Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 8
Orlofshús orlofssjóðs eru flaggskip þeirra kosta sem sjóðurinn býður uppá. Orlofs - sjóður á nú átta húseignir; fimm sumarbústaði (þrjá í grímsnesi, einn í húsafelli og einn á úlfljótsvatni) og þrjár íbúðir (tvær í reykjavík og eina á akureyri). Orlofsnefnd hefur lagt kapp á að vanda valið á þessum eignum m.t.t. staðsetningar og fyrirkomu- lags og halda þeim vel við. Til að íbúðirnar nýtist sem best í bæ eða borg þurfa þær að vera frekar miðsvæðis þannig að stutt sé í alla almenna þjónustu. Þær þurfa að búa yfir öllum hefðbundnum þægindum en oft er það svo að fólk dvelur ekki endilega mikið í íbúðunum í borgar- eða bæjarferðum heldur nýtir sér frekar afþreyingu og þjónustu. nýting á sumarhúsum er gjarnan með öðrum hætti, en þá er það gjarnan hvíld og ástundun hugðarefna sem er kjarninn í dvölinni. Þá þarf bústaðurinn að rúma vel gestina, viðbótarþægindi eru einnig nauðsynleg, eins og heitur pottur, fallegt um- hverfi, aðstaða til að dvelja utandyra, útigrill og fleira í þeim dúr. Aðrir leigukostir orlofssjóðs eru eignir sem orlofssjóður leigir af eigendum þeirra. Orlofssjóður tekur þessar eignir til leigu í 3–6 mánuði í senn og framleigir til félags- manna. Sumar leigueignir eru einungis í boði yfir sumartímann en aðrar allt árið. Margir slíkir samningar hafa nýst okkur vel og verið endurnýjaðir ár eftir ár. Með þessu fyrirkomulagi höfum við haft tækifæri til að reyna okkur á nýjum stöðum til skemmri tíma án þess að þurfa að leggja í fjárfestingar sem síðan þarf að selja ef þær reynast ekki nógu vel. Það er viðvarandi verkefni orlofsnefndar að vera á höttunum eftir hentugum eignum til framleigu fyrir félagsmenn og endilega látið nefndina eða skrifstofu fíh vita ef þið þekkið til húseiganda sem er tilbúinn að leigja félaginu góða eign á áhugaverðum stað. Á vordögum sendi orlofsnefndin út þjónustukönnun til félagsmanna sem hafa skráð sig á póstlista félagsins. Þátttakan var þokkaleg, um 477 félagsmenn svöruðu og flestir þeirra eru virkir sjóðfélagar. könnunina mun nefndin nota til að styðja við stefnumótun og ákvarðanir um fjárfestingar og ráðstöfun fjármuna og sem hug- myndapott fyrir breytingar eða nýja orlofskosti. Ljóst er að við munum aftur kanna hug félagsmanna með þessum hætti síðar og hvetjum við sem flesta til að taka þátt og segja hug sinn þegar slíkt tækifæri gefst. 8 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 Pistill frá orlofsnefnd Helga Harðardóttir formaður Orlof er tími sem við notum gjarnan til að sinna eigin hugðarefnum, til ferðalaga eða hvíldar. Stjórn orlofssjóðs Fíh er umhugað um að létta undir með félagsmönnum þannig að orlofið geti orðið ánægjulegt og endur- nærandi. … viðbótarþægindi eru einnig nauðsynleg, eins og heitur pottur, fallegt um- hverfi, aðstaða til að dvelja utandyra, útigrill og fleira í þeim dúr. Úr þjónustukönnun: „finnst frekar stressandi að sækja um, finnst allt vera fariðþegar ég ákveð mig, en á nóga punkta.“ Við skipuleggjum sumarleyfi og utanlandsferðir með margra mánaða fyrirvara, til að fá hagstæð kjör. Það sama þarf að viðhafa um umsóknir í orlofssjóð, hvort sem er að vetri eða sumri. Vissulega er mesta ásóknin í kringum almenna frídaga, en o er hægt að fá leigt að vetri til um helgar svo ekki sé minnst á lausa daga í miðri viku. nýting eigna yfir vetrartímann er frá 57–90% þannig að möguleikinn er vissulega fyrir hendi að komast að einhvers staðar. Helga Harðardóttir formaður stjórnar orlofs - sjóðs Fíh.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.