að móteitri.
„Mér fannst myndirnar mjög skemmti-
legar,“ segir Thelma og heldur áfram:
„Leynifélag í Súpubæ er alveg dásam-
leg. Inspírerandi, falleg og rosalega vel
leikin.“
Thelma er menntuð leikkona og skip-
ar ásamt þeim Herdísi Stefánsdóttur og
Guðna Einarssyni hljómsveitina East Of
My Youth sem gefa mun út sína fyrstu
plötu á næsta ári. Thelma segist hafa
verið áhugakona um kvikmyndir frá
barnæsku og fagni því hátíðinni. „Mér
finnst það nauðsynlegt að hvetja krakka
til þess að horfa á kvikmyndir og þetta
eru báðar mjög vandaðar myndir.“
Barnakvikmyndahátíðin verður sett
klukkan klukkan 14.30 í Norræna húsinu
og verður stuttmyndadagskrá fyrir börn
og unglinga yfir helgina. Nánari dagskrá
er hægt að skoða á vefsíðunni Riff.is
gydaloa@frettabladid.is
Barnakvikmyndahátíð
haldin á RIFF um helgina
Hátíðin er hluti af Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík og stendur hún yfir til mánudags.
Thelma Marín Jónsdóttir leiðir börnin í gegnum dagskrána á Barnakvikmyndahátíðinni.
FréTTaBlaðið/Valli
leynifélag Súpubæjarins er lokamynd hátíðarinnar.
Ég verð tiltæk
með hljóðnemann og
ef ég sé að áhorfendur eru ekki
alveg með á nótunum þá læði ég
einhverju inn.
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r42 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót